Mamma: Það er ekki gott að borða of mikið nammi, þá verður maður bara feitabolla.
Katrín Anna: Já svona eins og Emilía.
Ömmur og afar eru dugleg að kalla Emilíu Helgu bollu.
Það þarf að greiða mér. Ég er eins og hani!
Katrín Anna lítur í spegilinn einn morguninn
WOW, ég slaufaði!
Þetta er orð sem Katrín Anna bjó til og hún segir alltaf þegar hún rennur til eða dettur. Og við hlæjum alltaf jafn mikið að þessu.
EG: Nú þarft þú að koma í háttinn áður en Gluggagæir kemur. Ef hann sér að þú ert ennþá vakandi þá getur hann ekki sett í skóinn.
KAJ: Já.... þá fer hann bara í næsta hús (brosandi) Þá fæ ég kannski kartöflu (löng þögn) Nei djók!!!
(Fyrsta sinn sem hún notar þennan fræga ,,íslenska" frasa.)
Á leið í háttinn rétt fyrir jólin.
Farðu heim, Búðin er lokuð!
Katrín nennir ekki að vera lengur í búðaleik.
Katrín er að skanna bók (gerir það örugglega 7 sinnum)
EG: Það þarf bara að gera þetta einu sinni.
KAJ: Nei tvisvar af því að hún kostar svo mikið!
Það er sko ,,skanni" á búðakassanum.
KAJ: Góðan daginn, hvað villtu?
EG: Ég ætla að fá einn banana.
KAJ: Já, ok kostar hundrað og átta fjörutíu tólf.
EG: Þetta er svolítið dýrt
Amma: Er þetta dýr búð hjá þér?
KAJ: Já þetta er DÝRABÚÐ.
Í búðaleik með nýja búðakassan sem hún fékk í jólagjöf (2007)
Má ég fá nýtt tyggjó? Þetta er svo krumpað.
Þetta segir KAJ reglulega, en hún er algjör tyggjóstelpa.
Vitiði hvað ég gerði um daginn..hehehe. Pabbi var að fara að baða mig og var búinn að taka mig úr öllum fötunum og hélt á mér, þá kúkaði ég barasta á hann og svo lagði hann mig á skiptiborðið og ég pissaði á það. Þá tók pabbi mig upp aftur og þá gubbaði ég á hann. Það var rosalega gott að fara í bað eftir þetta...hihi.
Þegar ég var 1 mánaða gerðist þetta skemmtilega atvik :)