|
Ég heiti Anney Birta og er 8.ára hetja. ![]() |
|
|
Um mig:
Ég fæddist á landsspítalanum 27 maí 2002 ég var aðeins 12 merkur og 48,5 cm ég var alveg með svart hár og dökk augu algjör dúlla ég á tvær stórar systur Guðrúnu Kristínu 14 ára og Söru Karen 12 ára
mamma mín heitir Guðrún Bergmann Franzdóttir og pabbi minn heitir Jóhannes Geir Rúnarsson. Uppáhalds litur minn er Bleikur. Mér finnst rosa gaman í skólanum mínum hann heitir Seljaskóli, Kennarinn minn er alveg frábær og er rosa góð við mig. Aðaláhugamálin mín eru dans,söngur,sund og margt fleira
Systur mínar eru einnig með síður á barnalandi endilega kíkið á síðurnar Guðrún Kristín Sara Karen
|
|
|
Annað:
Þegar ég var aðeins 3 daga gömul kom í ljós að ég var með mjög alvarlegan hjartagalla sem nefnist Truncus Arteriousus eða á Íslensku sameiginlegur slagæðastofn sem þýddi að ég varð því að fara strax út til Boston í hjartaaðgerð þar sem gert var við hjartað mitt það þurfti að loka á milli neðri hólfa (VSD) svo þurfti aðeins að breyta hjartanu mínu því slagæðarnar voru samvaxnar sú æð sem fyrir var, var sett niðrí vinstra hólf og grædd var í mig gerviæð frá lungnaæðinni í hægra hólf svo þurfti að víkka út hægri lungnaæðina, gekk þetta allt mjög vel en ég hef þurft að fara 5 sinnum eftir það þrisvar til að láta blása í æðina og láta stoðnet en svo hin skiptin til að skipta út æð og vonandi þarf ég ekki að fara út aftur fyrr en í fyrsta lagi eftir 5 ár en það þarf að fylgjast með hjartanu mínu alla mína tíð því það getur komið þrenging eða þá að ég stækka mikið og það þurfi að skipta um æð og fá stærri en sem betur fer hefur þetta alltaf gengið mjög vel enda er ég algjör HETJA.
Nafnið Anney þýðir; Nafn þetta er samsett úr forliðnum "Anna" sem merkir náð og viðliðnum "ey" sem merkir hamingja, - lukka. Anney ætti því að vera frekar heppin. og nafnið Birta merkir; Ýmist talið að hér sé um að ræða íslenska orðið birta, - ljómi, eða þá að nafnið sé komið frá Norðurlöndum og sé leitt af nafninu Birgitta sem merkir hin háa.
Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.
Til þín Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til
Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær hjálp veitt á þessum degi Vertu nú yfir og allt um kring Með eilífri blessun þinni Sitji Guðs englar saman í hring Sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Prestshólum Endilega kíkið á síðuna hjá Hjartveikum börnum HJARTABÖRN Gististaður í Boston hjá Hauk og Ingu
Gestabók |
| Þú ert gestur nr. 88230 |