| "Velkomin/n á heimasíðuna okkar" |
| Við heitum Sigurbjörg og Sigurður Óskarsbörn |
|
Um mig:
"Áður en ég myndaði þig í móðurlífi, útvaldi ég þig, og áður en þú komst af móðurkviði, helgaði ég þig." Ég heiti Sigurbjörg Líf Óskardóttir og er "eyjapæja" Það var mikið fyrir mér haft, því mamma kom alla leiðina frá Rúmeníu til Vestmannaeyja til að fæða mig. En það var líka alveg þess virði ! Ég fæddist á Heilsugæslustöð Vestmannaeyja þriðjudaginn 29. apríl 2003 klukkan 10:56. Fyrsta manneskjan sem ég sá í þessum heimi var Guðný Bjarnadóttir, en hún var ljósmóðirin mín :) Ég var 4.574 gr og 56 cm. Ég fæddist með mikið dökkt hár og blá augu !! Algjör gimsteinn. Öllum fannst ég líkjast bróður mínum honum Benjamín Elí, þá finnst mér ég bara rosalega heppin því hann er svo sætur :) Þann 22 júní 2005 eignaðist ég svo lítinn bróður og hann heitir SIGURÐUR DAN ÓSKARSSON og hann er algjört yndi. Ég er rosalega dugleg að hjálpa mömmu að passa hann. Stundum kannski helst til of dugleg ;) |
|
|
|
Annað:
Mamma mín og Pabbi heita Óskar Sigurðsson og Gunnlaug Rósalind Sigurðardóttir. Þau elska mig út af lífinu og segja að ég sé algjör "jarðýta" vegna þess að ég er alltaf á fullu. Ég finn mér alltaf eitthvað að gera !!!!!
En þeim finnst ég líka algjör prinsessa svo get ég líka verið rosalega blíð og góð og mér finnst frábært að kúra og knúsa mömmu mína og Pabba........ Ég á einn stóran bróðir sem er 8 ára og hann heitir Benjamín Elí Óskarsson og svo einn lítinn bróður sem heitir Sigurður Dan Óskarsson. Við eigum núna heima í Rúmeníu. Þar eru mamma og Pabbi að starfa sem trúboðar og sjá um hjalparstarf. Ég á lika ömmur og afa sem búa í Vestmannaeyjum. þau heita "Afi Siggi" "Afi Silli" og "Amma Sissa" og "Amma Krissa" þau elska mig út af lífinu og gera allt fyrir mig..... Ég á eina "langa"ömmu sem heitir Fanney og hún býr í Kópavoginum. Hún er algjört beuty !! Svo á ég ótrúlega mikið af yndislegum vinum og ættingum út um allt .. ENDILEGA KVITTIÐ Í GESTABÓKINA ÞVÍ ÞAÐ ER SVO GAMAN AÐ SJÁ HVERJIR KOMA Í HEIMSÓKN ..!!! |
| Þú ert gestur nr. 10118 |