Um okkur:
Við erum yndislegir bræður og miklir vinir. Við búum í Reykjavík með mömmu okkar og pabba en eigum afa og ömmur austur á Norðfirði og reynum því að fara þangað reglulega:)
Steinþór Snær fæddist 6 maí 2004 klukkan 22:19 og var tekinn með keisara. Hann vó 3460 grömm og var 50,5 cm. Þegar hann fæddist var hann með mikið dökkt hár og dökkblá skásett augu. Nú er árið hans orðið ljóst og augun ljósblá.
Björn Diljan fæddist þann 9 júní 2006 kl 00:04. Fæðingin gekk mjög vel og hann vó 15 merkur og 52 cm. Hann fæddist með dökkt hár og dökk skásett augu.
Elsku barnið mitt
Í dag ætla ég að...
-Brosa til þín þegar augu okkar mætast og hlæja þegar mig langar frekar að gráta...
-Leyfa mér að vakna mjúklega, vafin inn í sængina þína, og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúin fyrir nýjan dag...
-Leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í og hrósa þér fyrir frábært val...
-Gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér útá leikvöll..
-Slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur...
-Leyfa þér að busla í baðinu og ekki verða reið útaf vatninu sem fer á gólfið...
-Leyfa þér að vaka lengi og við skulum skoða stjörnurar saman...
-Kúra hjá þér eins lengi og þú villt, þó að ég missi af uppáhalds þættinum mínum..
-Ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig..
Ég er svo heppin að eiga þig og bið ekki um neitt...
..nema annan dag með þér!
Mamma okkar heitir Erla Björnsdóttir og pabbi heitir Hálfdan Steinþórsson og þau eru bæði frá Neskaupstað.
STJÖRNUMERKIN OKKAR
Nautið
20. apríl - 20. maí
Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. "Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?" Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.
|