Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Thelma Melsteð og Kári Melsteð
Thelma Melsteð og Kári Melsteð
"Ég kyssti Núma í dag, ég er nefnilega skotin í honum."
Október 2010-Sagði Thelma við mömmu sína þegar hún kom úr skólanum.
0 | 15.10.2010 20:37:35 #
"Mamma!!! Með hvaða hönd borða fátækir???"
September 2010-Sagði Thelma þegar hún var að spá í með hvorri höndinni ÖRVHENTIR borða en ruglaði saman örvhentum og fátækum.
0 | 15.10.2010 20:36:35 #
"Mamma!!! Ætlarðu nokkuð að drekka meira en þetta eina glas???" Mamma svarar: "Nei, af hverju?" Thelma: "Pabbi segir að ef maður drekki mikið þá fái maður glóðurauga."
September 2010-Sagði Thelma við mömmu sína við matarborðið þegar mamman ákvað að fá sér eitt hvítvínsglas með matnum.
0 | 11.9.2010 22:46:37 #
Elsku Thelma .Mikið ertu sæt og fín á leið í skólann í fyrsta sinn .Þú ert orðin svo stór stelpa og ég veit að þú verður voða dugleg í skólanum. Bestu kveðjur til ykkar allra .amma og afi
AMMA BIRTA | 0 | 30.8.2010 11:45:01 #
Æðislegar myndirnar af ykkur sætu systkinum :) þið eruð svo miklar dúllur :) gaman að sjá hvað þú stækkar hratt Thelma mín, bara orðin skólastelpa, ég sem var nú að passa þig þegar að þú varst 2 ára, tíminn líður hratt og brátt verður hann Kári litli bróðir þinn komin líka í skóla :) Knús og kram* kveðja Ragnhildur barnapía
Ragnhildur Gísla | 0 | 4.8.2010 17:14:05 #