Við heitum Geirmundur Viðar og Kristján Snær


Um mig:
Geirmundur Viðar fæddist 14. júní 2004 kl 23:18. Hann var 18 merkur og 56 cm. Geirmundur Viðar var ekkert að flýta sér í heiminn, heldur kom 11 dögum eftir settan dag. Augnliturinn var blár og hárið dökkt. En nú er hann ljóshærður glókollur eins og mamma sín var þegar hún var lítil.
Kristján Snær kom í heiminn 13. október 2007, einnig 11 dögum eftir settan dag, svo þeir bræðurnir voru ansi samtaka í þessu. Hann var 16 og hálf mörk og 53 cm. Augnliturinn var blár enn hárliturinn mjög ljós, það litla hár sem var á höfðinu. Reyndar þá var hárbrúskur neðst á hnakkanum, svo hann fæddist með sítt að aftan.
Mamma okkar heitir Bryndís Elfa Geirmundsdóttir, hún er fædd árið 1978 og pabbi okkar heitir Sigurður Rúnar Hafliðason, fæddur 1977. Við búum á Selfossi.



Geirmundur Viðar er algjör bíladellukall, gröfur og vinnuvélar finnst honum líka æðislegar. Bubbi byggir er náttúrulega í uppáhaldi, bæði bækurnar og þættirnir. Alveg frá upphafi hefur allt sem hefur hjól heillað hann, hvort sem það er bíll, stóll á hjólum, vagn eða kerra. Hann er alger dundari og getur leikið sér alveg heilu tímana bara sjálfur inn í herberginu sínu.
Honum finnst líka mjög gaman að syngja og láta syngja fyrir sig.








Móðuramma okkar heitir Jóna Stefánsdóttir og móðurafi okkar heitir Geirmundur Geirmundsson. Föðuramma okkar heitir Ingibjörg Kristjánsdóttir og föðurafi okkar heitir Hafliði Viðar Ólafsson, þau búa í Garpsdal. Mamma á tvö yngri systkini, Hanna Birna, hún á kærasta sem heitir Sindri og svo er það Stefán Snær. Pabbi á eina systur sem heitir Haflína og svo á hann bróður sem er dáinn, hann hét Kristján Viðar, hann var giftur Erlu Björk og sonur þeirra er Aron Viðar.
Við eigum 3 langömmur og 1 langafa, Þórey, Fanney og Sigríður og Njáll.
Geirmundur Viðar er skírður í höfðuðið á móðurafa sínum og langafa sínum sem er dáinn núna.







Annað:



Til þín

Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til









Barn í tvíburamerki

Barn í tvíburamerkinu er snöggt í hreyfingum
eins og svipu sé veifað, þó svo að flestar hreyfingar séu uppávið.
Þetta barn er alltaf á leiðinni upp á eitthvað.
Talandi um orku og virkni! Þetta barn fer létt með að gera 3 hluti í einu og er líklegt til að gera þá alla vel.
Hægt er að segja um barn í tvíburamerkinu að það sé mjög klókt og komi sífellt á óvart.
Það er einnig ósvífið og gæti komið heim með kettling með slaufu um hálsinn
(sem það fann) og fært mömmu sinni að ?gjöf?. Sætt, ekki satt?
Það sem þessu barni leiðist er að hafa ekkert að gera, svo vertu viss um að stundatafla þess sé alveg þétt skipuð
(íþróttir, klúbbar, útivist o.s.frv.) Vegna þess hve barnið er upptekið og hefur margt fyrir stafni þá eignast það marga vini.
Tvíburanum líkar að vera trúðurinn í bekknum og gerir í því að gretta sig og segja brandara.
Tvíburinn er fyndinn og býr yfir góðum húmor. Hugur hans ferðast á ógnarhraða og auðvelt að örva. Vertu viss um að hann hafi alltaf nóg að lesa. Fyrir utan lestur þá hefur barn í tvíburamerkinu einnig mikla unun af því að tala, segja brandara og taka þátt í íþróttum, og það vill gera þetta allt núna strax. Þegar þú reynir að sjá fyrir þér barn í tvíburamerkinu þá skaltu hugsa um Línu Langsokk.
Hallaðu þér aftur, dragðu andann djúpt og taktu þátt í fjörinu.


Barn í vogarmerkinu

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.









BÖRNIN LÆRA AF UPPELDINU.


Barn sem elst upp við gagnrýni lærir að dæma aðra

Barn sem elst upp við óvild lærir að berjast

Barn sem elst upp við háð lærir feimni

Barn sem elst upp við skömm lærir sektarkennd

Barn sem elst upp við hvatningu lærir sjálfstraust

Barn sem elst upp við hrós lærir þakklæti

Barn sem elst upp við sanngirni lærir réttlæti

Barn sem elst upp við öryggi lærir trúnað

Barn sem elst upp við virðingu lærir að meta sjálft sig rétt

Barn sem elst upp við viðurkenningu lærir að leita kærleikans í heiminum



Þú ert gestur nr. 28066