Ég heiti Álfrún Hanna og er 4 ára gömul prinsessa


Um mig:
Ég fæddist 30. desember 2004 og var 14 og 1/2 mörk (3650 g) og 51 cm. Margir sem eiga afmæli seint á árinu reyndu að telja mér trú um að koma eftir áramót. Ég hafði hins vegar aðra skoðun á því og rétt náði að koma mér í heiminn fyrir áramót. Enda hefur það sannað sig að ég er ákveðin stelpa og veit sko alveg hvað ég vil ;)
Anna og Ragnhildur, ljósmæðurnar sem tóku á móti mér, sögðu að ég væri fallegasta barn sem þær hefðu tekið á móti og mömmu og pabba finnst ég fallegasta barn í heiminum. Foreldrar mínir eru Rósa Björg Ómarsdóttir og Gissur Þórhallsson og eru ótrúlega stolt af mér.
Í dag er ég orðin 4 ára gömul skotta og er stór og dugleg stelpa og einstaklega brosmild :)
Fyrstu 10 mánuðina af ævi minni bjuggum við heima hjá ömmu og afa í Lækjarsmára og þar blómstraði ég af allri athyglinni. Núna erum við loksins flutt í íbúðina okkar og það er bara betra en ég bjóst við ;).




Annað:
Nafnið mitt þýðir:

Álfrún

Nafn þetta er myndað af forliðnum "Álf" sem merkir huldumaður, - vættur og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.

Nafnið er talið merkja leyndardómur.

Hanna

Nafn þetta er komið af hebreska biblíunafninu "Hannah" sem merkir ég er í náðinni hjá guði.


Steingeitin í bernsku

Steingeitin er eftirtektarsöm, athugul og vill hafa fæturna á jörðinni. Hún er ekki sveimhuga eða draumlynd, heldur tekur vel eftir umhverfinu og heimi hinna fullorðnu. Hún er raunsætt barn, sem oft er foreldrum sínum mikil stoð og stytta.

Foreldrar Steingeitar reka sig fljótt á að litla geitin er dugleg og fullorðinsleg. Hún er ekki barn í þeirri merkingu að allt er sett á ábyrgð annarra, heldur vill hún þvert á móti taka á sig alla þá ábyrgð sem hún getur valdið, með tilliti til aldurs hverju sinni.

Segja má um Steingeitina að hún sé alvarleg og oftast þæg, hjálpsöm og fyrirferðarlítil, þó auðvitað geti gustað af henni. Hún er hins vegar fyrirferðalítil í þeirri merkingu að hún spjarar sig yfirleitt vel í skóla og því þarf ekki mikið að reka á eftir henni.

Mikilvægt er, þegar Steingeit er annars vegar, að kenna henni að tjá tilfinningar sínar, og sömuleiðis að slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar. Það þarf oft að ýta undir léttleika og skopskyn hennar og segja henni að hún þurfi ekki alltaf að vera fullkomin.

Helsti styrkur og um leið veikleiki Steingeitarinnar er einmitt fullkomnunarþörf og tilhneiging til að vilja axla ábyrgð heimsins, ef svo má að orði komast. Taka á sínar herðar allt sem miður fer og kann að fara í umhverfinu. Hún er metnaðargjörn, í þeirri merkingu að allt sem hún gerir og hefur á annað borð áhuga á, það vill hún gera vel.

Það þarf því að kenna henni að slaka á. Jafnframt þarf að varast að gera of miklar kröfur til hennar. Hún sér yfirleitt um slíkt sjálf og verður þung ef hún er beitt of miklum ytri þrýstingi.

Það er sagt, bæði í gamni og alvöru, að Steingeitin fæðist gömul og síðan yngist hún með aldrinum. Það er nokkuð til í þessu, og því má segja að foreldrar hennar séu að ala upp gamla sál.


ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ

Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.

Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.

Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.

Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.

Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.

Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.

Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.

Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.

Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.

Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.

Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.







Eva Rakel

Vinkona mín í Danmörku



Emma Karen

Sæta prinsessa



Silvana Ósk

Vinkona mín



Camilla Rún

Vinkona mín



Halldóra Ísold

Vinkona mín



Jasmín Sara

Vinkona mín



Natalía Tinna

Vinkona mín

Karl Ýmir
Vinur minn




Ég er orðin svona gömul
Lilypie Baby Ticker


Endilega skrifaðu í gestabókina
Þú ert gestur nr. 18545