 

Katrín Helga er 8 ára skvísa sem veit hvað hún vill ;) Á fallegum degi þann 22.desember 1998 fæddist hún á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og á öðrum fallegum degi þann 05.október 2004 eignaðist hún litla systir og sú snót ber nafnið Anna Steina og hún er 2 ára. Katrín var 12merkur og 49 cm og Anna Steina var 14 merkur og 51 cm við vorum báðar voða litlar og sætar. Bangsi var ábyggilega líka voða sætur þegar hann fæddist , hann var eini hvolpurinn sem fékk að lifa svo við vorum voða heppinn að fá hann því hann er svo góður. Hann heldur samt að hann geti lamið alla ,voða töffari en svo erum við systurnar nú líka algjörar skvísur..
Anna Steina er orðin dugleg að tala og hún er þessi týpa að vera mamman í hópnum.
Svo er hún Katrín alltaf sama Katrínin :)
Góða skemmtun að skoða síðuna okkar
Katrín
Nafn þetta er fengið af gríska orðinu "katharós" sem merkir hreinn, - hin hreina.
Helga
Nafn þetta er komið af lýsingarorðinu "heilagur".
Elsku yndislegu dætur mínar
Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar.
En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska ykkur mikið.
Mig langar til að segja ykkur hug minn.
Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið ykkur inn í líf mitt.
Þið eruð mér allt.
Þið eruð súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa.
Hamingjan mín hófst með komu ykkar í þennan heim.
Í dag horfi ég á ykkur og er hissa á því hvað þið eruð raunverulegar.
Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið ykkur inn í líf mitt, og að fá að hafa ykkur mér við hlið í gegnum lífið.
Þið eruð gullin mín, fjársjóðurinn minn.
Ég hef reynt að læra sem mest af ykkur í gegnum tíðina.
Ég reyni að meta ykkur að verðleikum.
Þúð hafið kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við.
Hvar væri ég án ykkar?
Ég elska ykkur elsku dætur mínar, nú og að eilífu.
Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar.
Vingjarnleiki
Vogarbarnið er yfirleitt þægilegt viðureignar, ljúft og skapgott. Það er að upplagi glaðlegt og broshýrt og getur verið aðlaðandi og vingjarnlegt. Það kemur fljótt í ljós að Vogin er merki félagslegrar samvinnu.
Fegurð
Vogin er listræn og fegurðarelskandi. Mikilvægt er að foreldrar hlúi að þessum eiginleikum og skapi barninu aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína. Að sama skapi er mikilvægt að foreldrar taki tillit til þess að umhverfi barnsins þarf að vera litríkt og fallegt. Það þarf að geta skreytt herbergi sitt og æskilegt er að það geti átt falleg föt sem eiga vel saman hvað varðar liti og þess háttar. Vogin er einnig næm fyrir hávaða og rifrildi foreldra geta lagst illa í Vogarbarnið og bælt jákvætt og bjart eðli þess.
Vinamergð
Vogin er félagslynd og þarf í raun öðrum merkjum framar á fólki að halda. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt. Þegar allt leikur í lyndi er það á hinn bóginn opið og hresst og oft vinsælt og vinamargt, jafnvel svo að allt hverfið virðist búa heima hjá því.
Sjálfstraust
Stundum virðist sem Vogin hafi lítinn viljastyrk. Hún fær áhuga á ákveðnu máli en missir hann og leitar að nýju viðfangsefni. Ef hún mætir mótbyr eða vinir hennar eru ósammála henni eða gagnrýna gerðir hennar á hún til að hætta við verk sem hún er byrjuð á og ætlaði að vinna.
Sú hætta er til staðar að Vogin treysti á aðra án þess að leggja nokkuð af mörkum sjálf. Hún þarf því oft að læra að vera metnaðargjörn fyrir eigin hönd og standa á eigin fótum. Foreldrar Vogarbarnsins þurfa að vera á varðbergi gagnvart þessu og hjálpa því að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni, meðal annars með því að fela því ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku.
Þegar hin sígilda Vogarspurning: "Hvað finnst þér?" kemur, má til dæmis svara: "Hvað finnst þér sjálfri?" Síðan þarf að gefa Voginni næði til að vega og meta, áður en hún tekur ákvörðun. Foreldrar hennar þurfa því að varast að vera óþolinmóðir og grípa fram fyrir hendur hennar og ætla að stjórna henni um of. Ágætt er til dæmis þegar hún er að klæða sig að bjóða henni alltaf tvo valmöguleika. "Hvort viltu fara í rauðu eða gulu peysuna?" o.s.frv.
Félagslíf
Til að vel gangi með litla Vogarbarnið er mikilvægt að skapa því félagslega lifandi umhverfi, gefa því kost á að umgangast jafnaldra sína og taka þátt í félagslífi, þegar það eldist. Einnig er rétt að Vogin fái að rækta listræna hæfileika, ef hún sýnir áhuga og fái stuðning til að vinna úr hugsunum, hugmyndum og tjáningu.
Krabbahundar sýnast oft geðvondir og eins og á varðbergi. En undir niðri eru þeir bæði viðkvæmir og fullir hlýju. Þeir leggja mikið upp úr því að eiga gott heimili og eru því góðir til undaneldis, sama hvort um tík eða hund er að ræða. Þegar krabbahundurinn hefur náð hvort heldur sem er bolta, beini eða frisbí-diski myndi hann frekar missa löppina en sleppa því sem hann hefur náð að setja tennurnar í. Hann er því varasamur andstæðingur.
ÓSKIR MÍNAR
Ég óska þér hamingju,öryggis,þæginda og visku. En það má bíða. Fullnægðu ævintýraþrá þinni áður...
Ég óska þér skapandi löngunar og bið þess að löngunin til að eyðileggja nái aldrei tökum á þér...
Hvernig gæti ég óskað þér nokkurs ? Nema þess að þú fáir það sem þú vilt gera og gerir það vel...
Ég óska þess að þú megir eignast fegurð þagnarinnar,dýrð sólarljóssins,leyndardóm myrkursins,afl eldsins,kraft vatnsins,sætleika loftsins,þöglan styrk jarðarinnar,ástina sem er undirrót alls. Ég óska þér dásemda lífsins.
Hver er heitasta ósk mín ?
Að þú öðlist trú á dýpstu verðleika mannkyns - og það á einnig við um verðleika þína,elskan mín...
Ég óska þér ástar. Rómantískra stunda. En einnig ástar þeirra sem liggja hlið við hlið í myrkrinu og tala um liðna tíð. Ég óska að þú megir sjá uppteygða barnsarma,finna blauta og klístruga kossa. Strjúka fínlegt kettlingstrýni. Heyra feginshljóð í tryggum hundi. Finndu uppörvandi snertingu,horfðu á blik í augum,heyrðu lykli snúið í skrá.
ÉG ÓSKA YKKUR DÓTTUR EINS OG ÞIÐ ERUÐ.
Börn eru og verða alltaf börn, við þurfum að leyfa þeim að vera börn eins lengi og hægt er! Við megum ekki ætlast til að þau vaxi hratt og verði skynsöm, iðin og framúrskarandi fyrr en þau hafa notið æskunnar.
|