Júlí 2011:
Systkinin að leiðrétta hvort annað við kvöldverðaborðið:
Guðjón: "Málmpappír"
Silja: "Nei, Álfpappír"
Apríl 2011:
Mamma spyr Silju: ,,Nú á pabbi bráðum afmæli, hvað eigum við að gefa honum í afmælisgjöf?"
Silja svarar: ,,Ég veit ekki? Eigum við kannski að gefa honum eitthvað brothætt?"
Mars 2011:
Guðjón Steinn: "Bráðum er ÁSTARTÍÐ í skólanum mínum!"
September 2010:
Klukkan 5:45 heyrðist úr hjónarúminu: ,,Mamma, ég get ekki sofið lengur - má ég ekki fara fram og klára að teikna myndina í sögubókina mína?"
Spenntur skólastrákur!!!
Ágúst 2010:
Guðjón Steinn: "Ég var heppinn að fæðast ekki stelpa!"
Pabbi: "Nú??? Af hverju segirðu það?"
Guðjón Steinn: "Ég þekki enga sæta stráka sem ég get gifst!!!"
Júní 2010:
Guðjón Steinn: ,,Ég ætla að verða rokkstjarna sem semur bara falleg lög. Svona einskonar "vöggu" rokkstjarna!"
Júní 2010:
Guðjón Steinn: ,, ...ég er nefnilega orðinn 5 ára og því er ekkert gagn að því að gera grín að mér!"
Júní 2010:
Silja Kolbrún: ,,Pabbi, þú ert berfættur á brjóstunum!!!"
(Pabbinn ber að ofan!)
Maí 2010:
Guðjón Steinn, pabbi og mamma gengu á fjallið Þorbjörn og voru að skoða útsýnið.
Guðjón Steinn: ,,Ég vil ekki fara nálægt brúninni - ég er svo niðurfallahræddur!"
Apríl 2010:
Mamma: Hvað heitir barn andarinnar?
Silja: Andafolald!
Apríl 2010:
Silja að syngja: "Siggi var úti, með Árna í haga..."
Janúar 2010:
Silja og Guðjón á leið í aðgerð.
Silja spyr: ,,Hvað heitir læknirinn?"
Mamma: ,,Hann heitir Kristján."
Silja: ,,Kristján Ronaldo?" !!!
Mars 2009:
Pabbi: "Þú ert sætust!"
Silja: "Já, sætur og góður ávöxtur!"
Desember 2008:
Mamma og Silja að tala saman:
,,Hvað langar þig að fá í jólagjöf, Silja?"
,,Pakka!"
,,Og hvað á að vera í pakkanum?"
,,Íslenski fáninn!"
Nóvember 2008:
Systkinin að ræða saman: ,,Silja, hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Þú getur valið um að verða bankamaður, gera engili í snjó, byggja hús eða gróðursetja tré!"
Ætli það sé vel borgað að gera engla í snjó? Kannski er lausnin á atvinnuleysinu bara komin?
Nóvember 2008:
Mamma segir: ,,Svo geturðu beðið pabba að fara með þig á morgun að kaupa tannþráð!"
Guðjón Steinn segir með angist í röddinni: ,,En ég veit ekkert hvar Tannþráðabúðin er!"
Drengurinn var hjá tannlækni og fékk þau fyrirmæli að byrja að nota tannþráð á nammidögum. Mæðginin voru að ræða hvernig best væri að skaffa tannþráðinn, svo hann yrði kominn tímanlega í hús fyrir laugardag. Mikið áhyggjumál!
Júlí 2008:
,,Þetta er svona NOREGSBLEYTA!"
Guðjón Steinn að lýsa rigningunni í Noregi.
Júní 2008:
Mamma: ,,Hvað ætlar þú að borða í kvöld, Guðjón Steinn?"
Guðjón Steinn með sæluglotti: ,,Ég ætla að borða snjógæsir, ég elska snjógæsir!"
Hefur einhver séð snjógæs???
Júní 2008:
Guðjón Steinn stendur og talar við Søren nágranna okkar á meðan hann er að gera við nýja mótorhjólið sitt.
Søren: ,,Jeg har købt mit motorcykel i Tyskland."
Guðjón: ,,I Tyskland! Det kender jeg godt - det er der hvor mand TYSKER!"
Sagnorðið ,,at TYSKE" er ekki til á dönsku. Semsagt algjört nýyrði hjá drengnum. Spennandi að vita hvað það þýðir???
