10. október 2010
Aðeins fleiri gullkorn af leikskólanum:
7.mars 2010
Guðjón Steinn og Guðný Ösp koma til að fá sér að borða.
G.St.: Gjörðu svo vel frú
María Rós: Hún er ekki frú, maður verður frú þegar maður giftir sig.
G.Ö.: Við ætlum að giftast. Er það ekki Guðjón
G.St.: Ekki alveg strax, ég er ekki alveg viss um að ég ætli að giftast þér.
15.mars 2010
Clifford Dean kom til Rögnu Stínu
C.: Ég má ekki fara út, ég er með svo ljótann hósta.
R.S.: Æ, hvað það var nú leiðinlegt.
Silja Kolbrún: Ég má ekki heldur fara út. Ég er með svo ljótan hiksta. Ég var með hiksta í bílnum á leiðinni.
27.maí 2010
Guðjón Steinn: Við erum að byggja hurð
Ragna Stína: Já það er flott
G.S.: En Guðný við verðum að byggja hús!
Guðný Ösp: Nei, þetta er allt í lagi við gistum bara úti
31.maí 2010
Guðjón Steinn: Dóra, veistu hvað við Guðný ætlum að gera á eftir..... Hittast í hjónabandi.... Við ætlum nefnilega að gifta okkur!
2.júní 2010
Guðjón Steinn og Guðný Ösp á wc.G.St.: Ég elska þig
G.Ö.: Ég elska þig
G.St.: Ég elska þig meira
G.Ö.: Ég elska þig líka
G.St.: Þú ert ein af okkur, þú ert ein af fjölskyldunni. Ég ætla aldrei að leyfa neinum að gefa þér einelti. Veistu hvað einelti er?
G.Ö.: Nei
G.St.: Það er þegar.... einhver er að elta þig eina
G.Ö.: Ragna Stína veistu hvað? Við ætlum að giftast
G.St.: Já, við erum búin að æfa okkur. Við kysstumst og allt.
18.ágúst 2010
Fótboltaleikur í gangi á Sólvöllum. Clifford, Róbert W., Guðjón Steinn, Andrés Kr. og Gabríel Aron voru í fótbolta. Guðjón Steinn var með 2 skólflur rauða og gula. Andrés var með eina rauða og Gabríel með eina gula.
Ragna Stína: Af hverju eru þessir fótboltamenn með skóflur???
Gabríel Aron: Það er af því að hann (Guðjón Steinn) er dómari og við (Gabríel og Andrés) erum línuverðir.
Svo hélt leikurinn áfram með tilheyrandi upplyftingum á skóflum.
31. maí 2010
Smá samansafn af gullkornum úr leikskólanum - skemmtilegt að halda þessu saman!
22. október 2008
Kennari: Guðjón Steinn ætlar þú að klára allan snjóinn úti? (hann var búinn að narta lengi í snjóinn)
G.S.: Nei, ég er bara að athuga'nn, hann er kaldur á svipinn!
Desember 2008
Guðjón Steinn var einn úti að róla með lokuð augun.
Þröstur kennari: Ertu sofandi Guðjón Steinn?
G.S.: Neeeeiii, nei, ég er bara að hafa fjör og kósý og taka því rólega og slaka á
2008
María Rós: Ég er glötuð (með fýlusvip)
Gréta kennari: hvað er að elskan mín?
M.R.: ég á ENGA systir
stuttu síðar
Guðjón Steinn: Ef ég ætti óskastein myndi ég óska mér lítinn dreng og svo líka.... hugsar lengi og vel...og ...og stóran dreng
29.apríl 2009
Helga Rut og Guðjón Steinn að ræða um afmælið hennar Helgu
G.S.: Já svo kemur mamma mín með mér í afmælið, hún ætlar að skutla mér og svona.
H.R.: Já, nei, nei, nei, ég bauð bara krökkum, hún getur eiginlega ekki komið inn.
11.júní 2009
Guðný Ösp og Guðjón Steinn í vettvangsferð
Kennari: eruð þið vinir?
G.Ö.: já og líka kærustupar
K.: Núú eruð þið búin að vera kærustupar lengi?
G.S.: Já í 25 ár
G.Ö.: já eða kannski lengur
10.september 2009
Kennari: Sæll Guðjón Steinn flugmaður. Ætlar þú ekki annars að verða flugmaður þegar þú ert orðinn stór (sagði það daginn áður)?
G.S: jú, ég ætla sko í 8 skóla.
K: nú, svona marga
G.S: já ég ætla að verða svo margt
10.nóvember 2009
Guðjón Steinn: Hey veistu hvað þegar ég verð 40 ára þá ætla ég að æfa körfubolta.
Halldóra kennari: Já okey flott, en hvað ætlar þú að æfa þegar þú verður 10 ára?
G.S.: æfa?hmmmmm ég ætla þá bara að vera í flugvélinni minni og slökkva elda, þú veist bara það sem maður gerir þegar maður er 10 ára stór.
8.janúar 2009
Guðjón Steinn: Við viljum ekki fara út því við erum lofthrædd við flugeldana.
7.desember 2009
Leikskólahópur að koma úr kaffihúsaferð. Silja Kolbrún labbar aðeins fyrir aftan Rögnu Stínu kennara.
S.K.: Hey rassinn þinn er ferkantaður.
24.nóvember 2009
Lifur í matinn
Silja Kolbrún: Hvað er í matinn?
Ragna Stína: Lifur
Silja fær sér bita
S.K.: Er þetta strokleður?
R.S.: Nei! þetta er LIFUR
S.K.: Lifur er kjöt og strokleður blandað saman.
10. febrúar 2010
Daginn gott fólk! Smá fréttaskot héðan úr Keflavíkinni. Silja Kolbrún er eitthvað búin að vera lasin undanfarna daga, með hita og hósta. Hún er til skiptis heima með mömmu sem tekur sér frí í vinnunni, eða hjá Steinu frænku, sem er svo góð að koma stundum og passa hana. Vonandi fer henni nú að batna, það er svo tómlegt að fara í leikskólann án hennar. Ég spyr oft um hana og finnst við alltaf vera að gleyma henni!
Síðastliðinn mánudag varð mamma þrítug - loksins að verða fullorðin, kerlingin! En á laugardaginn héldu þau afmælisveislu, sem stóð yfir alveg frá hádegi og til 4 um nóttina. Það kom fullt af fólki í heimsókn, allir afarnir og ömmurnar okkar og margir margir aðrir. Þetta var alveg fínt, við gátum leikið við Árna Stein og spjallað við fólkið, en þegar líða fór að kvöldi vorum við orðin frekar þreytt. Það var því heppilegt að afi og amma í Svínafelli buðu okkur með til Reykjavíkur um kvöldið og við fengum að gista hjá þeim heima hjá Siggu frænku. Það var mjög gaman og skemmtileg tilbreyting fyrir okkur. Um hádegi daginn eftir kom svo afi í Hoffelli og sótti okkur. Hann skutlaði okkur svo ásamt ömmu og Árna Steini í bíó seinnipartinn. Við sáum "Pláneta 51" og skemmtum okkur vel - reyndar svaf Silja góða stund enda þreytt eftir partý og fjör með afa fram á nótt! Mamma og pabbi komu svo í Vættaborginar að sækja okkur um kvöldið og við fórum heim eftir vel útilátna kvöldmáltíð! Ferlega hugguleg helgi fyrir okkur öll! Mamma var mjög ánægð með afmælið sitt, hitti svo margt gott fólk og fékk alveg fullt af fallegum gjöfum!
