![]() |
| Við erum systurnar Tinna María og Sunna Lind |
|
|
Um mig:
Tinna María fæddist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þann 5. ágúst 2004 og kom í heiminn einum degi fyrir áætlaðan fæðingardag. Mamma var að vonast til að fá mig í afmælisgjöf en hún á afmæli 9. ágúst en auðvitað vildi ég bara hafa minn eigin afmælisdag:o) Koma mín í þennan heim gekk rosalega vel eða um fjóra tíma frá fyrstu verkjum. Ég var rúmar 15 merkur og 52 cm. Ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir Guðrún Guðbjartsdóttir og var hún alveg yndisleg í alla staði. Ég fæddist með mikið dökkt hár og blá augu og er algjör beautybolla:-) Ég var skírð 17. október 2004 (á afmælisdegi afa Mumma) í Hafnarkirkju og fékk nafnið Tinna María.
Sunna Lind fæddist á Heilbrigðisstofnun suðausturlands þann 12. júní 2006 og kom í heiminn 3 dögum eftir áætlaðan fæðingardag. Koma mín í þennan heim gekk ótrúlega vel og tók tæpar 2 klst. frá því að mamma vaknaði um nóttina við fyrstu verkina:o) Ég var tæpar 16 merkur og 52 cm og ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir Áslaug Valsdóttir. Ég fæddist með mikinn dökkan lubba og er með falleg og stór blá augu. Ég var skírð 30. júlí 2006 í Hafnarkirkju og fékk nafnið Sunna Lind. Foreldrar okkar heita Sævar Gunnarsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir og við búum á Hornafirði og erum alveg alsæl þar. Við erum líka svo heppnar systur því mamma okkar og pabbi elska okkur meira en allt í heiminum því við erum litlu hjartagullin þeirra:) Sögur segja að við séum nú frekar ólíkar en það eru nú skiptar skoðanir á því en eitt er víst að við erum mestu og bestu dúllurnar. Tinna María er á Lönguhólum og heitir deildin hennar Blómadeild. Sunna Lind er líka á Lönguhólum en er aftur á móti á Sunnudeild. Þeim systrum finnst fátt skemmtilegra en að fara í leikskólann og hitta þar vini sína og skemmtilegu leikskólakonurnar:)
|
|
|
Annað:
Selma Ýr og Áróra Dröfn Birta Rós og Sigurjón Birta María og Ríkharður Daði Veiga Dís og Matthildur Mía Margrét Líf, Eiður Ingi & Guðmundur Leví Ásgeir Orri Amelía Rún Eva Lind Magnúsdóttir Natalía Sól Kristjana Margrét Rósabörn Magdalena Sunna
Til Pabba míns Ég elska þig af því að þú elskar mig. Mér finnst þú frábær og æðislegur og þú verður það alltaf. Ég elska þig vegna þess að þú vinnur svo mikið til að eiga mat handa okkur og þak yfir höfuðið okkar. Ég elska þig vegna þess að þú er PABBI MINN.... Mig langar svo til að segja þér hve kær þú ert mér og hve mikils virði þú ert í mínum augum. Ég tel mig lánsama að hafa fengið að kynnast þér.
MAMMA! Er konan sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn, fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI.
ELSKU MAMMA OG PABBI: Ég er með svo litlar hendur, ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni Fæturnir á mér eru svo stuttir, farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir Horfðu á mig þegar ég tala við þig, Þá veit ég að þú ert að hlusta Ég hef viðkvæmar tilfinningar, ekki vera alltaf að skamma mig Leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vitlaus Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið Elskaðu mig fyrir að reyna Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera Stundum skil ég ekki það sem þú segir Ég elska ykkur svo mikið Elskið mig bara fyrir að vera ég Ekki fyrir eitthvað annað.
ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ! Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma. Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku. Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi. Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd. Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði. Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust. Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna. Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni. Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark. Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu. Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska. |
| Þú ert gestur nr. 25139 |