Velkomin á heimasíðuna okkar
Við erum sætu systurnar Embla Karen 5 ára og Gerður Lind 1. árs


Um okkur
Embla Karen fæddist 8. mars 2004 og var 3870 gr. og 51,5 cm. Hún var með dökkt og mikið hár þegar hún fæddist. Algjör bjútíbolla. Embla lét sko ekkert bíða eftir sér. Hún átti að fæðast 9. mars á afmælisdegi ömmu Jóhönnu en ákvað að eiga sér dag og fæddist um kvöldið 8. mars. Embla Karen er alveg rosalega dugleg stelpa með gott hjarta eins og konurnar á leikskólanum segja :). Emblu finnst skemmtilegast að leika úti. Embla Karen er byrjuð að æfa fimleika og er algjör fimleikadrotting . Embla Karen var ekki skýrð í höfuðið á neinum. Foreldrunum fannst þetta bara svo fallegt nafn.


Gerður Lind fæddist 1. Desember 2007. Hún var 3670 gr og 49 cm. Hún var líka með mikið dökkt hár þegar hún fæddist, annað eins hefur bara ekki sést. Algjör bjútíbolla eins og systir sín. Gerður Lind átti að fæðast 10. Desember en kom 10 dögum fyrir tímann mömmunni til mikillar ánægju. Gerður Lind er búin að stækka og dafna ótrúlega vel og er sko algjör fjörkálfur :). Gerður Lind var skýrð í höfuðið á föðurömmunni Gerði en Lind er út í loftið.

Foreldrar okkar heita Helena "82 og Sverrir "80 og erum við gullmolarnir þeirra :)



Nýjar myndir settar inn 29. Júlí (fullt af myndum) :)






Embla Karen Sverrisdóttir
FISKARNIR
19. FEBRÚAR - 20. MARS

HIÐ DÆMIGERÐA FISKABARN ER YFIRLEITT HÆFILEIKARÍKT OG VEL GEFIÐ EN VIÐKVÆMT OG EKKI ÓLÍKLEGT AÐ MISSI STJÓRN Á TILFINNINGUM SÍNUM OG BRESTI Í GRÁT AF ENGIRI SJÁANLEGRI ÁSTÆÐU. FISKAR ERU GJARNIR Á AÐ FÓRNA SÉR FYRIR AÐRA. MIKILVÆGT ER AÐ FARA VARLEGA AÐ FISKUNUM OG VARAST AÐ SÆRA TILFINNINGAR ÞEIRRA MEÐ VANHUGSUÐUM ORÐUM. FISKAR ERU MJÖG SKAPANDI OG ÞEIR GETA SKAPAÐ SINN EIGIN HEIM ÞAR SEM ÞEIR FINNA TIL ÖRYGGIS ÞEGAR HINN HARÐI HEIMUR REYNIST ÞEIM OFVIÐA ÞÁ FLÝJA ÞEIR INN Í SINN EIGIN. ÞVÍ ER MIKILVÆGT AÐ HVETJA LITLA FISKINN TIL AÐ KOMA ÚT ÚR SKEL SINNI OG TAKAST Á VIÐ LÍFIÐ, HVETJA HANN TIL AÐ SEGJA SKOÐUN SÍNA HREINT ÚT. FORELDRAR ÆTTU EINNIG AÐ HLÚA AÐ LISTRÆNUM HÆFILEIKUM BARNSINS EF ÞEIR KOMA FRAM. FISKURINN ER Í EÐLI SÍNU VINGJARNLEGUR OG SKILNINGSRÍKUR EN JAFNFRAMT UMBURÐALYNDUR. HANN Á T.D. ERFITT MEÐ AÐ TRÚA NOKKRU MISJÖFNU UM AÐRA OG ER ÞVÍ ALLTAF JÁKVÆÐUR Í FYRSTU GAGNVART ÓKUNNUGUM.




Gerður Lind Sverrisdótir
BOGMAÐURINN
22. NÓVEMBER – 21. DESEMBER

HINN DÆMIGERÐI BOMAÐUR ER ATHAFNAMAÐUR SEM ÞARF HREYFINGU, LÍF OG FJÖLBREYTNI. HONUM ER ILLA VIÐ VANASTÖRF OG VERKEFNI SEM EKKI ERU ÖGRANDI. HANN FÆR LEIÐ Á ÞVÍ SEM HANN KANN OG VELDUR OF AUÐVELDLEGA. AÐ SAMA SKAPI Á HANN ERFITT MEÐ AÐ SITJA LENGI KYRR Á SAMA STAÐNUM. HANN ÞARF SVIGRÚM OG FRELSI. ALLT ÞAÐ SEM ÞRENGIR SJÓNDEILDARHRING HANS, FESTIR HANN NIÐUR OG HINDRAR HREYFINGU ORKAR ÞVINGANDI Á HANN.









LOTNING

DÓTTIR OKKAR HAFÐI SOFNAÐ FAST
MEÐ AÐRA ÖRSMÁA HENDINA
ÚT UNDAN SÆNGURFÖTUNUM
Í HENNI HELT HÚN
HJARTA MÍNU








Láttu nú ljósið þitt
lýsa upp rúmið mitt,
hafðu þar sess og sæti
signaður Jesús mæti.
Ég fel í sérhvert sinn
sál og líkama minn
í vald og vinskap þinn
vörn og skjól þar ég finn
(Hallgrímur Pétursson)







Leiddu mína litlu hendi
Ljúfi faðir þér ég sendi
Bæn frá mínu brjósti sjáðu
Blíði Jesú að mér gáðu







MUNIÐ AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA (",) Það er svo gaman að sjá hverjir koma í heimsókn ;)
Þú ert gestur nr. 25227