~ Ég heiti Arnar Freyr Böðvarsson ~



Um mig:
Ég fæddist á Landspítala Háskólasjúkrahúsi miðvikudaginn 27 ágúst 2003. Ég var 4600 gr og 55 cm. Ég fæddist með ljóst hár og blá augu. Þegar ég var að fæðast slitnaði naflastrengurinn og við það missti ég töluvert blóð og fór á vökudeildina fyrstu tvo dagana.
Mamma mín heitir Helena, pabbi Böðvar, bróðir minn Guðmundur Freyr og er 12 ára og systir mín Þóra Regína og er 9 ára. Þeim finnst ég yndislegastur og algjört yfirkrútt.







Annað:
~ Sólskinsbarn ~


Hann er ljóshærður og laglegur
Hann er ljúfur eins og vor.
Stráir ástríku yndi
við hvert einasta spor.
Hann er elskaður af öllum,
og í athöfnum dyggur.
Hann er sólskinsbarn síglatt.
Hann er saklaus og tryggur





~ MEYJAN ~

23. ágúst - 22. september


Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra












~ Kenya Mist ~




~ Óliver Baldvin ~




~ Þorkell Valur ~












Þú ert gestur nr. 12030