Ég er kominn á fullt í stafakennsluna í leikskólanum, er mjög duglegur að skrifa stafina í bókina mína og vanda mig alveg svakalega mikið! Ég gat alveg útskýrt muninn á sérhljóðum og samhljóðum fyrir ömmu, og sýndi henni líka hvernig maður getur heyrt hvort stafirnir segja nafnið sitt sjálfir. Mamma og pabbi eru mjög ánægð með mig og vona bara að áhuginn haldist svona áfram. Svo byrjuðu fótboltaæfingarnar aftur í byrjun febrúar, ég fer alltaf á þriðjudögum og mér finnst það SVO gaman! Silja fær oftast að koma með og horfa á, hún var mjög leið núna síðast að þurfa að vera heima vegna flensu!
Jæja krúttin mín - ekki meira í bili! Bestu kveðjur GSS og SKS.
1. Febrúar 2010
Sæl öll! Við fórum öll fjölskyldan í Svínafell um helgina. Þar voru allir heima, mikið fjör og gaman, því amma átti líka afmæli! Við fengum að fara í útihúsin með afa og hittum Guðjón í fjárhúsinu og Jóa í fjósinu. Amma fór svo með okkur í göngutúr í blíðunni, dásamlegt að eiga svona tíma útaf fyrir sig með ömmu, bara kasta steinum í læk og "veiða" eins og maður segir! Svo voru kökur og kræsingar í öll mál - ferlega fínt!
Mamma og pabbi notuðu hverja mínútu í góunefndarfundi, það er verk sem þarf að vinna fyrir Góugleði í Hofgarði 6. mars. Ferlega skemmtilegt en nóg að gera hjá þeim.
Í gær brunuðum við svo heim til Keflavíkur, eftir leikinn - Íslendingar með bronsverðlaun á EM í handbolta! Flott hjá þeim! Bílferðin tekur tæpa 5 tíma og því kemur það fyrir að við verðum örlítið óþolinmóð! En helsta dægradvölin í bílnum er að hlusta á geisladiska og núna er Strumpadiskurinn alveg uppáhaldið okkar!
Í dag byrjaði ég svo í stafakennslu í leikskólanum. Við munum læra einn staf á dag næstu vikurnar, bæði að lesa hann, þekkja hann og skrifa hann! Mjög gaman, þó ég reyni reyndar að halda því fram að ég þurfi ekkert á þessu að halda, því ég kann alla stafina nú þegar! En auðvitað vil ég gjarnan vera með þegar allir hinir fá fín verkefni - þetta er líka bara skemmtilegt!
Allar bumbur eru orðnar nokkuð fínar, nú man enginn að þetta hafi verið eitthvað erfitt eða sárt!
Knús á ykkur öll - Guðjón Steinn og Silja Kolbrún.
26. janúar 2010
Sæl aftur!
Nú eru allir orðnir aftur hressir eftir aðgerðina, börnin fóru bæði í leikskólann í gær og það gekk bara vel. Þau voru ósköp aum fyrstu dagana eftir aðgerðina og Silja steig ekki í fæturnar fyrr en á laugardagsmorgun! Það er gott að þetta er yfirstaðið. Á morgun förum við að láta taka saumana og vonandi gengur það bara mjög vel líka.
Annars allt gott að frétta, hefðbundinn leikskólamánuður með hækkandi sól og reglufestu eftir jólaruglið! Allir að njóta lífsins.
Kveðja í bili - Guðjón Steinn og Silja Kolbrún.
21. janúar 2010
Sæl öll - eftir langa langa pásu!
Við fjölskyldan erum semsagt flutt heim til Íslands, í júlí 2008 sigldum við með Norrænu frá Danmörku, yfir til Noregs, Færeyja og þaðan beint á Seyðisfjörð. Gott að vera komin í faðm fjölskyldunnar aftur.
Af börnunum er allt gott að frétta, þau eru mjög ánægð á nýja leikskólanum, Vesturberg. Þar eiga þau orðið marga vini og dásamlegt starfsfólk sem passar þau vel. Núna fyrir jólin kom í ljós að Guðjón Steinn sér mjög illa og er hann því farinn að ganga með ansi þykk gleraugu. Það gengur mjög vel og greinilegt að hann á auðveldara með allt eftir að hann fékk þau. Hann var samt búinn að vera svo duglegur, orðinn vel læs og skrifandi, duglegur að teikna og perla, og eftirtektarsamur á allan hátt. Það verður gaman að fylgjast með hvernig honum gengur svo þegar hann byrjar í skóla næsta haust. Svo byrjaði hann að æfa fótbolta í haust og það hefur gengið mjög vel, áhugann skortir ekki!
Silja er yfirleitt mjög kát og dansandi glöð, dugleg að lita og teikna, og byrjuð að skrifa stafi. Hún veit hinsvegar vel hvað hún vill og er ekkert feimin við að láta skoðanir sínar í ljós.
Í gær fóru börnin bæði í litla aðgerð til að laga kviðslit í kringum naflann, þau voru bæði með sama framleiðslugallann og því upplagt að láta laga það samtímis. Aðgerðin gekk mjög vel og við erum bara heima í dag aðeins að jafna okkur eftir svæfinguna.
Nú verður spennandi að vita hvort það tekst að segja fréttir hér öðru hvoru eða hvort önnur verk yfirtaka það. Best að lofa engu!
Kær kveðja í bili - Guðjón Steinn og Silja Kolbrún.
5. nóvember 2007
Komið þið sæl - nær og fjær! Líða fer að jólum og hér hefur ekki verið skrifaður stafur síðan í lok ágúst!!! HVURSLAGS??? Jæja, ætli sé ekki best að stikla aðeins á stóru...
Silja Kolbrún tók fyrstu skrefin daginn eftir afmælið sitt, þann 15. september og mátaði þar með pabba sinn sem sagði að hún myndi pottþétt byrja að labba áður en hún yrði eins árs! Hún var mjög fljót að ná jafnvæginu og fer nú allra sinna ferða gangandi, án þess að hika. Um helgina síðustu byrjaði hún að segja ,,pabba" eftir að hafa kallað bæði pabba og mömmu ,,mamma" í ca 2 mánuði. Þar fyrir utan segir hún ,,hæ", ,,æ", ,,nei" og ,,ahhh" (ef hún er þyrst). Hún kinkar kröftuglega kolli ef hún vill eitthvað og hristir enn kröftugar höfuðið ef hún er mótfallin. Ef eitthvað fer úrskeiðis slær hún með flötum lófanum í ennið á sér en er ekki enn búin að læra að segja ,,DÓ". Hún segir ,,brabbrabb" ef hún sér önd og svo lék hún sér með svín á gólfinu um helgina og sagði stöðugt ,,voff voff"!
Það gengur rosalega vel í ,,Landbørnehaven" hjá okkur báðum, Silja er mjög sátt við lífið í vöggustofunni og ég er sko alsæll með sveitaleikskólann minn. Ég er yfirleitt svo skítugur upp fyrir haus, að mamma vill helst ekki fá mig inn í bíl! En ég nýt þess í botn að vera úti í drullunni og innan um dýrin. Allgjör snilld. Svo er ég hættur að nota bleyju, er bara með svoleiðis á næturnar. Það gengur ágætlega, suma daga samt betur en aðra.
