|
| Ég heiti Róbert Páll... |
|
Um mig:
Ég fæddist á sjúkrahúsinu í Keflavík föstudaginn 12 maí 2000 kl 14:07. Ég var rosa stór og stæðilegur, 4250gr eða 17merkur og 54cm. Ég er fallegur prins með brún augu og ljósbrúnt hár.
Mamma mín heitir María G. Pálsdóttir og pabbi minn heitir Ari Gylfason svo á ég litla systir hana Köru Petru, hún fæddist 12 okt. 2004 :) Ég bý í Sandgerði og æfi með 6. flokk Reynis og geng í Grunnskólann í Sandgerði þar sem ég bý.. |
|
|
|
Annað:
Nafnið mitt:
Róbert Nafn þetta er tökunafn úr þýsku þar sem það er sett saman af nafnorðinu "hröth" sem merkir hróður, - frægð og lýsingarorðinu "beraht" sem merkir bjartur, - skínandi. Páll Nafn þetta er biblíunafn, fengið af lýsingarorðinu "paulus" sem merkir lítill. Stjörnumerkið mitt :) NAUTIÐ 20. apríl ? 20. maí Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. ?Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?? Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því. ELSKU MAMMA OG PABBI... Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér. Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig. Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna.
|
| Þú ert gestur nr. 6756 |