Við erum systkinin Harpa Dagbjört og Almar Jökull


Um okkur






Hörpu Dagbjörtu lá pínu á í heiminn og fæddist eftir 39 vikna meðgöngu á Landsspítalanum þann 16. desember 2002. Áætlaður fæðingardagur var 19 desember.
Fæðingin gekk ekki vel, mamma var búin að vera veik í 33 tíma og að lokum var Harpa tekin með keisara. Harpa var 17 merkur (4200 gr) og 54 cm. Harpa er með dökkbrúnt hár og með græn brún augu.

En afhverju var ég látin heita Harpa Dagbjört? Nafnið Harpa er í höfiðið á konu sem heitir Harpa og reyndist mömmu svo vel þegar hún gekk með mig en Dagbjört er bara út í loftið og valið vegna þess að mömmu þótti það fallegt og fannst það passa vel með Hörpu nafninu. Samkvæmt Þjóðskrá í Feb 2003 eru tvær stelpur sem heita Harpa Dagbjört. Nafnið Harpa þýðir - hljóðfærið, eða mánaðarheitið og nafnið Dagbjört þýðir - björt sem dagur.


Hörpu finnst hún vera ríkasta stóra systir í öllum heiminum því hún eignaðist lítinn bróðir hann Almar Jökul þann 12 apríl 2010. Almar Jökull lét bíða eftir sér og fæddist eftir 41 vikna meðgöngu á Sjúkrahúsinu á Akranesi. Áætlaður komudagur var 4 apríl (Páskadagur). Hann var svipað stór og systir sín eða 16 og hálf mörk (4125 gr) og 56 cm. Almar er með rauðbrúnt hár og blá augu.

En af hverju varð nafnið Almar Jökull fyrir valinu: Mömmu og pabba þótti nafnið Almar báðum svo fallegt að það var áhveðið meðan ég var ennþá í bumbunni á mömmu. En erfiðara var að finna nafn sem þeim fannst passa með Almars nafninu og komu nokkur nöfn til greina en nafnið Jökull stóð upp úr og varð fyrir valinu. Samkvæmt Þjóðskrá í Maí 2010 er aðeins einn sem heitir Almar Jökull :-) Nafnið Almar er norrænt nafn og þýðir - sennilega álmur, tré, sem notað var í boga, og -arr: hermaður. Nafnið Jökull þýðir einfaldlega Jökull.



Við búum í Árbæ með mömmu okkar henni Svanfríði Örnu og pabba okkar honum Sigurði Grétari. Harpa er í 3 bekk í Árbæjarskóla og Almar að njóta lífsins með mömmu sinni ;D






Stjörnumerkin okkar




Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.





Hrúturinn er oft grannur og sprengilegur, með augabrúnir og nef sem minna á táknið fyrir stjörnumerkið. Hann er lítið hrifin af skrautgripum og fötum sem hefta hreyfingafrelsi hans, enda er hann hvatvís og lifandi og fljótur að bregðast við. Hrúturinn er eldmerki, svo fólk sem fætt er í Hrútnum hefur oftast ríka þörf fyrir að tjá sig í verki. Það er dugandi, blátt áfram og á bágt með að þola tafir og aðgerðaleysi. Hrútar eru óþolinmóðir og þrjóskir, en þeir eru líka gæddir persónutöfrum og stefna einbeittir að settu marki. Þeir eru fæddir leiðtogar og fljótir að hugsa, en eðlislæg hreinskilni veldur því að þeir eiga bágt með að segja ósatt og Hrútar eru oft bæði saklausir og einlægir í hjarta. Hrútar hafa gaman af íþróttum, helst ef í þeim felst hraði, hreyfing og líkamleg snerting, enda finnst þeim fátt verra en sitja aðgerðalausir. Hrúturinn er í eðli sínu brautryðjandi, svo hann hneigist til að velja sér starf sem krefst frumlegrar hugsunar, og margir Hrútar gerast vísindamenn, uppfinningamenn, skurðlæknar, geðlæknar eða sálfræðingar, en Hrúturinn gæti allt eins tekið upp á því að reka eigin fyrirtæki, iðulega innan nýrrar starfsgreinar. Hrútar heillast líka af stjórnmálum og eru oft virkir félagar eða í stjórn síns stéttarfélags. Ef Hrúturinn ætlar að ná langt, þarf hann að læra að stjórna skapi sínu og ætti að huga meira að þörfum og skoðunum annarra, til að komast hjá árekstrum.







Þú ert gestur nr. 16080