Það er alltaf nóg að gera á Hagaflötinni en strákarnir dafna vel og stækka og stækka!!
Aron er á fullu í fótboltanum og unnu þeir félagar bikar á Norðurálsmótinu síðustu helgi. Aron stóð sig mig glæsibrag. Skoraði nokkur mörk, fagnaði með HM tilþrifum og varði nokkur mörk.
Hann er fullur sjálfstraust og finnst hann vera voða góður í öll því sem hann tekur sér fyrir hendur. Alltaf gott að hafa sjálfstraust!
Aron var að segja Vigdísi frænku sinni að hann væri nú bestur í vörninni í leikskólanum. Þá segir Marinó: Ég líka, ég líka. Þá heyrist í eldri drengnum: Nei, Marinó þú ert ekki bestur í vörninni þú ert bestur í að slást á leikskólanum" Ég veit ekki hvert ég ætlaði þegar ég heyrði þetta því það er nokkkuð til í þessu hjá honum!!!
Aron hefur haldið með Liverpool eins og pabbi sinn, innra með honum gerjast þó eigin skoðanir og er hann farinn að prófa sig áfram með lið eins og hann tilkynni Tinnu frænku sinni um daginn. Hann var staddur í heimsókn hjá henni og vissi að hún ætti MANJÚ glas (eins og hann segir): "Áttu ekki MANJÚ glas?" segir hann við Axel. Þá segir Axel: bíddu heldur þú ekki með LIverpool?" Æ, ég er aðeins að prófa mig áfram með lið!!! Svo alvarlegur í framan. Hann er farinn að banna mér að baka Liverool kökur til að verða ekki fyrir aðkasti frá strákunum!
Hann er nú búinn að missa tvær tennur í neðri góm og þriðja tönnin orðin laus í efri góm. Síðan tókum við eftir því í kvöld að einn jaxl er kominn upp. Honum fannst þetta voða skrýtið: " og hvaðan kom hann eiginlega"
Um daginn keypti hann sér 24" gírahjól en það er búið að vera draumurinn í nokkra mánuði. Hann ákvað að safna sér pening til að kaupa sér sjálfur hjól. Hann hætti að kaupa sér fótboltamyndir (sem hann biður um að kaupa á hverjum degi) og geymdi allan pening sem hann "fann" í húsinu, já, drengurinn má ekki sjá glitta í eitthvað að þá tekur hann það. Það þarf að passa sig á svona hröfnum :) Hann er samt klár strákurinn og sá fljótt að það tekur lengri tíma að safna klinki heldur en að fá bréfpeninga. Hann tilkynnti ömmu Petu það hróðugur að hann væri hættur í klinkinu og væri kominn í bréfpeningana. Góður!!!
Marinó stendur sig vel í leikskólanum. Alltaf kátur og glaður að fara á leikskólann að hitta krakkana og konurnar. Talar mikið um strák sem heitir Óli Rafn en þeir leika sér mikið saman í leikskólanum.
Marinó elskar að fara á "stóra" hjólið sitt en hann fékk hjólið hans Aron sem er með hjálparadekkjum. Arkar um á þessu út um allt. Mætti nú samt stundum fara hraðar þegar við erum að flýta okkur en það er margt sem heillar hann á leiðinni.
Hann er ákveðinn drengur sem lætur ekki segja sér hvað hann vill og síðustu misseri hefur hann tekið upp á því að vera þrjóskari en ....... og er ekkert að gefa sig þrátt fyrir ákveðni foreldrana. Þá er bara að bíða í 1 klst og halda sínu.
Hann er farinn að telja upp í 17 og er voðalega stoltur þegar hann er að telja hluti er búinn að telja í langan tíma en er að nota þetta meira núna þegar hann er að skoða umhverfið. Við vorum til dæmis í afmæli hjá Heiðrúnu Unu um daginn og fórum við Marinó út á pall þar sem sást í nokkra vinnukrana. Marinó fór að telja og komst að því að þarna voru um 9 kranar. Snillingurinn minn!!
Hann er algjör vinnukarl og elskar þegar hann fær að stússa með öðrum. Kannski verður hann smiður eins og afi Grímar!!
Látum þetta nægja í bili.





