Hæ öllsömul
Þá er sumarfríið að klárast. 4 vikur líða hratt þegar það er gaman. Við byrjuðum eina helgi í útilegu með góðum hóp, Hlyn og co, Elli og co, Gunni Möll og co og svo nokkrir vinir okkar allra sem bættust við. Skelltum okkur í Hraunborgir í Grímsnesinu, fengum frábært veður. Fórum svo heim í 3 daga sem var fínt, vorum búin að átta okkur á hvað þyrfti að hafa með í svona útilegu. Byrjuðum á að fara 2 nætur í Húsafell, þar var frábært veður og skoðuðum við Reykholt og Snorralaug o.fl. Héldum svo áfram að Varmahlíð og gistum á Steinsstöðum, fórum í sund og slökuðum á. Þar byrjaði aðeins að rigna svo við fórum á Akureyri og gistum hjá afa Halla og Hólmfríði eina nótt. Hittum Óla og Jónu sem að bjuggu í Arizona þegar mamma og pabbi bjuggu þar, og Alla frænda og co. Þau gáfu mér afmælisgjöf: Bratz dúkku sem kom sér vel í bílinn. Þaðan var farið í Ásbyrgi og tjaldað í góðu veðri. Gengum innað Hljóðaklettum og inní Ásbyrgi, fallegur staður. Þarna var kominn smá úði svo við héldum áleiðis til Egilsstaða með stoppi á Dettifossi. Á Egilsstöðum var grenjandi rigning svo við héldum inní Hallormsstaðaskóg, Atlavík og tjölduðum þar í sól og blíðu, rosalega fallegur staður. En um nóttina byrjaði að rigna svo við pökkuðum saman daginn eftir. Fórum um Öxi inná Höfn, en það er ótrúleg leið, Ísland er magnað land, það verður að segjast.
Inná Höfn var sól en hvasst svo við keyrðum inná Skaftafell og þar var bongóblíða, grilluðum lamb og bakaðar kartöflur, kósý heit. Daginn eftir var sama blíðan svo við lékum okkur í eltingarleik og með flugdreka. Löbbuðum upp að Svartafossi og sungum dátt. Keyrðum svo að Seljalandsfossi og fórum bakvið hann, það var gaman. Enduðum svo ferðina á Stokkseyri á Fjöruborðinu, fengum okkur humar og kjúklinganagga. Komum svo heim um kl. 22 á miðvikudegi, akkúrat viku eftir að við lögðum í hann. En nú um helgina (18 júlí) ætlum við svo á Flúðir í bústaðinn hjá ömmu Hönnu, spáin er frábær. Pabbi ætlar að spila golf og við förum í pottinn og höfum það notalegt.
Endilega kvitta í gestabókina. Myndir úr ferðinni í albúminu.
Kv Ísold Klara






. Orðheppin og grallari í mér svo að það er bara besta mál.
