ATH nú erum við systkinin komin með systkinasíðu þar sem allt það nýjasta er. Þið getið enn skoðað allt gamla hér og gamlar myndir af mér. En endilega kíkið þangað til að sjá það nýjasta hjá okkur :) Heimasíðan okkar er www.sveinbjornsborn.barnaland.is

Velkomin á heimasíðu Hildar Arneyjar, litlu kraftaverkastelpunnar okkar.
Hún fæddist þann 14. febrúar 2005 kl. 00:05, rétt beið fram yfir miðnætti til að ná að verða valentínusarprinsessa.
Hún var 1505 gr. eða 6 merkur að þyngd og 41 cm. að lengd. Hún var mjög brún með svart hrokkið hár og með dökk augu, sem voru reyndar lokuð fyrst um sinn. Hún fæddist eftir rúml. 29 vikna meðgöngu, 11 vikum fyrr en áætlað var. En mamma var með leghálsbilun og var búin að liggja inn á meðgöngudeild í mánuð fyrir fæðingu.






Mamma heitir Drífa Baldursdóttir og pabbi Sveinbjörn Hafsteinsson. Hildur Arney er svo heppin að eiga tvö systkini. Benedikt stóra bróður sem er 6 ára og Lillu litlu systur sem fæddist 11 febrúar 2007.

Hér er smá myndasýning með myndum af Hildi Arneyju og lífi hennar fyrstu tvö árin. Endilega tillið ykkur og njótið sýningarinnar, sem tekur örfáar mínútur.




Fæðingin gekk mjög vel. Mamma var búin að vera að reyna að halda lillunni inni í margar vikur, með fullstyttan legháls og smá útvíkkun. Að morgni 13 febrúar þá fór vatnið svo. Óvíst var hvað tæki við og hvort reyna ætti að láta mömmu liggja lengur. En um kvöldmataleyti var ljóst að hríðarnar voru að byrja fyrir alvöru og útvíkkunin orðin um 5. Hríðarnar urðu svo harðari og útvíkkunin jókst jafnt og þétt, en stoppaði svo í 9 í langan tíma, því leghálsinn vildi ekki opnast meira. Klukkan 23:30 kom svo ný ljósmóðir á vakt, hún Hrafnhildur Ólafsdóttir. Stuttu seinna gaf leghálsinn sig loks alveg og lítil stúlka fæddist í einum rembingi klukkan 00:05 að viðstöddum heilum her af læknum og hjúkrunarfólki.
Hún var ótrúlega lítil og viðkvæm og alveg ótrúlega falleg. Naflastrengurinn var klipptur um leið og litla daman tekin í burtu. Hún grét svo smá, fallegasta gráti sem heyrst hefur og við fengum að sjá hana rétt aðeins, áður en hlaupið var með hana yfir á vökudeild.



Hildur Arney var fyrstu tvo mánuðina í lífi sínu á vökudeildinni þar sem hugsað var mjög vel um hana. Hún fékk öndunarhjálp fyrstu dagana og var í ljósum vegna gulu, en það er mjög algengt að fyrirburar fái gulu. Hún var í hitakassa í mánuð, en fékk svo að fara yfir í vöggu.
Hún var mjög dugleg og þurfti bara að stækka og læra að drekka áður en hún fékk að fara heim. Þann 11. apríl 2005 fékk hún svo loks að koma heim til okkar.
Í vefdagbókinni hennar er hægt að lesa um dvölina á vökudeildinni, við skrifuðum þangað inn daglega.


~ Myndband frá vökudeildinni ~
Kveikjið á hátölurum því við settum fallegt lag undir

Við viljum þakka öllu frábæra starfsfólkinu á meðgöngudeildinni og vökudeildinni fyrir allt sem þau gerðu fyrir okkur :)




Seinna sömu nótt og Hildur Arney fæddist, kl. 04.59, tæpum 5 klukkustundum síðar - þá fæddist svo litli frændi hennar, valentínusarprinsinn hann Einar Magni. En Brynja systir hennar mömmu á hann. Systurnar lágu saman á sængurkvennagangi og frændsystkinin voru saman upp á vökudeild. Prinsinn var 9 merkur og 42 cm. (Fæddst eftir tæplega 34 vikna meðgöngu). Frændsystkinin eiga því sama afmælisdag og eru "uppnefnd" Valentínusartvíburarnir og Tvíburafrændsystkinin.
Einar Magni á líka heimasíðu hér á barnalandi, þú getur fundið hana hér á síðunni okkar undir "tenglar" :)

Amma og afi í Borgarnesi urðu ansi rík þessa nótt :) Nú eiga þau 6 barnabörn











turtle

Benedikt stóri bróðir

turtle

Lilla litla systir


ATH: Undirsíðurnar á heimasíðunni eru læstar og þarf að nota aðgangsorð til að komast á þær. Endilega sendið póst og biðjið um það. Við erum ekkert það hörð á aðganginum ;) (og fyrirburaforeldrar, ekki vera feimin að biðja um aðgang :))




Núna eru

í heimsókn á síðunni hennar Hildar Arneyjar





Þú ert gestur nr. 58723