Silja Kolbrún er orðin algjör prakkari, um daginn voru þær mamma að leika sér inni á dýnu og mamma var eitthvað svo þreytt að hún lá hálfsofandi á dýnunni. Sá blundur tók þó snöggan enda með snyrtilegri vatnsgusu, úr glasinu mínu, beint yfir hausinn á mömmu þar sem hún svaf. Ímyndið ykkur bara lætin í mömmu þegar hún vaknaði - hehe, það fannst Silju ekki mjög leiðinlegt og pabba en síður - þau lágu saman í hláturskasti á meðan mamma hnussaði!!! Hehehe.
Ég er mjög fullur af orku þessa dagana, hoppa og dansa eins og Kalli á Þakinu. Hann er sko karl í krapinu, eins og sjá má á gullkornunum mínum (munið að kíkja reglulega á þau - við erum mun duglegri að skrifa þau niður). Svo kom Dóra frænka í heimsókn fyrir 2 vikum og gaf okkur DVD myndina Madagaskar. Eftir nokkrar umferðir af henni syng ég næstum stanslaust ,,Ég fíla dilla, dilla!" Við Dóra dilluðum og dilluðum, og fengum okkur svo úrvals sniglaköku sem hún bakaði handa mér - namm namm! Fyrst snigillinn var teiknaður á súkkulaðiköku fékst ég alveg til að smakka hann... þó mér hafi fundist sniglaátið hennar Dóru hér í vor ansi kjánalegt! Það var rosalega gaman að hafa Dóru í heimsókn, við gátum grallarast alveg helling. Ég fékk líka að fara með að skutla henni í skólann sinn og leist bara nokkuð vel á. Hún verður í Danmörku fram í mars, þannig það verða vonandi fullt af tækifærum til að hitta hana reglulega. Við mamma skruppum til dæmis aðeins í gær að hitta hana. Rosa gaman.
Við systkinin höfum verið nokkuð hraust það sem af er hausti, ef undan er skilin ein vond flensa sem herjaði á okkur um miðjan október. Fyrst lá ég veikur í 5 daga og var bara nokkuð mikið slappur með hita og barkabólgu. Svo þegar ég var orðinn hress aftur veiktist Silja og varð bara mjög lasin, með vonda barkabólgu og svolítinn hita. Hún þurfti að fara tvisvar að hitta lækni og fá meðal, í annað skiptið upp á sjúkrahús og fá meðal í gegnum öndunargrímu. Það tók sem betur fer ekki meira en eina kvöldstund og svo lagaðist hún eftir það. En þetta var slæm pest.
Í byrjun október komu Sigga og Stjáni í heimsókn og gistu eina nótt. Rosalega gaman að hitta þau. Helgina eftir komu Sigga, Stinni og Klara frá Odense og höfðu með sér Magga og Charlottu. Þetta var í fyrsta sinn sem þessi systkini afa í Svínafelli koma í heimsókn og algjör tilviljun að þau skyldu koma í sömu vikunni! Reglulega huggulegt að geta boðið þeim í kaffi!
Síðastliðin föstudag var okkur boðið í mat hjá vinum okkar Rúrik og Hrafntinnu í Viborg. Þetta var afskaplega skemmtileg heimsókn, við vorum að skoða nýja húsið þeirra sem þau eru alveg nýflutt inn í - rosalega fínt. (Mamma ætlaði ekki að nást út aftur, hún sat bara og strauk uppþvottavélinni!!!) Að auki voru Olla og Jóhannes í heimsókn hjá þeim með litlu Sóley dúllu sem er svo dugleg að tala. Silja og Sóley náðu vel saman þrátt fyrir 6 mánaða aldursmun. Reglulega huggulegt og gaman að borða ljúfengan mat í góðra vina hópi.
Í gær fóru ma og pa í bíó í fyrsta sinn eftir að Silja fæddist... haldið þið að þetta sé hægt!!! Aðalheiður og Davíð komu bara og horfðu á sjónvarpið heima hjá okkur svo það var ekki stórmál að fá pössun. Alveg ótrúlegt hvað þetta fullorðna fólk er latt og heimakært! En það var víst gaman í bíó, þau eru nú samt eitthvað galin að þegar þau loksins komast út að kíkja á menninguna, velja þau að sjá teiknimynd! En gourmerottan í París var víst alveg þess virði - stórsniðugt að sjá rottu elda mat!
Jæja lömbin mín, langloka héðan eina ferðina enn! Þeir sem eru svo hugaðir að ná að lesa allan textann gætu kannski kvittað fyrir!
Knús og kossar á línuna, Silja Kolbrún biður að heilsa öllum.
Ykkar labbakútur, Guðjón Steinn
30. apríl 2007
Sæl nú! Allt gott að frétta af okkur litlu púkunum. Frábær helgi að baki, rosa gott veður, grill og huggulegheit. Við fórum í sund á laugardaginn eins og venjulega, það gekk mjög vel og þegar við komum út úr klefanum vildi ég auðvitað gera eins og ég er vanur, setjast við borð með vatn í glasi og lesa blaðið áður en við förum heim aftur. Í þetta skiptið datt ég heldur betur í lukkupottinn, fann bílablað með FULLT af myndum af bílum og mótorhjólum. Þvílíkt happ, ég tók blaðið auðvitað með mér og las það eins og fínn maður í bílnum á leiðinni heim. (Stórt dagblað)!
Um síðustu helgi fóru pabbi og Davíð að sækja drykkjarföng til Þýskalands, mamma og Aðalheiður voru með okkur börnin á meðan. Við fórum að sjálfsögðu út að leika í góða veðrinu. Ég fékk að vera á nýja hjólinu mínu með hjálminn minn, en gallinn var bara sá að við vorum í sandkassanum bak við hús. Það var sama hvað ég nauðaði í mömmu, hún vildi ekki koma hinumegin þar sem auðveldara var að hjóla, því hún var að tala við Aðalheiði. Ég var búinn að ná samhenginu, mamma myndi líklega ekkert koma með mér fyrr en Aðalheiður væri farin. Ég gekk því blákaldur til hennar, setti handlegginn um hálsin á henni og sagði mjög fallega: ,,Aðalheiður, ætlar þú ekki að fara inn núna?" Einhverra hluta vegna sprungu þær kerlur báðar úr hlátri!!!
Seinna sömu helgi fórum við öll í afmæli til hennar Inu hans Bjössa. Þau eiga sitthvort mótorhjólið - afskaplega spennandi fólk!!! Ég stóð lengi í góðri fjarlægð frá hjólunum tveimur og velti þessu mikið fyrir mér. Vildi þó alls ekki koma nálægt þeim. Var lengi vel dálítið lítill í mér í þessarri veislu, en þetta var orðið heilmikið fjör í restina, þegar ég var búinn með 3 stórar sneiðar af súkkulaðiköku. Þegar við vorum að fara sagði pabbi að ég ætti að kyssa Inu bless. Ég gekk galvaskur inn í stofuna og kallaði: ,,Ina, má bjóða þér koss?" Hehe, ójá, ég kann sko á svona skvísur, hún bráðnaði alveg!
