Ég heiti Anna Rakel;) Jæja, nú skal mamma skanna heilt ár af myndum og dæla þeim hér inn ykkur til ánægju og yndisauka:)
Fyrir ykkur sem hafið áhuga þá er hún amma mín að prjóna fallegar og skemmtilegar lopapeysur, sérprjónaðar að þínu sniði ásamt ýmsu öðru. Hér er linkurinn á síðuna hennar;)http://barnaland.is/barn/53334


Um mig:



'Eg er lítill engill sem fæddist á Landspítalanum þann 7.september 2004 klukkan 21:01. Fæðingin mín gekk mjög vel en það tók mig 14 og hálfan klukkutíma frá fyrstu hríðum að komast í heiminn og ég var 3195 gr og 51 cm og algjör krúsídúlla:) Mamma mín heitir Sunna Rannveig og er 22 ára og pabbi minn heitir Örn Steinar og er 24 ára.





Annað:



Hér sit ég snemma í bítið á St. Joseps spítalanum í Hafnafirði þann 6. febrúar á leið í háls og nef kirtlatöku:/ Ég var mjög róleg fyrir aðgerðina enda orðin þaulvön í læknisleikjum og líka dömurnar á deildinni tóku svo vel á móti okkur og útskýrðu þetta allt fyrir mér og sýndu mér myndir sem hjálpaði mjög;) Ég er mikið gefin fyrir bækur og hér er ég að glugga í mína fróðlegu bók sem ber nafnið "skoðum, lesum og lærum"
Eftir aðgerðina var ég rosa aum og lítil í mér en ég var rosalega dugleg og náði mér mjög fljótt. Ég er mjög athafnasöm stúlka og síðan ég kom úr aðgerðinni sér greinilega að þetta angraði mig og núna er léttir og mér líður betur;)




Meyjan í bernsku
eftir Gunnlaug Guðmundsson

Eftirtektarsemi

Að öllu jöfnu er litla Meyjan auðveld viðureignar. Hún er samviskusamt, duglegt og hlýðið barn. Hún hlustar á uppalendur sína, er eftirtektarsöm og fljót að læra. Meyjan er íhaldssöm og lítið gefin fyrir að gera uppreisn gegn foreldravaldi eða skólakerfi. Þetta getur þó breyst eitthvað ef t.d. Mars eða Úranus er sterkur í korti hennar.

Skynsemi

Skynsemi Meyjunnar kemur fljótt fram í bernsku. Ef foreldrar hennar eru kærulausir eða óhagsýnir má búast við að barnið fari fljótlega að siða þá til og hafa vit fyrir þeim. Öll dagleg umgengni mótast einnig af þessari skynsemi, af því að hún er aðgætin og nákvæm hvað varðar áhugasvið sitt.

Áhyggjur

Það sem helst getur háð litlu Meyjunni er alvörugefni sem leiðir af sér áhyggjur og taugaspennu. Til dæmis tekur hún smávægilegt mótlæti nærri sér. Meyjan er einnig vandvirk í eðli sínu og hefur sterka fullkomnunarþörf, sem veldur því að hún á til að gera sér verk erfið, kvíða fyrir framtíðarverkefnum og hafa áhyggjur af því að það sem hún er búin að gera sé ekki nógu gott.
Foreldrar Meyjunnar þurfa að draga fram hið jákvæða, hvetja barnið til að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu og segja því að fullkomnun sé ekki alltaf nauðsynleg. Það getur einnig verið gott að ýta svolítið undir skopskyn Meyjunnar.

Taugakerfið

Það gleymist oft þegar fjallað er um Meyjuna að Merkúr sem stjórnar hugsun og taugakerfi er pláneta Meyjunnar. Hið jákvæða við þetta er að hún er oft vel gefin og staðreyndin er sú að margar Meyjar leggja fyrir sig fræðistörf, rannsóknir, tungumál og bókmenntir á fullorðinsárum. Það varasama er að taugakerfið er viðkvæmt og því getur það gerst að Meyjan er óróleg, stressuð og taugaveikluð, og þá fer allt skipulag úr böndunum. Það er því mikilvægt að foreldrar Meyjunnar fylgist vel með þessu og hugi sérstaklega vel að mataræði og athöfnum sem eru styrkjandi fyrir taugarnar, forðist sykurát og gæti þess að litla Meyjan fái næga hvíld þegar þannig stendur á.

Samviskusemi

Meyjunni gengur yfirleitt vel í skóla og hún á sjaldan í vandræðum á því sviði. Hún er forvitin, hefur rökfasta og skipulagða hugsun og er fljót að hagnýta sér það sem hún lærir. Hún er einnig samviskusöm og sinnir því náminu yfirleitt vel, þó að á því séu að sjálfsögðu undantekningar.

Festa

Þar sem Meyjan vill hafa reglu á umhverfi sínu og allt í föstum skorðum getur óregla eða skipulagsleysi foreldra ruglað hana í ríminu. Því er mikilvægt að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir í hegðun gagnvart henni. Ef foreldrar skilja eða ef hún þarf að skipta um skóla þarf að sýna henni sérstaka nærgætni og hjálpa henni að koma á nýju og öruggu kerfi. Meyjan þarf einnig að geta haft leikföngin sín á vísum stað. Öryggi skiptir hana miklu, félagslegt, heimilislegt og tilfinningalegt.







Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi faðir þér ég sendi.
Bæn frá mínu brjósti sjáðu,
blíði Jesú að mér gáðu.

Hafðu gát á hjarta mínu,
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf Jesús, vertu hjá mér.

Um þig alltaf sál mín syngi
sérhvern dag, þó eitthvað þyngi.
Gef ég verði góða barnið,
geisli þinn á kalda hjarnið.
(Ásmundur Eiríksson)







Til þín elsku litli engillinn okkar

Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til





Vinir mínir:



Sandra, Kiddi
og
krakkarnir



Sigurlaug Birna



Magni Þór



Sigrún Sól



Eydís Yrja
frænka mín





Gestabókin mín:)


Endilega kíkjið í albúmið mitt og skoðið allar sætu myndirnar af mér:) og skrifið í gestarbókina áður en þið farið :)


Þú ert gestur nr. 20751
0/2 Queries in 0/0 ms
0 ms
DomainInfoV3_barnaland.is(6852B)
ShouldBeLocal:True
IsLocal:True
System.Object get_Item(System.String, Boolean))
Barnaland.DomainInfo GetDomainInfo(System.String, Boolean))
Barnaland.DomainInfo get_Current())
Void OnBeginRequest(System.Object, System.EventArgs))
Void System.Web.HttpApplication.IExecutionStep.Execute())
System.Exception ExecuteStep(IExecutionStep, Boolean ByRef))
Void ResumeSteps(System.Exception))
System.IAsyncResult BeginProcessRequestNotification(System.Web.HttpContext, System.AsyncCallback))
System.Web.RequestNotificationStatus ProcessRequestNotificationPrivate(System.Web.Hosting.IIS7WorkerRequest, System.Web.HttpContext))
Int32 ProcessRequestNotificationHelper(IntPtr, IntPtr, IntPtr, Int32))
Int32 ProcessRequestNotification(IntPtr, IntPtr, IntPtr, Int32))
0 ms
TmxV3_is-barnaland(294609B)
ShouldBeLocal:True
IsLocal:True
T GetContract[T](System.String, Boolean, Boolean))
Frontur.Core.Tmx GetTmx(System.String, System.String, Boolean))
Void Page_Init())
Void ArglessFunctionCaller(IntPtr, System.Object))
Void OnInit(System.EventArgs))