| Velkomin í heimsókn! |
| Við heitum Júlía Líf og Ragnheiður Lovísa. |
|
|
Júlía Líf, ljósálfurinn okkar, fæddist þann 14. desember 2004, kl. 17.18 og var 15 merkur og 51cm með dökkt hár, löng augnahár og guðdómlega falleg. Ragnheiður Lovísa, litli sólargeislinn okkar fæddist 30. júlí 2007, kl. 05.14 og mældist 18 merkur og 54 cm. Hún fæddist með mikið dökkt hár og svolítið brún og er guðdómlega falleg. Stoltu foreldrarnir heita Gunnsteinn og Gunnhildur Eva, þau eru bæði fædd árið 1980. Við búum í Kópavogi. |
|
|
Sætustu systurnar Mamma og pabbi kölluðu Júlíu Líf litla ljós og ljósálfinn sinn þegar hún var í bumbunni og hafa þau nöfn haldist við hana - Ragnheiður Lovísa gekk undir nafninu Sólargeislinn og vonanid helst það nafn við hana líka. Það segja segja allir sem okkur þekkja að við séum algjörir englar, gleðigjafar og að af okkur geisli ást og hamingja sem eins og ljós. Við erum er litlu ljósin í lífi mömmu og pabba og það sem heimur þeirra snýst um. Þau sjá ekki sólina fyrir fallegu prinsessunum sínum enda erum við það dýrmætasta og fallegasta sem þau eiga. Þau eru stoltið uppmálað og montin fram í fingurgóma yfir öllu sem við gerum og segjum. Elsku dætur, það er svo margt sem við óskum ykkur.. Ég óska þér ei auðlegðar né frægðar,heldur þess eins að hvert sem leið þín liggur muni þreytt hjörtu gleðjast yfir brosi þínu og líf í skugga njóta sólar um sinn, að leið þín verði ljósabraut sem engils spor um myrka nótt. (áletrun í enskri sveitakirkju) |
| Þú ert gestur nr. 56978 |