Núna er sólin komin fyrir alvöru, það þýðir bara eitt - sólarvörn minnst tvisvar á dag!!! Ég er sonur föður míns og hata allt sem heitir krem! Eftir töluverð slagsmál fyrst, gengur þetta orðið aðeins betur núna, sem betur fer (annars verður þetta langt sumar!!!) Reyndar segja fóstrurnar mínar í vöggustofunni að ég sé eina barnið sem mótmælir ekki sólarkreminu!!! Ekki alveg sú hlið sem ég sýni foreldrum mínum - hehe!!!
Silja er algjör jarðýta, hún nær því sem hún vill ná, punktur!!! Hún hefur yfir afskaplega takmarkaðri ferðatækni að ráða ennþá, en einhvernvegin nær hún bara að teygja sig í það sem hana vantar! Núna er hún farin að sýna mjög mikil viðbrögð þegar mamma kemur heim á daginn, þá æstist hún öll upp og brosir allan hringinn, en verður alveg sótill ef mamma tekur hana ekki upp strax! Annars gengur mjög vel hjá þeim pabba hér á daginn, hún sefur og borðar og leikur sér á víxl. Algjör engill!
Jæja, háttatími börnin góð - heyrumst sem fyrst... og munið kvitt kvitt;) Kíkið líka á nýju gullkornin mín!
Knús og kossar frá litlu sjarmatröllunum, Guðjón Steinn og Silja Kolbrún.
19. apríl 2007
Halló kalló bimbó! Hver er ekki að sinna þessarri vefdagbók??? Jæja, hér koma einhverjar sögur af okkur labbakútunum...
Silja Kolbrún er orðinn svaka stór, hún er farin að sitja upprétt alveg sjálf, hefur reyndar gert það í nokkrar vikur. Hún fékk fyrstu tönnina helgina sem við fórum í sumarbústað, laugardaginn 17. mars heyrðist í fyrsta sinn kling hljóð í skeiðinni. Tönn nr. 2 fannst á páskadag. Núna bíða allir bara eftir því að hún fari af stað, hún er öll á iðið og er ákveðin mjög, ef hún sér eitthvað sem henni langar að ná í fer hún einfaldlega bara og nær í það!!! Er ekki farin að skríða en snýst í hringi á rassinum og svo brasast hún áfram á viljastyrknum einum saman! Þessa dagana er ,,gjúgg í borg" leikurinn hvað vinsælastur, þvottastykki sett á kollinn á Silju og þá er hún týnd þar til hún sjálf tekur það af og þá segir einhver ,,bö, þarna var hún"!!! Hehe - mjög skemmtilegur leikur og oft mikið hlegið;) Hún er svakalega kát og ljúf í lund, borðar vel í flest mál og sefur eins og engill allar nætur. Fer að sofa milli 7 og 8 á kvöldin og vaknar því oft ansi mikið snemma en er sem betur fer mjög dugleg að dunda sér sjálf í rúminu sínu þar til foreldrarnir drattast á fætur!!!
Ég sjálfur, Guðjón Steinn, er líka orðinn svaka stór - algjör strákur! Mömmu og pabba finnst ég ekki lengur vera lítið barn heldur strákpatti sem tekur upp á ýmsu. Ég er nú sem betur fer yfirleitt nokkuð góður og hlýðinn, bara ekki alveg alltaf!!! Ég er samt ekki alveg alltaf sammála mömmu og pabba, t.d. í gær voru þau eitthvað að skamma mig og ég sagði: ,,Ég er ekkert óþekkur, ég er bara að gráta"!!!
Afi í Svínafelli kom í heimsókn til okkar í heila viku rétt fyrir páskana. Það var alveg frábært að hafa hann hjá okkur. Hann lék við Silju á daginn á meðan ég var á vöggustofunni og svo kom hann alltaf að sækja mig og við röltum saman heim. Það var sko hægt að tala um strætóa og mótorhjól við hann, hann hefur þetta allt örlítið meira á hreinu en foreldrar mínir - þau vita ekkert um vélar!!! Við vorum svo úti að leika alla daga, hann kenndi mér fullt af prakkarastrikum - við erum mestu mátar við afi!!! Síðasta daginn skrapp hann í búð og kom heim með þetta fína þríhjól handa mér!!! Algjört æði, blátt og hvítt með körfum að framan og aftan! Svo núna er ég ekta hjólastrákur með hjálminn minn alltaf úti að hjóla þegar tækifæri gefst!
Um páskana komu Hrefna og Magni í heimsókn til okkar alla leið frá Íslandi, þau gistu reyndar annarsstaðar en það var hrikalega gaman að hitta þau. Mér fannst Magni alveg svakalega flottur gaur, því að Bjössi vinur hans skutlaði honum einu sinni hingað til okkar á mótorhjólinu sínu. Ég fylgdist vel með út um gluggann þegar Magni steig af hjólinu og kvaddi Bjössa áður en hann brunaði í burtu aftur. Eftir það var hann flottastur og fékk viðurnefnið Magni mótorhjól!!!
Við brösuðum ýmislegt um síðustu helgi, enda var alveg frábært veður. Við mamma fórum í búð og keyptum mottu á forstofugólfið. Þegar við komum út úr búðinni ók rosa flott rauð lest framhjá okkur = æði!!! Eftir það tókum við öll strætó í sundið og áttum frábæran tíma í lauginni - ég var mjög hugrakkur og skemmti mér vel. Seinnipartinn fórum við pabbi út að leika með Silju á meðan mamma fékk útrás á ryksugunni (henni finnst svo gott að þrífa alveg ALEIN og vill ekki að neinn sé fyrir henni)!!! Á sunnudaginn fór ég með mömmu og Aðalheiði að versla í matinn fyrir vikuna, þar sá ég mótorhjól fyrir utan búðina = æði! Við fengum okkur svo hádegisverð í garðinum og skelltum okkur svo í blómabúðina til að kaupa blóm á svalirnar. Þar sem pabbi var að spila fótboltaleik, bað ég Davíð að keyra mig í kerrunni - mamma á eitthvað svo erfitt með að ýta bæði kerrunni minni og barnavagninum hennar Silju!!! Ég steinsofnaði í kerrunni, nokkuð sem ekki hefur gerst í marga marga mánuði! Mamma og Aðalheiður gengu svo af göflunum í gróðursetningunni á meðan ég hafði ofan af fyrir litlu stöllunum. Á mánudaginn fórum við pabbi með bílinn í risastóru bílaþvottavélina, það er alltaf jafn gaman að fylgjast með því. Og óhætt að segja að bíllinn hafi orðið hreinn og sætur, svo sætur að hann rann í gengum skoðun á augabragði (pabbi því mjög kátur)! Já, við höfum nóg fyrir stafni!
Jæja, kíkið á gullkornin mín, mamma er alltaf að safna - hehe!
Knús og kossar, ykkar töffari Guðjón Steinn og Silja Kolbrún litla systir.
7. mars 2007
Halló sæta fólk! Hér kemur smá fréttayfirlit frá okkur systkinapúkunum!!! Hér er alltaf nóg að gera!
