![]() |
Ég heiti Guðrún Kristín og er 15 ára
|
|
|
Um mig:
Ég fæddist á Landsspítalanum 8 febrúar 1996 ég var 17,5 merkur og 56 cm ég var alveg svart hærð þegar ég fæddist og með brún augu.Ég á tvær litlar systur þær heita Sara Karen hún er 13 ára og Anney Birta 9 ára
mamma mín heitir Guðrún Bergmann Franzdóttir og pabbi minn heitir Jóhannes Geir Rúnarsson Áhugamál mín eru sund ég æfi sund með Ægir, Handbolti æfi með ÍR línuskautar,skautar og hjóla. Nafnið Guðrún merkir; Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun. og nafnið Kristín merkir; Nafn þetta er komið af latneska orðinu "christiana" sem merkir sú sem fylgir Kristi. Endilega kíkið á síðurnar hjá systrum mínum Sara Karen og Anney Birta
Vatnsberi. Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass. |
|
|
|
Annað:
|
| Þú ert gestur nr. 25848 |