Við erum systkinin Guðjón Steinn, Silja Kolbrún og Bryndís Ólína
Velkomin á heimasíðuna okkar


Um okkur systkinin:
Halló allir!!! Ég er stór og sterkur strákur sem fæddist á Skejby Sygehus þann 26. ágúst 2004. Ég var 4110 gr. eða rúmar 16 merkur og 54 cm þegar ég fæddist. Systir mín fæddist á þessu sama sjúkrahúsi 14.september 2006. Hún var 5050 gr. eða rúmar 20 merkur og 57 cm þegar hún fæddist.
Litla systir okkar fæddist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þann 2. maí 2011. Hún var 4820 eða 19 merkur og 54 cm.

Við erum afskaplega kát og glöð systkini og yfirleitt mjög góð við hvort annað. Guðjón Steinn er byrjaður í Myllubakkaskóla en Silja er á leikskólanum Vesturbergi.

Mamma okkar heitir Sigrún Svafa Ólafsdóttir frá Svínafelli í Öræfum og pabbi okkar heitir Skúli Freyr Brynjólfsson frá Hoffelli í Hornafirði. Við fjölskyldan búum í Keflavík.




Annað:
Ég var nefndur skömmu eftir að ég fæddist eins og venjan er hér í Danmöku, en var svo skírður þann 26. desember 2004 heima á Íslandi. Mamma og pabbi gáfu mér nafnið Guðjón í höfuðið á frændum mínum tveimur, Guðjóni ömmubróður mínum í Svínafelli og Jóni Páli langömmubróður mínum frá Svínafelli. Þeir eru miklir heiðursmenn og það var reglulega gaman að hitta þá heima á Íslandi um jólin. Svo heiti ég Steinn eftir tveimur langöfum mínum, Steini Einarssyni, pabba hennar ömmu Ingibargar og Þorsteini Jóhannssyni, pabba ömmu Pöllu. Þeir eru báðir komnir til himna en ég er viss um að þeir fylgjast með mér samt. Ég er hæstánægður með nafnið mitt, mér finnst það bara klæða mig ljómandi vel.

Systir mín var líka nefnd stuttu eftir að hún fæddist en hún var skírð heima á Íslandi 26. desember 2006 eins og ég. Mamma og pabbi völdu á hana tvö falleg nöfn sem þeim fannst hæfa henni vel. Silja er nafn sem þeim hefur lengi fundist fallegt og eftir miklar vangaveltur fannst þeim Kolbrún passa best sem seinna nafn. Hún er líka alsæl með nafnið sitt og ber það vel.

Litla systir okkar var skírð þann 20. júní í Keflavíkurkirkju - á 35 ára afmælinu hans pabba okkar. Hún fékk nafnið Bryndís Ólína. Bryndísarnafnið er í höfuðið á Fríðu Bryndísi systur pabba og Ólínunafnið er í höfuðið á afa Ólafi og ömmu Pálínu í Svínafelli.
Þú ert gestur nr. 64466