Velkomin á heimasíðuna mína! Ég heiti Ísold Klara Felixdóttir. Lykilorðið er millinafn mömmu =)
Ég fæddist 20. júní 2004, og var skírð þann 5. september 2004. Mamma mín heitir Klara Hallgrímsdóttir og pabbi minn heitir Felix Gylfason. Þau elska mig obbo obbo mikið og ég elska þau til baka.


Um mig:
Ég fæddist á Landspítalanum þann 20. Júní, 2004. Það var 6 1/2 vikum fyrir tímann og var ég 8 merkur og 44cm þegar ég fæddist, svo ég þurfti að vera í 3 vikur á vökudeild áður en ég fékk að fara heim. Þar sem mamma var orðin frekar lasin í fæðingunni fannst okkur gott að afi Hallgrímur kom frá Mývatnssveit eins og skot til að vera með okkur, og að amma Klara var viðstödd fæðinguna. Ég fæðist bláeygð og með brúnt, mjúkt hár. Þar sem ég var í góðri stærð miðað við aldur og hraust þá var ég á vökudeild til að að safna orku, læra að sjúga brjóstið og sofa til að stækka. Núna þegar ég er komin heim þá eru mamma og pabbi eru voðalega dugleg að sjá til þess að ég fái nóg að drekka og hvílist vel. Þau eru bestu foreldrar í heimi =) Við hlæjum mikið saman sem lætur mér líða vel.

Viðstaddir fæðinguna ásamt mömmu Klöru og Felix pabba, var amma Klara, og ljósmóðirin sem heitir Þórdís Klara, svo að það var mikið af Klörum í herberginu. Einnig voru deildarlæknir, fæðingarlæknir og 2 barnalæknar tilbúnir að flýta mér í hitakassann því að ég kom svo snemma og mátti lítið stoppa hjá mömmu og pabba því ég þurfti að komast í hita sem fyrst. En það gekk allt voðalega vel og átti ég góðan tíma á vökudeildinni. Allt starfsfólk þar var svo, faglegt, almennilegt og stuðningsríkt að mamma og pabbi gátu farið heim frá mér viss um það að ég var í góðum höndum. Við erum öll þeim svo þakklát fyrir stuðninginn og aðstoðina, og óskum þeim á vökudeildinni alls hins besta.

Ég var skírð Ísold Klara þann 5. September og kemur Ísoldar nafnið úr fallega ævintýrinu um Tristan og Ísold. En Klara er auðvitað frá ömmu og mömmu, og svo var ljósmóðirin með millinafnið Klara, svo að okkur fannst mjög viðeigandi að nota það.

Frá mömmu og pabba:

Í kvöld:

-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...
-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...
-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...
-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...
-ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig...
Þín Mamma og pabbi




Annað:
Takk kærlega til allra sem að hafa hjálpað okkur mömmu og pabba með fallegum gjöfum og lánum. Takk amma Klara fyrir að sauma utan um vögguna mína, fallegu rúmfötin og sængina, og torfæruvagninn minn sem mér líður svo vel í. Og takk afi Hallgrímur að smíða svona fallega vöggu handa okkur mömmu. Takk amma Hanna fyrir alla útprjónuðu ömmuástina, í formi sokka, peysa og húfna. Takk langamma Fríða fyrir uppáhaldsteppið mitt, og takk Tollí frænka fyrir hlýja ullarteppið sem hlýjar mér þegar ég leik mér á gólfinu. Hlakka svo til að sjá ykkur öll og fá heimsóknir, eða fara í heimsóknir, endilega verið í "bandi" :) Ykkar Ísold Klara
Þú ert gestur nr. 13564