Skipulögð dagskrá er þemað þessa dagana! Allir á fætur hálf sjö, bleyjur, föt og morgunmatur á sinn stað áður en við feðgarnir brunum á bílnum í vöggustofuna. Um leið og pabbi kemur heim aftur skýst mamma út um dyrnar og tekur strætó í vinnuna. Þar er hún frá hálf níu til fjögur, alltaf nóg að gera hjá henni að teikna og svona - mjög gaman, skilst mér. Á meðan eru pabbi og Silja að stússast hér heima, á milli þess sem Silja sefur og borðar, hamast þau saman í húsverkunum - svona eins og brotni þumalfingurinn leyfir. Ef mamma mögulega kemst á réttum tíma heim úr vinnunni (sem er ekki alveg alltaf hægt að stóla á), kemur hún að sækja mig og við röltum saman heim. Þar bíða okkar verkefni, alveg nauðsynlegt að setjast aðeins niður saman og spjalla um viðburði dagsins. Svo hjálpa ég yfirleitt mömmu að elda matinn, stundum fer ég í bað og oftar en ekki horfum við saman á ,,Fyndnar fjölskyldumyndir" í sjónvarpinu. Þá veltist ég um af hlátri - yfirleitt af því að ma og pa eru að hlæja, hehe!!! Svo er kominn háttatími og ég er orðinn svakalega duglegur að sofna sjálfur - aldrei neitt vesen með mig lengur (hjúkk)!!!
Reyndar er ég einmitt nýbúinn að eignast nýtt rúm, svona alvöru stórustrákarúm 90x200 sem ég get bara notað fram að fermingu!!! (Hagsýnir foreldrar ;) Ég er mjög sáttur og var sko alveg til í að sofa í nýja rúminu strax fyrstu nóttina. Ekki skemmdi fyrir að mamma hafði keypt rosalega flott efni með dráttavélamyndum sem hún setti utan um upprúllaðar sængur í hliðunum til að reyna að gera það notalegra. Ég varð ekkert smá hrifinn þegar ég sá það, enda eins og þið vitið, afskaplega hrifinn af dráttarvélum!!! Núna rimlarúmið mitt komið inn til pabba og mömmu, því Silja Kolbrún gat ekki verið lengur í vöggunni, hún var orðin allt of kröftug til þess - allt lék á reiðiskjálfi þegar hún var að bylta sér!!! Já börnin stækka á þessu heimili!!!
Silja Kolbrún er orðin algjör bolti, byrjaði um helgina að rúlla sér af bakinu yfir á magann og því er líklega stutt í að hún fari að rúlla hér um alla íbúð! Hún er dugleg að borða og drekka og sofa. Algjör engill. Nema þegar hún situr í tripptrapp stólnum við eldhúsborðið - þar er ekkert óhult fyrir henni!!! Fíni kertastjakinn frá afa og ömmu í Miðfelli hefur formlega verið færður, eftir að hann ítrekað var í mikilli fallhættu!!! Svo engillinn hefur ákveðnar skæruliðahliðar sem munu eflaust koma betur og betur í ljós næstu vikurnar! Við erum svakalega góðir vinir, stundum sitjum við saman og hlægjum okkur máttlaus að engu (halda foreldrar okkar - híhí) við eigum okkur mörg, góð leyndarmál!
Ég er alltaf kátur og finnst mjög gaman á vöggustofunni minni. Fóstrunum mínum finnst ég vera mikill húmoristi. Um daginn þegar ég var nývaknaður og ruglaður í vagninum mínum, sagði ég við fóstruna mína: ,,Mamma kemur að sækja mig á græna bílnum". Einhvern vegin tókst henni að heyra: ,,Mamma kemur að sækja mig á brunabílnum"!!! Mér fannst þessi misskilningur svo fyndinn að ég veltist um af hlátri og var svo alla daginn að tauta þetta fyrir munni mér! Ég er búinn að finna upp mjög skemmtilegan leik, sem leikinn er í brekkunni á leiksvæðinu okkar - helst í mikili drullu!!! Þá fer ég alveg efst upp í brekkuna og hleyp svo niður eins hratt og ég get, þar til ég hryn á hausinn og rúlla þaðan niður á jafnsléttu! Brekkan er sem betur fer ekki mjög löng - því núna eru næstum því allir hinir krakkarnir farnir að apa þetta eftir mér! Agalega fínt, því afleiðingarnar eru undantekningarlaust MJÖG skítugur lítill strákur!
Í dag tókum við mamma strætó heim úr vöggustofunni - ég var mjög ánægður með það, mér finnst æðislegt að vera í strætó! Bílstjórinn var mjög vingjarnlegur við mig og veifaði mér þegar ég fór út. Ég hafði nóg að segja pabba þegar ég kom heim, það er svo gaman þegar maður fær að prufa svona stöku sinnum!
Aðal áhugamálið mitt þessa dagana er að spyrja: ,,Hvað er klukkan"??? Ég er mjög áhugasamur um þau mál. Um daginn vakti pabbi mig og ég settist upp í rúminu, teygði mig og sagði: ,,Góðan daginn, pabbi - hvað er klukkan??? Í dag sat ég svo heillengi og tautaði: ,,Hvað er klukkan? Hún er korter yfir jólasvein! Hún er hálf pabbi! Hún er hálf strætó!!!" Kannski er ekki heilagur sannleikur að nota tölur? Hehe!
Jæja, krúttin mín - ég er alveg örugglega að geyma alveg helling... en þá verð ég bara að skrifa fljótt hér inn aftur. Munið KVITT KVITT - það er svo gaman að sjá hverjir kíkja við! Bestu kveðjur frá Silju Kolbrúnu og settinu.
Knús og kossar, ykkar Guðjón Steinn tímavillti!
10. febrúar 2007
Halló allir, Silja Kolbrún hér! Langt síðan ég hef lagt orð í belg á þessarri síðu! Hér er bara allt að gerast, nýjar myndir í dag og nýjar fréttir! Húrra fyrir okkur! Annars er allt gott að frétta....
Fyrsta mál á dagskrá er að óska mömmu okkar til hamingju með afmælið þarna um daginn - og hún bað mig um að þakka ykkur fyrir allar kveðjurnar, gjafirnar, bréfin, símtölin og smsin sem hún fékk, aldeilis margir sem mundu eftir deginum hennar. Hún var ennþá lasin heima á afmælisdaginn sinn en dreif sig samt í að baka köku og bauð svo nokkrum nágrönnum okkar í kaffi. Það var mjög notalegt, alltaf gaman að hafa ástæðu til að hitta fólk. Pabbi var líka að halda upp á að þennan sama dag voru 30 ár síðan hann fór í fyrstu hjartaaðgerðina! Ótrúlegt!!! Við erum nú mjög þakklát fyrir að sú aðgerð gekk vel, annars værum við systkinin ekki hér í dag!!!
Í gær átti Dóra frænka afmæli og Guðjón Steinn og mamma hringdu í hana. Guðjón Steinn spurði Dóru hvað hún væri að fara að gera og hún sagðist vera að fara á veitingastað að borða góðan mat, þar á meðal snigla! Guðjóni Steini fannst hún svo rugluð að hann fékk hláturskast yfir þessu sniglaáti og svo þegar hann náði andanum sagði hann: ,,Dóra frænka borða snigla! Borða lykla! Borða jakka!" Hehe - honum fannst það svo út í hött að borða snigla að það jafgilti því að fá sér lykla eða jakka í matinn! Þetta varð eitt heljarinnar hláturskast hjá þeim öllum þremur og því mjög skemmtilegt símtal!
