| Verið hjartanlega velkomin á heimsíðuna okkar. |
| Við heitum Auðunn Fannar og Jóhann Ívar. |
|
|
Um mig:
Auðunn Fannar Fæddist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hvorki meira en minna þann 12.mars 2003 klukkan 15:04. 3 dögum eftir settna fæðingardag. Þegar hann fæddist var hann með smá dökkt hár og blá augu. Hann var 4185 grömm (16 og hálf mörk) og alveg 56 cm. Steina Þórey og Annar Rut frænka mín, tóku á móti mér og eru þær alveg æðislegar ljósmæður. Mömmu og pabba finnst ég vera sætasti og duglegasti stóri bróðir í heiminum. Auðunn: Nafn þetta er myndað af forliðnum "Auð" sem merkir ýmist ríkidæmi eða hamingja og viðliðnum "unn" sem merkir ást, - umhyggja. Fannar: Nafn þetta er myndað af forliðnum "Fann" sem merkir snjór og viðliðnum "ar" sem merkir hermaður. | View | Add Favorite
Jóhann Ívar Fæddist á Herlev sjúkrahúsi í Danmörku þann 28.ágúst 2008 klukkan 04:32. 2 dögum fyrir áætlaðann fæðingardag. Hann var 4245 grömm og 55 cm. Aðeins þyngri og styttri en bróðir sinn. Ljósmóðirin sem tók á móti litla prinsinum heitir Ulla og var hún líka alveg yndisleg. Hann er litli prinsinn á heimilinu og er einn sá fallegasti ásamt bróður sínum sem mamman og pabbi hafa augum litið. Jóhann: Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur. Ívar: Nafn þetta er talið vera víxlmynd við nafnið Ingvar Við eigum heima í Danmörkinni góðu og búum á Kagså kolleginu í Herlev sem er á Kaupmannahafnarsvæðinu. Mamma og pabbi útskrifuðust sumarið 2008 og er mamma okkar geislafræðingur og pabbi okkar byggingarfræðingur. |
|
|
Hér fyrir ofan er ég í hjólatúr með mömmu minni, pabba og Auðunni Fannari
Mamma okkar heitir Helga Auðunsdóttir og er 26 árs gömul (fædd1983). Pabbi okkar heitir Hafþór Hilmarsson og er 31 ára gamall (fæddur 1978). Við erum öll úr Bítlabænum Keflavík;) Fjöskyldan hennar mömmu: Amma mín heitir Agnes Ármannsdóttir og er sjúkraliði, afi minn hét Auðunn Þór Garðarsson, en ég á annan afa sem heitir Helgi G Steinarsson og hann er málari. Mamma á 2 alsystur þær Aníta 21 ára og Sigurbjörg (Bagga) 18 ára, hún á 2 hálfbræður Sverrir og Garðar og svo á hún líka stjúpsystur þær Jóhönnu og Lindu. Fjölskydan hans pabba: Amma mín heitir Jórunn Garðarsdóttir og er geislafræðingur og afi minn heitir Hilmar Magnússon og var skipstjóri. Pabbi á 1 systur sem heitir Guðrún og 2 bræður sem heita Helgi og Ásgeir.
Fiskarnir 19. febrúar - 20. mars Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum. ELSKU MAMMA OG PABBI Ég er með svo litlar hendur, ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir, farðu hægt svo ég geti fylgt þér eftir. Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt, ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég tala við þig, þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar, ekki skamma mig,leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vitlaus. Ekki búast við að myndin sem ég teikna, eða rúmmið sem ég bý um verði fullkomið, elskaðu mig bara fyrir að reyna. Mundu að ég er barn, ekki lítil fullorðin vera, stundum skil ég ekki það sem þú segir. Ég elska þig svo mikið, elskaðu mig bara fyrir að vera ég, ekki fyrir eitthvað sem ég geri.
|
| Þú ert gestur nr. 78952 |