Júni 2008
,,Ég ætla að giftast jólasveininum!"
Guðjón Steinn uppúr eins manns hljóði við morgunverðarborðið í byrjun júní!!!
1. maí 2008
Silja var súr yfir að fá ekki snuð um miðjan dag, labbaði rakleitt inn í herbergi og að litla húsinu sem hægt er að læsa með lykli. Án þess að hika opnaði hún með lyklinum, stakk hendinni inn í húsið og dró út snuddu sem að sjálfsögðu fór beint í munninn. Eftir að hafa tottað snuðið svolitla stund, stakk hún snuddunni aftur inn í húsið og lokaði vandlega með lyklinum.
Mamman var álengdar að fylgjast með stelpuskottinu og hafði einmitt verið að velta fyrir sér hvar allar snuddurnar væru niður komnar. Þar kom svarið við því!!!
1. maí 2008
,, Í dag er UPPFINNINGADAGUR"
Guðjón Steinn á uppstigningardegi :D
Janúar 2008:
Guðjón Steinn að horfa á handboltann í sjónvarpinu og ekki sáttur við auglýsingahlé: ,,Nei, mamma, ég vil horfa á hamborgarafótboltann!"
Janúar 2008:
,,Smáamma og smáafi!"
,,Langamma og langafi" ;)
Janúar 2008:
,,Ég á tvær mömmur, þær heita Magga og Gunna. Ég á líka tvo pabba, þeir heita Sushi og Søren!"
Desember 2007:
,,Þetta er gómsætt eins og sparibaukur!"
Guðjón Steinn hálfsofandi, svangur og ruglaður seint um kvöld og fékk mjólk að súpa.
Desember 2007:
,,Pabbi, þú ert grimmur eins og refur!"
,,Nú, það var nú ekki fallegt!"
,,Nei, en ég hef aldrei áður séð ref keyra bíl. Og heldur ekki séð ljón keyra strætó!!!"
Ímyndunaraflið fær oft að njóta sín á leiðinni í leikskólann!
Desember 2007:
Guðjón Steinn: ,,Pabbi, bjargar þú mér ef ég dett niður stigann?"
Pabbi: ,,Já, auðvitað geri ég það."
Guðjón Steinn: ,,Gott - ég ætla samt ekkert að detta!"
Á leið niður stigann, snemma að morgni dags.
Desember 2007:
,,Nú skal segja, nú skal segja,
hvernig litlar gamlar gera - sparka í bolta, sparka í bolta,
og svo snúa þær sér í hring."
Jólalögin ekki alveg komin á hreint!
Nóvember 2007:
Guðjón Steinn situr búralegur við kvöldverðarborðið og segir:
,,Pabbi, þú gætir orðið góður kaupsýslumaður þegar þú verður stór!"
Þessi orðaforði er í boði Emils í Kattholti.
Nóvember 2007:
Guðjón Steinn var að leika sér með leikfangaborvélina og borar með henni í typpið á sér.
Mamma sagði: ,,Þú mátt ekki bora í typpið á þér, þá getur það dottið af."
Þá lítur Guðjón Steinn upp, horfir spyrjandi á mömmu og segir: ,,Varst þú að leika þér með borvél?"
Þá talar maður um að fatta samhengið!!! Mamman orðlaus og í hláturskasti eins og stundum áður!!!
Október 2007:
Guðjón Steinn að tala við afa í Svínafelli: ,,Jæja, afi minn, nú ætla ég ekki að trufla þig lengur - bless bless."!!!
Guðjón Steinn að tala við ömmu í Svínafelli: Jæja, amma, nú ætla ég að hætta að tala við þig svo ég geti hringt í þig á morgun."!!!
Snemma byrjar það... nú þegar komnar mismunandi lausnir til að losna úr símanum!
Október 2007:
Guðjón Steinn: ,,Mamma, þú átt að fara í bað, farðu úr fötunum og þá ætla ég að taka mynd af þér"!!!
Uuuuuu...???? Spurning um að fara að hætta að taka myndir af börnunum í baði!!!
Október 2007:
Guðjón Steinn var búinn að koma sér vel fyrir í rennibrautinni og sagði við Dóru frænku: ,,Réttu mér aðeins veskið þitt".
Dóra sagði: ,,Nei, þú mátt ekki leika þér með veskið mitt á meðan þú ert að renna þér, því í því er bæði myndavélin mín og síminn."
Þá sagði Guðjón Steinn: ,,Hreinn hégómi"!!!
