Hæ og verið velkomin á heimasíðuna okkar
Ég heiti Mikael Viktor og er laaangflottastur og sætastur. Og nú er ég loksins búinn að fá litla systur, hana Önnu Láru


Um mig:
Ég fæddist á Landspítalanum 14.desember 2002 kl 00.08 og var 16 merkur og 52 cm takk fyrir,ég hafði lítið sem ekkert hár en augnlitur breyttist fljótt í bláan (svona eins og pabbi) Mamma og pabbi fóru á spítalann um morguninn en ekkert fór að gerast fyrr en um kvöldmatarleytið eftir mikla verki og þessa líka flottu mænudeyfingu. Ég var ekki á því að koma í heiminn á föstudeginum 13 svo ég lét því bíða aðeins eftir mér. Læknirinn kom svo upp úr 23 og ákvað að þetta tækist ekki án sogklukku (enda mamma alveg að tapa sér) Pabbi stóð sig eins og hetja meðan mamma hótaði lækninum öllu íllu ef hann færi ekki að ná mér út. Svo bara allt einu var ég kominn og pabbi klippti á naflastrenginn stoltur en ánægður yfir að þetta var búið.




Annað:
Litla snúllan fæddist þann 16. febrúar kl 00.12. Hún var 18 merkur og 54 cm. Fæðingin gekk eins og í lygasögu enda voru pabbi og Anna ljósmóðir það besta sem fyrir okkur gat komið meðan á þessu stóð
Þú ert gestur nr. 7009