Í gær var ég með smá hita og var agalega illt í maganum, grét mjög sárt og gat hvergi sofnað nema í fanginu á mömmu! Vildi ekkert borða og var rosalega lítil í mér! Í morgun var ég sem betur fer skárri, mjög hress í lund og borðaði helling en samt með hita. Við pabbi fórum því ekki með í sund, því hann er jú með brotinn putta! Mamma og Guðjón Steinn fóru bara tvö og skemmtu sér konunglega. Þegar þau komu heim borðaði Guðjón Steinn tvær stórar bollur og svo tvær sneiðar af skúffuköku í eftirmat, algjört matargat!!! Mamma hélt að það væri ekki pláss fyrir svona stóran skammt í bumbunni hans, híhí!
Jæja, lítið fleira í fréttum. Knús á línuna...
ykkar litla systir, Silja Kolbrún!
6. febrúar 2007
Hej hej og god dag! Já núna er ég alveg á fullu að æfa mig í dönskunni, var örlítið ryðgaður í henni eftir jólafríið eins og von var - það voru ekki margir heima á Íslandi sem nenntu að tala dönsku við mig! En þetta er allt að koma hjá mér.
Núna er kominn febrúar og því ætti mamma að vera byrjuð í praktík á arkitektastofu niðri í bæ. Hún er búin að fara einn dag en annars hefur hún verið hér heima með flensu, auminginn! Gott að hafa hana í vinnu, eða þannig! Pabbi er ekkert skárri, hann fór á fótboltaæfingu á föstudaginn og kom heim með brotinn þumalfingur!!! Þau voru gáfuleg hérna heima um helgina, eða hitt þó heldur! Haltur leiðir blindann eins og stendur einhversstaðar! Vonandi fer mamma nú samt að komast á lappir og pabbi er sem betur fer að verða sæmilegur, má samt ekkert hreyfa puttann í 6 vikur!!! Jæja, nóg um eymd og volæði - það gæti nú verið verra!
Ég er ferskur og kátur eins og alltaf. Ég fór í afmæli til Árna Magnúsar í gær en hann er einmitt ný orðinn 3ja ára! Ég er þessa dagana að reyna læra að ég er tveggja ára (tveir puttar upp í loft) og hann er þriggja (þrír puttar), stundum er svolítið erfitt að átta sig á þessum puttum. En það var gaman í afmæli, við fengum rosalega flotta strætóköku og ég borðaði þrjár stórar sneiðar (kann alveg að meta súkkulaðikökur)!!!
Um síðustu helgi fengum við okkur bíltúr til Kolding og heimsóttum Dagnýju og Andra. Ég lék mér við Krister Frank, hann á rosalega mikið dót og er mjög skemmtilegur strákur, og með eindæmum góður við mig. Hann á litla systur eins og ég og hún er byrjuð að rölta um allt. Við áttum reglulega góðan dag með þeim og ætlum að hitta þau sem fyrst aftur.
Núna er ég ný búinn að fatta að flest allt dótið mitt er gjöf frá einhverjum og því spyr ég í sífellu ,,Hver gaf mér þessa bók" eða ,,hver gaf mér þessar buxur"! Svo tauta ég þetta fyrir munni mér alltaf þegar ég nota hlutina ,,Ásta og Grétar gáfu þennan Tomma togvagn" og ,,Silvana og Camilla gáfu þessa brók"! og svo framvegis. Það er því mikilvægt að ég fái réttar upplýsingar um gefandann frá upphafi, og þar sem það er mamma sem hefur stjórn á gjafabókhaldinu á heimilinu er best að spyrja hana! Pabbi er ekki alveg eins ferskur í að muna hvaða flík er frá hverjum, sama hvað hann reynir!!!
Það er orðin föst venja hjá okkur að meðan við borðum morgunmat, kveikjum við á kertunum í fína kertastjakanum frá langömmu og langafa í Miðfelli. Ef morgunmaturinn á erfitt með að komast upp í munn og ofan í maga, býr mamma stundum til sögu um langömmu og langafa. Þau eru mjög dugleg að borða hafragraut á morgnana og svo fer langafi á rúntinn á jeppanum sínum. Sagan er aldrei eins en alltaf jafn skemmtileg, þau lifa ævintýralegu lífi þarna í Miðfelli! Ótrúlegt hvað einn kertastjaki getur orðið efni í miklar umræður! Og grauturinn verður mikið betri fyrir vikið!
Smá fréttir af Silju Kolbrúnu, hún er orðin algjör bolla enda mjög dugleg að borða graut, sveskjumauk og drekkur mjólk úr pela. Hún rúllaði sér af maganum yfir á bakið í gær, fór tvisvar í hvora átt, svo þetta var ekkert óvart í þetta skiptið. Hún er alltaf að verða þolinmóðari að vera á maganum á gólfinu og er farin að ýta sér aðeins afturábak ef hún verður æst! Hún er yfirleitt mjög kát og hlær mikið, enda fullt af trúðum á heimilinu! Nætursvefninn er alltaf að verða betri og betri, í gær sofnaði hún um 8 eftir heilmikla grautarmáltíð, vaknaði augnablik kl.9 til að losa sig við nokkra ropa og svo svaf hún til 7 með tveim stuttum brjóstapásum! Algjör hátíð miðað við hvernig þetta hefur verið undanfarnar vikur! Þau pabbi eiga eftir að hafa það gott hérna heima næstu mánuðina!
Jæja, nóg í bili! Munið að kíkja öðru hvoru á gullkornin mín - mamma reynir að skrifa þau inn svolítið jafn óðum!
Knús og kossar á línuna, ykkar Guðjón Steinn yfirgrallari.
31. janúar 2007
Jæja, langaði bara rétt að segja hæ, svona áður en janúar klárast alveg!
Af okkur er allt ágætt að frétta, lífið gengur sinn vanagang og við systkinin erum bara nokkuð kát þessa dagana. Silja Kolbrún stækkar og stækkar, er farin að borða graut tvisvar á dag, þambar mjólk úr pela þess á milli og sefur vel í vagninum sínum. Hún sefur betur og betur með hverri nóttinni sem líður, mömmu til mikillar ánægju, því hún hefur verið frekar óróleg alveg síðan við komum heim. Gómarnir hennar eru oft mjög aumir og henni klæjar alveg svakalega mikið, nagar og slefar í akkorði! Hún farin að hreyfa sig meira, alveg á mörkunum að hún rúlli sér af maganum yfir á bakið þegar hún liggur á gólfinu, og svo sparkar hún oft af sér sænginni áður en hún sofnar í vöggunni sinni á kvöldin! Hún þarf mjög fljótlega að fá rúmið mitt því vaggan er alveg að verða of lítil fyrir hana. Þá fæ ég nýtt rúm, svona stórustrákarúm sem ég kemst sjálfur framúr og allt! Það verður spennandi að prufa það! Annars er ég orðinn mjög duglegur að sofna sjálfur á kvöldin, ég fæ bara koss og knús og allt það um leið og ég er búinn að bursta tennurnar og svo sofna ég bara sjálfur í mínu eigin rúmi. Fæ auðvitað að kúra hjá bók dagsins eða dráttarvel dagsins, ég vel mér nefnilega alltaf svona uppáhalds bók eða leikfang sem ég nota mest þann daginn eða jafnvel alla vikuna og þá vil ég að sjálfsögðu helst sofa með það hjá mér.
