|
|
|
Um mig:
Nafn: Unnar Karl Stephensen Áætlaður fæðingardagur: 25. júní 2004 Fæðingardagur: 9. júlí 2004 Fæðingarstaður: Landsspítalinn Fæðingarþyngd: 4655 gr. Fæðingarlengd: 54 cm. Höfuðmál: 37 cm. Fæðingartími: kl: 20:45 Ljósmóðir: Birna Gerður Jónsdóttir Læknir: Reynir Tómas Geirsson Aðrir viðstaddir: Pabbi minn, 2 svæfingarlæknar og hellingur af skurðhjúkrunarfræðingum. Mamma mín heitir: Sigríður Stephensen Pálsdóttir Pabbi minn heitir: Árni Björn Guðmundarson
|
|
|
Annað:
Nafnið Mitt:
Unnar: Skiptar skoðanir eru um uppruna og merkingu þessa nafns. Sumir telja það leitt af orðinu "unnur" í merkingunni alda, - bára. Aðrir að það sé komið af karlkyns nafnorðinu "unnur" sem merkir sverð. Enn aðrir telja að það tengist sögninni "unna" sem merkir að elska, - þykja vænt um. Karl: Nafn þetta er komið af nafnorðinu "karl".
KRABBINN 22. júní - 22. júlí Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr. Kínverska stjörnumerkið mitt er Api: Apinn hefur fengið góðar gáfur og óaðfinnanlegt minni í vöggugjöf. Hann er alltaf meðvitaður um hvað er í gangi umhverfis hann, jafnvel í djúpum samræðum. Apinn er athafnamikill og hefur mikla þörf fyrir að vera utandyra og innan um aðra, hann er félagslegt fiðrildi. Apinn leitast við að hjálpa öðrum, hann er eins og peningaskápur: leyndarmál eru ávalt vel geymd hjá honum. Þegar kemur að ástinni er hann samkvæmur sjálfum sér, sveigjanlegur og fullur stuðnings. Fyrirmyndar maki verður sá sem getur aðstoðað hann við að nýta umfram orku og þörf fyrir skuldbindingu. Apinn á góða samleið með rottunni og drekanum.
Mamma er Konan Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda. Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Mamma er besta kona í heimi.
PABBI ER MAÐURINN.... Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og annað fólk. Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður Aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI Ímynd móður 4 ára ~ Mamma mín getur allt! 8 ára ~ Mamma mín veit mikið! Mjög mikið! 12 ára ~ Mamma veit sko ekki allt! 14 ára ~ Auðvitað veit mamma ekki þetta heldur! 16 ára ~ Mamma? Hún er nú svo gamaldags eitthvað! 18 ára ~ Sú gamla? Hún er nú hálf úrelt! 25 ára ~ Jú, hún gæti vitað eitthvað um það! 35 ára ~ Fáum álit mömmu áður en við ákveðum þetta! 45 ára ~ Hvað ætli mömmu hefði fundist um þetta? 65 ára ~ Ég vildi að ég gæti rætt þetta við hana mömmu Einkaréttur barna Ef mér finnst það flott, þá á ég það Ef ég held á því, þá á ég það Ef ég næ því frá þér, þá á ég það Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana EF það líkist dótinu mínu, þá á ég það ELSKU BARN. Ást mín verður með þér hvenær sem þú þarfnast hennar. Ást mín verður með þér þegar gleðin ber þig ofurliði. Ást mín verður með þér þegar erfileikarnir eru að buga þig . Ást mín verður með þér þegar þú óttast lífið . Ást mín verður með þér í dag og alla daga. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf, Jesús, vertu með mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið.
Elsku Unnar Karl Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til.
EF KARLMENN GENGU MEÐ BÖRNIN? Væri barneignarfrí á fullum launum lágmark tvö ár... Væri búið að finna lækningu við appelsínuhúð... Væri "náttúruleg" fæðing úr sögunni... Væri morgunógleði talið helsta heilsuvandamál þjóðarinnar... Væri árangur getnaðarvarnapilla 100%... Væru börn geymd á spítalanum þar til þau kynnu sjálf að fara á kopp... Væru menn æstir í að binda sig... Væru tvíburar ekki svona rosalega krúttlegir í þeirra augum... Yrðu synir að vera komnir heim af stefnumótinu klukkan tíu á kvöldin... Væru skjalatöskur notaðar sem bleyjugeymsla... Væru óléttuföt helsta tískuframleiðsla heims... Væru þeir rúmliggjandi alla níu mánuðina... Myndu konur stjórna heiminum... sendu mömmu póst hér |
| Þú ert gestur nr. 15297 |