|
Ég heiti Benedikt Emil LEIKSKÓLASTRÁKUR og er algjör töffari!!
|
|
Ég heiti Benedikt Emil og er Aðalsteinsson, ég fæddist föstudaginn 14. Janúar 2005 kl 12:40 á Landspítalanum. Ég var tæplega 19 merkur og 54 cm.
Mamma mín heitir Bryndís Kolbrún og er 23 ára gömul. Víð búum saman í Hafnarfirðinum.
Prófaðu að pússla mig :) (ýttu á myndina ef það hleðst ekki inn)
Ég brosi af því að ég er mamma þín, ég hlæ vegna þess að það er ekkert sem þú getur gert við því.
Amma og afi eiga tvo prinsa, mig og Ísar Bjarka sem er hálfu ári yngri en ég. Mamma á líka tvær systur, Möggu og Hafdísi sem eiga heima með okkur svo ég fæ sko aldeilis helling af athygli! Svo á mamma einn stóran bróðir, Hinni frændi en hann býr í Svíþjóð með Betu frænku og Ísari Bjarka frænda mínum. Þau eiga von á öðru barni um áramótin. Svo er ég svo heppinn að eiga einn langaafa og stjúplangömmu og fullt af frænkum og frændum svo ég fæ sko aldeilis nóg af ást og athygli :)
Ekkert er eins uppörvandi eftir erfiðan dag og brosandi andlit sem lítill sonur þrýstir að gluggarúðu.
ELSKU BARN. Ást mín verður með þér hvenær sem þú þarfnast hennar. Ást mín verður með þér þegar gleðin ber þig ofurliði. Ást mín verður með þér þegar erfileikarnir eru að buga þig . Ást mín verður með þér þegar þú óttast lífið . Ást mín verður með þér í dag og alla daga. |
|
|
|
flotti íþróttastrákurinn
Börnin læra af uppeldinu Barn sem elst upp við gagnrýni lærir að dæma aðra Barn sem elst upp við óvild lærir að berjast Barn sem elst upp við háð lærir feimni Barn sem elst upp við skömm lærir sektarkennd Barn sem elst upp við hvatningu lærir sjálfstraust Barn sem elst upp við hrós lærir þakklæti Barn sem elst upp við sanngirni lærir réttlæti Barn sem elst upp við öryggi lærir trúnað Barn sem elst upp við virðingu lærir að meta sjálft sig rétt Barn sem elst upp við viðurkenningu lærir að leita kærleikans í heiminum
RÉTTINDI MÍN Öll börn eru mikilvæg og líka ég. Öll börn eiga rétt á sínu eigin nafni. Ég á rétt á að vera með bæði mömmu og pabba. Enginn má slá mig eða stríða mér. Ég á rétt á að mér líði vel. Ég á rétt á að fá hjálp þegar mér líður illa. Ég á rétt á að segja hvað mér finnst. Ég á rétt á að leika mér. Ég á rétt á að fá að læra ótal margt í leikskólanum og í skólanum. Þú og ég og öll önnur börn eiga rétt á að fá að lifa við öryggi.
KÆRU FORELDRAR. EKKI TELJA EFTIR ÞESSA FÁU MÁNUÐI SEM ÉG ÞARFNAST ÓSKIPTRAR ATHYGLI YKKAR. ÉG HEF MEIRA AÐ GERA EN NOKKRU SINNI VIÐ AÐ VAXA OG BÚA MIG UNDIR FRAMTÍÐINA. EN ÉG SÝNI YKKUR ÞAKKLÆTI MITT. Á HVERJUM DEGI FÆRI ÉG YKKUR EITTHVAÐ NÝTT, EINHVERJA DÁSEMD, EINHVER MERKI UM FRAMFÖR. ÉG ER SMÁBARN SVO SKAMMAN TÍMA. NÝTIÐ HANN EINS VEL OG ÉG. ÉG STÆKKA OG HVERF Á BRAUT ÁÐUR EN ÞIÐ VITIÐ AF.
Hjarta mitt Hjarta mitt geymir þegar ég fann fyrir þér í fyrsta skiptið Hjarta mitt geymir þegar ég sá þig í fyrsta skiptið Hjarta mitt geymir þegar ég heyrði í þér í fyrsta skiptið Hjarta mitt geymir þegar ég sá þig brosa í fyrsta skiptið Hjarta mitt geymir þegar ég heyrði þig hlæja í fyrsta skiptið Hjarta mitt er að fá að faðma þig á hverjum degi Hjarta mitt er að fá að sjá þig á hverjum degi Hjarta mitt er að fá að heyra rödd þína á hverjum degi Hjarta mitt er að fá að sjá þig brosa á hverjum degi Hjarta mitt er að fá að heyra þig hlæja á hverjum degi Hjarta mitt vonar að ég fái að halda þér í örmum mér þegar þú þarfnast Hjarta mitt vonar að þú komir til mín þegar þú þarfnast Hjarta mitt vonar að þú leitir til mín þegar þú þarfnast Hjarta mitt vonar að ég geti fengið þig til að brosa þegar þú þarfnast Hjarta mitt vonar að ég geti fengið þig til að hlæja þegar þú þarfnast Því þú ert minn engill sem Guð gaf mér að láni og hjarta mitt óskar þess elskan mín að ég sé þess verðug að vera móðir þín
Ísar Bjarki |
| Þú ert gestur nr. 22782 |