Á vöggustofunni minni eru miklar breytingar þessa dagana, þrjár af fóstrunum mínum sem hafa virkilega verið í uppáhaldi hjá mér hættu í dag því þær voru bara í starfsþjálfun hjá okkur. Núna þurftu þær því að byrja aftur í skólanum, mjög sorglegt því ég hef þekkt þær í hálft ár og allar voru þær yndislegar! Vonandi koma bara aðrir frábærir starfsmenn í staðinn. Ég er mjög sáttur á vöggustofunni þessa dagana, það er svo mikið að gera hjá okkur í þessu ótrúlega góða janúarveðri, við erum alltaf úti að leika og förum oft í ferðir og svona. Um daginn fór ég ásamt nokkrum öðrum í strætó alla leið niður á brautarstöð að skoða lestarnar!!! VÁ, það var rosalega gaman því ég er bæði mjög hrifinn af strætóum og lestum!!! Ég spyr mömmu oft hvort við ætlum ekki fljótlega aftur að fara í lestina og í flugvélina eins og um jólin! Því miður lítur ekki út fyrir slíkt ferðalag alveg á næstunni.
Ég er mjög upptekinn af stöfunum, er alltaf að biðja mömmu og pabba að skrifa fyrir mig minn staf og Silju staf o.s.frv. Ég þekki orðið nokkra stafi á bókarkápum, runan hljómar svona: ,,Eplið á þennan staf, Nonni á þennan staf, Lestin á þennan staf, Friends á þennan staf..." og svo framvegis! Ég veit ekki enn hvað stafirnir heita en get orðið tengt þá við margt samt! Þetta er mjög skemmtilegur leikur og pabbi er búinn að lofa að kaupa stafaplakat handa mér!
Jæja, háttatími hjá þægum börnum... en þið sem eruð að stelast hingað inn, hvernig væri nú að muna eftir gestabókinni svona öðru hvoru, blikk blikk! Þau gömlu yrðu SVO glöð!
Knús og kossar, ykkar Guðjón Steinn - stafakarl!
24. janúar 2007
Góðan dag og gleðilegt ár, takk fyrir allt gamalt og gott hér á barnalandinu. Nú er langt síðan ég hef skráð fréttir og því af nógu að taka. Best að byrja einhversstaðar...
Miðvikudaginn 9. desember lögðum við fjölskyldan uppí ferð og stefnan tekin á Ísland. Þetta er heljarinnar ferðalag fyrir stuttar fætur eins og mínar. Til að komast héðan til Íslands á einum degi þarf aðstoð margskonar farartækja. Klukkan 6:30 settumst við inn í græna bílinn okkar og höfðum hana Aðalheiði á milli okkar í aftursætinu því hún ætlaði að passa bílinn okkar á meðan við vorum að heiman. Kvöddum hana og bílinn á lestarstöðinni í Århus og drösluðum fjölskyldu og farangri inn í lestarvagn á leið til Kastrup. Í lestinni dunduðum við okkur við söng og lestur í tæpa 4 tíma þar til hún sturtaði okkur úr á flugstöðinni. Fjölskyldu og farangri var dröslað á kerrur og inn í húsið þar sem 3 stórar töskur voru settar með öðrum farangri. Þrátt fyrir sakleysislegt útlit þurfti að vopnaleita allan hópinn, allir urðu að fara úr yfirhöfnum og allar töskur ásamt burðarrúminu þurfti að fara í gegnumlýsingarvélina. Meiriháttar mál að koma öllu á sinn stað aftur, en þegar búið var að telja okkur systkinin og handfarangurspinklana okkar 6 létti mömmu og pabba svo mikið að þau náðu að heilsa Peter Smeichel (fyrrverandi markvörður Manchester United), sem var einmitt næstur á eftir okkur í gegnum vopnaleitina! En ekki mátti drolla, fyrir lá að skipta um tvær bleyjur og gefa á garðann áður en kallað yrði út í vél. Allt gekk að óskum, foreldrarnir voru stanslaust að telja ,,1, 2 börn og 1, 2, 3, 4, 5 og 6 handfarangurspinklar! Verst að hafa ekki excel að styðjast við í þessum útreikningum! Allir komust klakklaust út í flugvél og ég sofnaði áður en flugvélin fór af stað, enda búin að vera vakandi í 8 tíma þegar þarna var komið sögu. Silja svaf bara líka svo það þurfti ekki að hafa mikið fyrir okkur. Þegar ég vaknaði í flugvélinni fannst mér rosalega gaman þegar hún hristist og eins var lendingin algjört fjör - ég er svo mikill tívolístrákur. Í Leifsstöð hófst talningin á ný; börnin, handfarangurinn og töskurnar ásamt tollinum í fríhöfninni. Sem betur fer stóð elsku Gógó frænka tilbúin að taka á móti okkur þegar við komum út, þreyttir ferðalangar voru mjög hamingjusamir að hitta hana. Hún mokaði okkur og draslinu öllu inn í fína jeppann sinn og bauð okkur í mat heima hjá sér í Grindavík. Agalega gott að slaka á hjá henni og Alex. Okkur að óvörum komu Steini, Sóley, Ingibjörg Lilja og Árni Steinn líka í mat til þeirra, það var svo yndislegt að hitta þau öll! Um kvöldið skutlaði Gógó okkur svo heim til Siggu og Stjána þar sem við fengum að búa næstu fjóra dagana. Löngum ferðadegi farsællega lokið, en mikið var nú gott að komast í rúmið þetta kvöld!
Næstu dagan var nóg að gera, marga að hitta, afa og ömmur, móður og föður, frænkur og frændur, vini og kunningja. Yndislegt en sorglega stuttur tími til alls! Á sunnudeginum fengum við far austur á bóginn með afa í Svínafelli og vorum samferða Nonna frænda og Steinu móðu. Þrátt fyrir hálku og vonda færð gekk ferðin vel og endaði að sjálfsögðu í mat hjá ömmu í Svínafelli. Þar vorum við í tvær nætur, rétt nóg til að kíkja eina umferð í fjósið og fjárhúsin, prufa aðeins dráttarvélina hans Guðjóns frænda og svona. Á þriðjudeginum drifum við okkur í Hoffell og þar náðum við svo loksins að stoppa aðeins og slaka á. Nutum lífsins með afa og ömmu, Sigfinni og hundinum Spígoni til að byrja með en fljótlega bættust svo allir hinir í hópinn. Við afi og Árni Steinn fórum oft út að vinna, gáfum kindunum og svo þurftum við auðvitað að athuga hvort allar vélarnar hans afa virkuðu ekki sem skyldi. Því fengum við oftar en ekki að prufa fjórhjól, jeppa, gröfu og vörubíl, allt sama morguninn! Þvílík veisla!!!
