| Velkomin á heimasíðuna mína! |
| Ég heiti Sólný Inga Sigurgeirsdóttir. |
|
Um mig:
Hæ hæ ég kom í heiminn þann 16.júní 2004 klukkan 06:33, 2 árum, 4 dögum og 12 klst upp á mínútu á eftir stóru systur minni henni Salnýju Kaju. Ég átti ekki að fæðast fyrr en 24.júní en þar sem ég þurfti að fara í skipulagðan keisara var þessi dagur valinn til að reyna að koma í veg fyrir að við mamma myndum lenda í vandræðum þegar komið væri of nálægt væntanlegum fæðingardegi.
Jábbs gott plan það! Ég ákvað nú samt að valda usla með því að fara af stað klukkan 2 um nóttina þegar mamma mín og pabbi áttu að hvíla sig fyrir skipulagða keisarann sem átti að fara fram klukkan c.a. 10 um morguninn og því þurfti mamma, sem átti að fá þetta svo létt í þetta skiptið eftir ósköpin með stóru systur, að berjast við hríðir og vesen í nokkra tíma og lenda svo í hálfgerðum bráðakeisara. Þetta var náttúrulega bara betra fyrir mig, auk þess sem ég sýndi með þessu móti að ég var meira en lítið sátt við daginn sem var valinn handa mér að koma í heiminn;) Mamma mín heitir Signý Björg, pabbi minn heitir Sigurgeir og eins og áður sagði heitir stóra systir mín Salný Kaja og hún á að sjálfsögðu heimasíðu hérna eins og ég. |
|
|
|
Annað:
Mamma og pabbi vilja benda ykkur á að skrifa endilega í gestabókina ef þið þekkið þau og þá benda þeim á síður sem þið eruð með í gangi:)
|
| Þú ert gestur nr. 4665 |