Velkomin á heimasíðuna okkar
Við erum systurnar Brynja Gná , Íris Birta og Harpa Dögg Heiðarsdætur og við munum eignast lítinn bróður næsta sumar


Um mig:
Brynja Gná kom í heiminn mánudaginn 8.júlí 2002 á LSP eftir 42 vikna meðgöngu. Hún var 4015 grömm og 54 cm.

Íris Birta fæddist laugardaginn 18. september 2004 á Akranesi eftir 41, 6 vikna meðgöngu. Hún var 4145 grömm og 55 cm.

Harpa Dögg kom í heiminn sunnudaginn 13. ágúst 2006 á Akranesi eftir 40,4 vikna meðgöngu. Hún var 4020 gr og 52 cm.

Foreldrar okkar eru Erna Sigurðardóttir ('82) og Heiðar Þór Bjarnason ('79) . Við erum Grundfirðingar.




Annað:

Brynja: Merkir herklæði
Gná: Er skylt gnýr og gnýgja. Úr norrænni goðafræði

Íris: Er úr grískri goðafræði og er persónugerfing regnbogans en varð síðan sendiboði guðanna.
Birta: Er skylt ljómi. Leitt af nafninu Birgitta sem merkir hin háa

Harpa: Nafn þetta er komið af hinu forna mánaðarheiti harpa sem var fyrsti íslenski sumarmánuðurinn.
Dögg: Áfall, náttfall.





ELSKU MAMMA OG PABBI...

Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.

Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér.

Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki.

Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta.

Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig.

Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.

Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið.

Elskaðu mig bara fyrir að reyna.



ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ!



Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.

Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.

Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.

Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.

Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.

Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.

Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.

Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.

Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.

Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.

Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.



Svona fallbeygjast nöfnin okkar

Nf. Brynja Gná
Þf. Brynju Gná
Þgf. Brynju Gná
Ef. Brynju Gnár

Nf. Íris Birta
Þf. Írisi Birtu
Þgf. Írisi Birtu
Ef. Írisar Birtu

Nf. Harpa Dögg
Þf. Hörpu Dögg
Þgf. Hörpu Dögg
Ef. Hörpu Daggar


Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús að mér gáðu

Hafðu gát á hjarta mínu,
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf, Jesús, vertu hjá mér.

Um þig alltaf sál mín syngi
sérhvern dag, þó eitthvað þyngi.
Gef ég verði góða barnið,
geisli þinn á kalda hjarnið.