Ég heiti Hugi Baldvin


Um mig:
Ég kom í heiminn þann 28. september 2004 og er því fimm ára.
Ég var nú ekki mjög stór þegar ég fæddist eða 3.775 grömm og 52 cm.
Núna er ég miklu stærri!
Pabbi minn heitir Helgi Magnús og mamma mín Helga Íris.




Annað:
Nöfnin mín:

Hugi - Nafn þetta er leitt af nafnorðinu "hugur" sem merkir hugsun, - áræðni.

Baldvin - Nafn þetta er tökunafn úr forngermönsku og er samsett úr forliðnum
"Bald" sem merkir djarfur og viðliðnum "wini" sem merkir vinur.

Hugi Baldvin þýðir því áræðinn og djarfur vinur!




LITLA VOGIN


Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr
og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá
hinum sem bíða á biðstofu læknisins.
Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum.
Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð
og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig.
Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur
orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar
allt leikur í lyndi er það opið og hresst.
Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn
og virðist oft hafa lítinn viljastyrk.
Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni
að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars
með því að fela henni ákveðin verkefni sem
reyna á ákvarðanatöku.
Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara
með því að spyrja: Hvað finnst þér?
Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta
hlutina áður en hún tekur ákvörðun.
Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að
þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu
til að þroska listræna hæfileika sína.


Þú ert gestur nr. 28357