Ég fæddist á LHS, sunnudaginn 7. mars 2004 kl. 11.25. Þá var ég 3610 g og 53 sm. Ég er með dökkgrá augu og mikið dökkt hár. Mamma mín heitir Elsba Hauksson og er frá Klaksvík í Færeyjum og pabbi minn heitir Kristinn Hauksson og er frá Dalvík. Ég á tvö stór systkini sem heita Haukur (fæddur 24.03.95) og Eva Björk (fædd 12.12.96).

Ég er í fiska stjörnumerkinu
Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.
    
Stóri bróðir minn
     
Stóra systir mín
|