|
Núna eru
online |
|
|
Um mig:
Ég fæddist á Landspítalanum 5. september 2004 kl 05:16 á afmælisdag föðursystir mömmu sem heitir Erla. Ég var 16 merkur
54 cm og 38 cm í höfuðumál. Mamma mín heitir Sigríður Ósk og pabbi minn Gísli Steinþórsson. Ég fæddist með dökkblá augu, og ljóst hár og var skírður Steinþór Örn í höfuð á afa mínum í föðurætt. Ég bý með mömmu minni í Reykjavík og er á Leikskólanum Hof. Mér og mömmu finnst voða skemmtilegt að fara í sund og vera úti að leika. Ég er byrjaður að læra stafina mamma er svakalega stolt af mér enda er líka algjör gullmoli :)
Meyjan 23. ágúst - 22. september Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðartilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.
|
|
|
Annað:
Til þín
Það besta sem þú eyðir í barnið þitt er tími!
Pabbi er Maðurinn
Hvaða maður sem er getur orðið faðir. Það þarf einstakan mann til að vera pabbi
EF KARLMENN GENGU MEÐ BÖRNIN? Væri barneignarfrí á fullum launum lágmark tvö ár... Væri búið að finna lækningu við appelsínuhúð... Væri "náttúruleg" fæðing úr sögunni... Væri morgunógleði talið helsta heilsuvandamál þjóðarinnar... Væri árangur getnaðarvarnapilla 100%... Væru börn geymd á spítalanum þar til þau kynnu sjálf að fara á kopp... Væru menn æstir í að binda sig... Væru tvíburar ekki svona rosalega krúttlegir í þeirra augum... Yrðu synir að vera komnir heim af stefnumótinu klukkan tíu á kvöldin... Væru skjalatöskur notaðar sem bleyjugeymsla... Væru óléttuföt helsta tískuframleiðsla heims... Væru þeir rúmliggjandi alla níu mánuðina... Myndu konur stjórna heiminum...
Birkir Þór Kristjana Ása Sumarliði Viktor Andri Írís Antonía Erna Alexandra Benedikt Emil Mikael Smári Vilhelm Leví Elsa Vala |
| Þú ert gestur nr. 19367 |