Um mig:
Við heitum Brynjar Daði, Róbert Örn og Bergvin Fannar, við erum svona eiginlega bræður, mamma hans Brynjars, Linda er nefnilega stjúpmamma Róberts og Bergvins og pabbi þeirra hann Helgi er stjúppabbi Brynjars, svolítið flókið!
Mamma, pabbi, Brynjar og Viktor Óli litli bróðir okkar http://barnaland.is/barn/80377 búa saman á Selfossi, en Róbert og Bergvin koma þangað til okkar aðra hverja helgi, þess á milli búa þeir í Breiðholti hjá Helgu mömmu sinni, Brynjar fer svo líka til pabba síns sem heitir Hörður og býr í bænum.

Mömmu fannst of mikið að hafa þrjár síður fyrir okkur alla og við orðnir svo stórir að hún sameinaði þær í eina, Viktor Óli er samt áfram með sína síðu, enda lítill dekurrass.

Brynjar Daði fæddist 7. oktober 1997 á fæðingadeild landspítalans kl. 02:36 og er því tólf ára.
Það tók mig aðeins einn og hálfann tíma að koma í heiminn frá því mamma fékk fyrstu hríðinar og ég hef sko ekki stoppað síðan.
Mamma mín heitir Guðrún Linda Björgvinsdóttir og pabbi heitir Hörður Birgir Hafsteinsson. Ég var fyrsta barn foreldra minna og fyrsta barnabarn í fjölskyldunum svo ég fékk alla athygli í heiminum.
Ég er mikill veiðimaður og forfallaður fotboltamaður, ég er að æfa með Selfossi, ég held með Manchester United og er Ronaldo átrúnaðagoðið mitt.



Róbert Örn fæddist 18. janúar 2002. og er því átta ára. Hann er mikill fótboltaáhugamaður, heldur með Fram og Manchester United, honum finnst skemmtilegast að hjóla og vera að bralla einhvað.



Bergvin Fannar er fæddur 13 mars. 2003 og er hann því 6 ára. Hann hefur líka mikinn áhuga á fótbolta og er bara ansi fær á því sviði. Hann er líka mikið fyrir tölvur og að taka því rólega, hann er alveg eins og pabbi sinn var þegar hann var lítill og finnst það ekki vera leiðinlegt. Hann heldur líka með Fram og Manchester United eins og bræður sínir.





Við hættum ekki að leika okkur af því við verðum gömul,
við verðum gömul af því að við hættum að leika okkur.








Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir Vogina frá fyrstu tíð og litla Vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja " Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.







Faðmaðu barnið þitt þegar það á það síst skilið,
því þá þarf það mest á því að halda.




















Viktor Óli litli bróðir

Róbert og Bergvin

Óli Björgvin litli frændi

Davíð frændi

Sólon Daði

Sunneva Lind

Sóley Björk

Arnar Geir og Katla María

Alexandra Berg

Lea Hrönn


Manchester United






Þú ert gestur nr. 40040