Núna eru
online að skoða síðuna
Við heitum Natalía Ruth Davíðsdóttir & Aron Þór Davíðsson


Um mig:
Natalía, fæddist 14. Ágúst 2004 kl: 11,57. á Landsspítalanum við Hringbraut,& vó 3245 gr.(13merkur) og mældist 49 cm löng ...Aron þór fæddist 8.Júlí 2008, kl 11,35 , 14 merkur og 48 cm... Foreldrar okkar heita Davíð Gunnar Róbertsson & Arna Rún Guðmundsdóttir
svo eigum við tvær eldri systur ,Alexöndru Gná og Isabellu Gná








NÝTT LYKILORÐ ",)




Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til





LJÓNIÐ
23. júlí - 22. ágúst


Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.





Elvar Smári
Einar og Steinn Alex
Elva Katrín
Katla Líf
Sindri Gils
Arna Guðrún


.





Natalía og guð

Natalía var við það að fæðast.Hún snýr sér að Guði og segir:

Mér er sagt að ég verði send á jörðina á morgun,en hvernig get ég lifað eins lítil og ósjálfbjarga sem ég er?

Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.Þessi engill mun sjá um þig.

En segðu mér,hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusöm?

Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig,hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusöm.

En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?

Engillinn þinn segir falleg orð við þig,fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.

En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?

Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.

Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn.Hver getur varið mig?

Engillinn þinn mun verja þig,þó svo það kosti hann lífið.

En ég verð alltaf sorgmædd því ég sé þig ekki oftar?

Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín,en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.

Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og Natalía sagði:

Kæri Herra,þar sem ég er að fara segðu mér,hvað heitir engillinn minn?

Nafn hans skiptir ekki máli,þú kallar hann

bara ,,mömmu"





Dóttir mín

Elsku yndislega dóttir mín.

Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar.

En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið.

Mig langar til að segja þér hug minn.

Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt.

Þú ert mér allt.

Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa.

Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim.

Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg.

Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið.

Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn.

Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.

Ég reyni að meta þig að verðleikum.

Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við.

Hvar væri ég án þín?

Ég elska þig elsku dóttir mín, nú og að eilífu.
Pabbi



Mamma er Konan

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.

Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta kona í heimi.





Pabbi er Maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.

Samt veit hann allt !!

Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi.









Þú ert gestur nr. 20412