Á Þorláksmessu fór öll hersingin saman út á hótel að borða skötu og saltfisk - ég fékk mér pitsu, franskar og stóran skammt af grjónagraut! Um kvöldið var jólatréð skreytt og við Árni Steinn fengum að taka þátt í því. Því næst máluðum við piparkökur í eldhúsinu hjá ömmu. Jólin voru haldin hátíðleg eins og vera ber og eftir matinn á aðfangadag mynduðum við börnin pakkakeðju frá öllum pakkafelustöðum að jólatrénu. Það fannst mér spennandi, en stundum var pínu erfitt að muna að það mátti ekki hlaupa! Þegar allir pakkarnir voru fundnir máttum við byrja að opna þá. Þetta var pínu erfitt því ég er þannig innréttaður að mér finnst best að leika mér bara smá með hverja gjöf eftir að ég opna hana, en það gafst enginn tími til þess, því gjafirnar voru svo margar! Ég fékk alveg ofsalega margar fínar gjafir og ég er svo ánægður með hverja eina og einustu gjöf! Takk fyrir mig allir! Mamma, pabbi og Silja Kolbrún fengu líka rosalega margar fallegar gjafir, það tók mömmu marga daga að hreinskrifa gjafalistann, svo langur var hann!
Á jóladag var slakað á og afi bauð okkur í bíltúr inn að jökli. Svaka fjör! Á annan í jólum var Silja Kolbrún skírð í Hoffelskirkju af séra Einari Jónssyni. Þetta var afskaplega lítil skírnarveisla, bara fjölskyldur okkar í Hoffelli og Svínafelli komu og glöddust með okkur. Þetta er að verða hefð hjá okkur að mamma og pabbi skíra barn í Hoffelskirkju á annan í jólum á tveggja ára fresti, því ég var skírður þar fyrir tveim árum síðan. Ferlega huggulegt.
Þann 28. des var svo komið að því að yfirgefa Hoffell og kveðja alla þar í bili, því þá var röðin komin að Svínafelli. Afi Dúddi brunaði með okkur og allt okkar hafurtask suður í Öræfi. Þar biðu afi og amma spennt eftir barnabörnunum og móðurnar tvær tilbúnar í dekrið! Þegar litla fjölskyldan var aftur komin niður á jörðina eftir ferðalagið kom í ljós að dágóð hrúga af jólagjöfum beið okkar þar, pakkar frá allri fjölskyldunni í Svínafelli. Enn fleiri fallegar gjafir bættust í safnið og nú voru góð ráð dýr að velja DVD mynd í sjónvarpið á morgnana! Emil eða Söngvaborg 4? Erfitt líf þegar maður er bara 2ja og hálfs. Við áttum notalega daga í algjörri afslöppun í Svínafelli, einu verkefnin voru að fara út að hoppa í pollunum, kíkja í fjósið og í fjárhúsin þar sem kindin mín, hún Assa á heima. Við mamma skírðum hana saman og okkur fannst við hæfi að hún fengi þetta nafn þar sem hún er arnhöfðótt!
Á gamlársdag var mikið að gera hjá mér. Við pabbi byrjuðum á að fara í jeppanum hans Halldórs frænda inn í Freysnes þar sem bryndrekinn stóri er geymdur. Pabbi er svo cool að hann kann alveg að keyra hann og því bauð hann mér í ökuferð á þessu stórkostlega farartæki. Svo fórum við að safna í brennu með hinu fólkinu og þar fékk ég að hjálpa Guðjóni frænda að keyra dráttarvélina. Svo tókst mér líka að plata Lalla til að leyfa mér að prufa að sitja í gröfunni sinni - algjört æði! Ég fór svo heim með afa í jeppanum hans og kíkti á ruslabílinn í leiðinni. Æðislegur dagur!!! Um kvöldið fóru allir á brennu og við systkinin fórum með, vel dúðuð. Það var fullkomið veður, logn og tunglskin. Það var hörkufjör að sjá eldinn og alla flugeldana. Amma og Silja sátu inni í bíl á meðan við vorum að leika okkur með stjörnuljós og blys. Þetta tók svo mikla orku að ég var sofnaður fyrir miðnætti og náði því ekki að kyssa alla gleðilegt ár.
5. janúar kvöddum við alla í Svínafelli og brunuðum með afa suður til Reykjavíkur. Hann skilaði okkur af sér í Vættaborgunum hjá Steina og Sóley því þar ætluðum við að vera síðustu dagana. Þá um kvöldið kom Fríða frænka að hjálpa Ingibjörgu Lilju að passa okkur öll frændsystkinin, því mamma og pabbi fóru í partý með Steina og Sóley. Seinna um kvöldið komu amma og afi í Hoffelli og slógust í barnapíuhópinn. Mamma og pabbi voru afskaplega áhyggjulaus úti á lífinu og komu seint heim - mjög gaman fyrir þau. Daginn eftir var þrettándinn og þá borðuðum við öll saman fínan mat og þeir sem vildu horfðu á flugeldanan út um gluggann. Við kvöddum afa og ömmu þarna um kvöldið því þau voru á leiðinni í afslöppunarferð til Kúbu um nóttina.
Á sunnudeginum fórum við á Selfoss og beint í kaffi til Ástu og Grétars. Þaðan fórum við í mat til Magga og Kollu og gistum þar um nóttina. Áður en við fórum aftur til Reykjavíkur heimsóttum við ömmu Gunnu og afa Árna. Það sem var eftirminnilegast úr þeirri heimsókn var þegar langafi sýndi mér bílinn sinn, en hann var INNI í húsinu! Svo setti hann bíllinn í gang og ók út um stóru hurðina sem lokaðist síðan sjálfkrafa á eftir honum. Alveg var ég gapandi hissa á þessu, kannski ekki skrítið þar sem ég hef aldrei séð bíl í bílskúr áður!
Mánudagskvöldið var notað til að pakka niður og kveðja alla, því við þurftum að leggja rosalega snemma af stað í flugið daginn eftir. Fríða frænka skutlaði okkur út á völl og við vorum mætt þangað rúmlega 6. Heimferðin gekk rosalega vel, ég sofnaði í flugtaki, var vakandi þegar vélin byrjaði að gefa í en var sofnaður þegar hjólin slepptu jörðinni. Við sváfum öll næstum því alla flugferðina og vorum því tilbúin í lestarferðina löngu. Mikið vorum við nú fegin þegar við komum út af lestarstöðinni í Århus og sáum Aðalheiði og græna bílinn okkar!!! Og mikið var gott að koma heim! Ég þeyttist um allt hús og lék mér smá að næstum því öllu dótinu mínu! Það var þreytt fólk sem lagðist á koddann rúmlega 9 þetta kvöld eftir langa en afskaplega velheppnaða Íslandsferð.
Síðustu tvær vikurnar höfum við verið að ná okkur eftir ferðalagið, koma lífinu í fastar skorður aftur. Ég var alsæll að komast í vöggustofuna mína, mér finnst afskaplega gott að hafa reglu á hlutunum og því hentar mér svona hversdagsleiki ákaflega vel. Mamma og pabbi eru bæði í fæðingarorlofi fram til 1. febrúar en þá byrjar mamma í praktík á arkitektastofu hér í Århus. Þangað til njóta þau þess bara að hafa tíma til að vera saman og drekka kaffið sitt yfir dagblöðunum á morgnana. Ljúfa líf.
Jæja, vonandi get ég svo sett inn einhverjar fréttir fljótlega aftur, gott að koma þessu ferðalagi á blað áður en allt gleymist.
Knús og kossar frá okkur öllum, ykkar ferðalangur Guðjón Steinn.