Eyþór Bjarki fæddist á Landspítalanum þann 5. september árið 2004, kl. 02:27 aðfaranótt sunnudags. Hann lét foreldrana aðeins bíða eftir sér og mætti á svæðið 8 dögum eftir settan dag. Eyþór Bjarki er hress og kátur strákur sem vill hafa hlutina í röð og reglu. Hann er í leikskólanum Hlíð á deild sem heitir Hamrahlíð. Eyþóri Bjarka finnst skemmtilegast að leika með bíla, púsla, teikna og dunda sér utandyra. Eyþór Bjarki er stoltur stóri bróðir en hann eignaðist lítinn bróður í október 2007.

Baldur Orri fæddist á Landspítalanum þann 21. október árið 2007, kl. 02:25 aðfaranótt sunnudags. Hann var 17,5 merkur og 55 cm. Hann lét bíða aðeins lengur eftir sér en Eyþór Bjarki og kom 12 dögum eftir settan dag. Baldur Orri dafnar vel. Hann er brosmildur og kátur strákur sem greinilega er að flýta sér að stækka!

Mamma og pabbi heita Þorbjörg Lilja og Benedikt. Mamma kemur frá Akureyri en pabbi kemur frá Höfn í Hornafirði. Við búum í Teigahverfinu í Mosfellsbæ og líkar einstaklega vel.

Verið velkomin að kíkja á daglegt líf okkar hér á heimasíðu strákanna. Lykilorðið á síðunni er nafnið á langömmu og lambinu mínu í sveitinni :) Þið getið líka sent mömmu og pabba tölvupóst eða skrifa skilaboð í gestabókina og þau senda ykkur lykilorðið.



Lilypie Kids Birthday tickers

Lilypie 1st Birthday Ticker







ELSKU MAMMA OG PABBI...

Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.

Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér.

Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki.

Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta.

Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig.

Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.

Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið.

Elskaðu mig bara fyrir að reyna.








Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.




Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.