Orðaforðinn frá Kalla á þakinu minnkar ekkert!
September 2007:
Guðjón Steinn: ,,Pabbi, ertu sorgmæddur?"
Pabbi: ,,Nei, ég er mjög glaður."
Guðjón Steinn: ,,Ó, fyrirgefðu!!!"
Pabbi: ,,En þú? Hvað ert þú?
Guðjón Steinn: ,,Ég er þriggja ára!"
September 2007:
Við kvöldverðarborðið:
Mamma: ,,Borðaðu kartöflurnar þínar, vinur".
Guðjón Steinn: ,,Það verður að ganga á eftir mér"!!!
Já, "Kalli á þakinu" er nýjasti dvd diskurinn og það sést greiniega á orðaforðanum!!!
Júlí 2007:
Guðjón Steinn hringdi í ömmu í Hoffelli og var mikið niðri fyrir: ,,Amma, viltu koma og hjálpa mér að baka fyrir afmælið mitt, mig langar í súkkulaðiköku með skammtímaorku og steypuköku með kerti!!!"
Júní 2007:
,,Pabbi, viltu þurka skeggið á mér"!!!
Guðjón Steinn í baði og fannst óþægilegt að vera blautur á hökunni!!!
Maí 2007:
,,Núna er allt í röð og REGNHLÍF í dótakassanum mínum!"
Maí 2007:
,,Mamma, vilt þú hamast með þessum?"
Guðjón Steinn segir þetta um leið og hann réttir mömmu sinni hamarinn!!!
Apríl 2007:
Mamma var að syngja ,,Það liggur svo makalaust ljómandi á mér..." og þá segir Guðjón Steinn:
,,Mamma ekki syngja þetta lag, það er svo gamaldags"!!!
Uuuuu....???
Apríl 2007:
,,Rauði sportbíllinn sparkaði í græna sportbílinn"!!!
Apríl 2007:
Guðjón Steinn segir við pabba sinn: ,,Þú ert svo kátur"!!!
Apríl 2007:
Guðjón Steinn var að horfa á barnaefni í sjónvarpinu, kallaði á mömmu sína og sagði: ,,Mamma, viltu skatta"!!!
Guðjónska orðið ,,skatta" þýddi á tímabili ,,hækka"!!! Við erum örlítið í vafa um samhengið!!!
Apríl 2007:
Mamma segir: ,,Jæja, eigum við að fá okkur blund?
Guðjón Steinn mjög kátur: ,,Já, ég vil fá einn bláan blund"???
Mamman var dálítið lengi að fatta að barnið var að biðja um blátt RÖR!!!
Apríl 2007:
,, ...hvað segirðu, á hlaupabrekkunni?"
Er hægt að ætlast til þess að maður viti hvað HLAUPABRETTI er þegar maður er bara 2ja og hálfs og er að reyna að vitna í Bubba byggi?
Apríl 2007:
Guðjón Steinn spígsporar um gólfið og segir: ,,Ég er ekki bara ríkur... heldur líka valdamikill"!!!
Ansi mikið notuð setning þessa dagana - enda Rikki ríki í Latabæ mjög áhrifamikill persóna!!!
3. mars 2007:
Guðjón Steinn var að spjalla í leikfangasímann sinn og mamma spurði hann við hvern hann væri að tala.
,,GuSteinn tala við afa í Hoffelli og Sigfinn og afa í Svínafelli og Guðjón frænda og Lalla og Tuma tígur...!!!!"
Já já, þetta er klíkan ;)!!!
21. febrúar 2007:
Aðalheiður nágranni okkar að segja frá hvernig gekk með Björk í vöggustofunni: ,,Jú, jú, það gekk mjög vel en því miður var skortur á MANNFÓLKI í dag!!!"
Semsagt bara álfar og hobbitar í vinnunni þann daginn!!!
18. febrúar 2007:
Mamma að velta fyrir sér hvort Aðalheiður og Davíð væru vöknuð og til í rúnstykki á sunnudagsmorgni: ,,Nei við skulum ekki vekja þau með því að banka - ég sendi þeim bara RÚNSTYKKI!!!
Sumir símar geta sent myndir, ég held nú samt að síminn hennar mömmu geti bara sent sms - og alls ekki rúnstykki!!!
25. janúar 2007
,,Langamma og langafi, langamamma og langipabbi - og langiGuSteinn!"
Aðeins verið að fara yfir fjölskyldutengslin eftir Íslandsferðina!!!
