Verið hjartanlega velkomin á heimasíðuna okkar!
Við erum bræðurnir Einar Berg og Jón Sigfús Viðarssynir.


Um okkur:
Einar Berg er frumburðurinn sem fæddist á Landspítalanum þann 23. ágúst 2003 og vóg heilar 16 merkur og var 52 cm langur. Fæðingin var nú svolítið strembin en það er nú löngu gleymt. Einar var eiginlega ekkert á því að koma út en svo kom læknirinn og náði bara í hann. Hann er nú mjög þakklátur fyrir það í dag, alveg alsæll með lífið og alltaf brosandi! :)

Jón Sigfús fæddist á Akureyri þann 20. mars 2006 og var 53 cm og 4053 grömm. Greinilega mjög gott að vera í bumbunni hennar mömmu því Jón Sigfús ákvað á miðri leið að hætta bara við að koma út og vera bara inn í bumbunni á mömmu svo hann var líka tekinn með keisara :) Annar brosandi gullmoli! :)

Mamma okkar heitir Soffía og er úr Njarðvíkunum og pabbi okkar Viðar er frá Hofsósi. Það er von okkar að mamma og pabbi standi sig vel í að uppfæra þessa síðu, svo allir nærstaddir geti fylgst með uppvexti okkar. Ef ekki, er ykkur kærkomlega velkomið að segja mér frá því.

Endilega vottið á okkur línu í gestabókina svo ég viti hverjum ég eigi að þakka innlitið.





Þú ert gestur nr. 50584