Velkomin á heimasíðuna okkar, endilega kvittið í gestabókina. Okkur þykir svo rosalega gaman að fá að sjá hverjir eru að heimsækja okkur :)
Við erum systurnar Ronja, Alís og Sigyn Elmarsdætur og erum algjörar draumaprinsessur. Við búum í Førde í Noregi en erum frá Fögru Akureyri


Um mig:
Ronja:

Ég er lítið stelpukríli og heiti Ronja. Mamma mín heitir Eyrún Gígja Káradóttir (82) og pabbi minn heitir Elmar Dan Sigþórsson (82). Ég fæddist þann 10. nóvember 2004 á afmælisdaginn hans Sævars frænda míns sem hefði orðið 35 þennan sama dag. Ég var rúmar 14 merkur eða 3660gr og 52 cm þegar ég kom í heiminn. Það tók nú ekki langan tíma mamma fékk fysta verkin um 10 kvöldið 9. nóv og svo var kominn í heiminn um nóttina kl. 4:11 þann 10 nóv. Mamma og pabbi voru alveg að rifna úr stolti og ljósmóðirinn alveg steinhissa á því hvað ég var stór þar sem mamma hafði verið með svo litla kúlu. Mömmu og pabba fannst ég vera fallegasta stelpa sem fæðst hefur í þennan heim, ég var með kolsvartan lubba, svartar augabrúnir og stór dökk augu.


Alís:

Ég er lítið stelpukríli og heiti Alís. Ég fæddist 11.11 2007 sem var daginn eftir að Ronja stóra systir varð 3ja ára. Mamma vaknaði klukkan 4 um nóttina og fann fyrir fyrstu hríðina klukkan 4:32. Mamma og pabbi voru mætt upp á sjúkrahús 40 mín áður en skaustég í heiminn. Ég var með brúnt hár og var 17 merkur og 54 cm algjör moli. Ég er algjört draumabarn sef bara og sef og mamma, pabbi og stóra systir eru í skýjunum með mig.

Sigyn:
Ég er lítið stelpu kríli sem fæddist 24.09.2011 og var 4260 gr. og 52 cm löng. Ég fór 3 vikur framyfir og mamma var alveg að brjálast á stælunum í mér. Loks var hún sett á stað með því að sprengja belginn klukkan 09:30 á föstudagsmorgni og var ég komin öskrandi í heiminn klukkan 13:00 sama dag. Systur mínar voru svo spenntar að sjá mig og mamma og pabbi voru alveg í skýjunum ég var svo fínt. Ég er algjör lubbi fæddist með agalega mikið og sítt dökkt hár og síðan þá vex það bara og vex og 3,5 mánaða fór ég í mína aðra klippingu ;0)




Annað:
Ronja:

Astrid Lindgren fann upp á nafninu Ronja fyrir Ronju ræningjadóttur, hún tók það úr nafninu "Juronjanre" sem er stöðuvatn í Lapplandi

Alís:
Ég finn ekkert um nafnið Alís en það er íslensk útgáfa af nafninu Alice.



Sigyn:
Sigyn er nafn úr norræni goðafræði, hún er gift loka og saman eiga þau synina Narfa og Val

Sigyn er i den Norrøne mytologien gift med Loke. Sammen får de sønnene Narve og Vale
Þú ert gestur nr. 58887