23. janúar 2007:
Guðjón Steinn að tala upp úr svefni: ,,Kúpling, mamma - kúpling!"
Já, það er víst í lagi með orðaforðann!!!
Desember 2006:
,,Jólasveinninn er með mjólkurskegg!"
10. desember 2006:
Pabbi segir við Guðjón Stein ,,Nei sko, hvað hefur jólasveinninn sett í skóinn þinn í nótt?" Guðjón Steinn kemur sallarólegur eftir ganginum og segir ,,Rottuskrattinn"!
Siggu frænku leist nú ekki á blikuna þegar hún heyrði þessa yfirlýsingu frá drengnum, hún var ekki alveg búin að átta sig á því hversu mikil áhrif Emil í Kattholti hefur haft á barnið! Kannski þyrfti að fara að endurskoða orðaforðann?
18. nóvember 2006:
Guðjón Steinn kom til pabba síns, rétti honum hálfétna hveitibollu og sagði: ,,Ég borga alltaf mínar skuldir!
Þegar Emili í Kattholti er orðin fyrirmyndin, getur ýmislegt gerst! Í þetta skiptið var verið að herma eftir senunni þar sem Emil gleypti fimmeyring og þurfti að borða 4 hveitibollur til að hjálpa peningnum í gegnum kroppinn. Hann sló lán hjá níska pabba sínum til að kaupa bollurnar og skilaði honum svo peningnum þegar hann kom í koppinn. Guðjón Steinn staðfærði bara senuna og borgði skuldina með hveitibollu.
Þarf að taka það fram að hann skildi pabba sinn eftir í hláturskasti?
17. nóvember 2006:
Pabbi: Jæja, ertu búinn að kúka?
Guðjón Steinn: Jú jú, svosem!
Huggulegar umræður snemma morguns!
Mamma: ,,Farið þið svo inn á bað og þvoið ENDUR og HANDLIT!"
7. nóvember 2006
Mamma var (að reyna) að skipa fyrir hér á heimilinu og komst svona vel að orði! Auðvitað hlýðir henni enginn þegar hún getur ekki talað skýrar! Mamma sauður!
,,Bless, bollur!!!"
6. nóvember 2006
Feðgarnir að bjóða mömmu og Silju Kolbrúnu góða nótt og á leiðinni fram segir pabbi ,,bless, dúllur" og um leið segir Guðjón Steinn ,,Bless, bollur"!!!
Er eitthvað að því að mismæla sig einstöku sinnum?
,,Gleymdir snuddunni, maður!"
23. október 2006
Feðgarnir voru á leið í háttinn þegar Guðjón Steinn fattaði að hann var ekki með snudduna. Hefur líklega nokkuð oft heyrt pabba sinn nota þessa samsetningu og því sjálfsagt mál að skeyta ,,maður" aftan við þessa hneykslanlegu uppgötvun.
,,Hvað er að, ástin mín?"
10. október 2006
Silja Kolbrún var að gráta og Guðjón Steinn var mjög áhyggjufullur þegar hann spurði hana svona fallega hvað væri að. Greinilegt að börnin læra það sem fyrir þeim er haft!!!
,,Krummi krunkar úti, kallar á ÁRNA STEIN!!!"
29. ágúst 2006
Guðjón Steinn var að syngja um krumma og setti óvart nafnið á frænda sínum, honum Árna Steini í staðinn fyrir ,,nafna sinn". Það gæti auðvitað ekki passað betur þar sem þeir frændur eru óneitanlega nafnar!!! Skýr strákur?
,,Mamma, GuSteinn með baunir á bumbunni!"
17. ágúst 2006
Guðjón Steinn var ber að ofan og fann á sér geirvörturnar! Kom mjög spyrjandi á svip til mömmu, hissa á þessum ,,baunum" á bumbunni!!!
,,Afi minn og amma mín
úti á bakka búa.
Þau eru bæði sæt og fín
og það var nú mikið svínarí"
,,Afi minn á að fara
upp í munn og ofan í maga
heyrið það, heyrið það
svo ekki gauli garnirnar!"
4. júlí 2006
Guðjón Steinn að syngja snemma að morgni dags fyrir hálfsofandi foreldra sína. Skildi ekkert í því hvernig stóð á því að þau vöknuðu samtímis hlæjandi! En það er nú margt nýtt að muna og kannski ekki nema von að maður rugli stundum aðeins saman vísunum.