"VIÐ ERUM SYSTKININ NÖKKVI SNÆR, THELMA SÓL OG GLÓDÍS DÚNA"


Um mig:
Endilega sendið mömmu og pabba póst á ody@simnet.is til að fá að vita leyniorðið á síðuna okkar.

Nökkvi Snær er fæddur 9.apríl 1999. Hann fæddist með blá augu og rosalega fallegt gyllt hár og var 3336gr og 52cm. á lengd.
Nökkvi Snær er í 6. G.E.S í Grunnskóla Vestmannaeyja og er alveg rosalega ánægður í skólanum. Hann æfir bæði handbolta og fótbolta með ÍBV, og á sumrin æfir hann einnig golf hjá GV, þannig að það er óhætt að segja að hann hafi nóg fyrir stafni.
Thelma Sól er fædd 16.júní 2004 og var 2902gr. og 49cm á lengd. Hún fæddist með kastaníubrúnt hár og blá augu.
Thelma Sól er er í 1.G.Snæ í Grunnskóla Vestmannaeyja og er alveg ofsalega ánægð þar. Þar eru einnig bestu vinirnir Dagur og Sunna. Thelma æfir bæði fimleika hjá RÁN og fótbolta með ÍBV af kappi og stendur sig svakalega vel.
Glódís Dúna er fædd 17. ágúst 2010 og var 3302gr. og 51 cm á lengd. Hún fæddist með kastaníubrúnt hár og blá augu. Hún er kraftmikil lítil stelpa sem er ofsalega hrifin af systkinum sínum sem passa vel upp á hana.





Áður en þið voruð til þráðum við ykkur.
Áður en þið komuð í heiminn elskuðum við ykkur.
Áður en þið höfðuð lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir ykkur.
Þið eruð kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til
Mamma og pabbi.









Annað:
ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ!


Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.
Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.
Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.
Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.
Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.
Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.
Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.
Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.
Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.
Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.
Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska





Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi faðir þér ég sendi.
Bæn frá mínu brjósti sjáðu,
blíði Jesú að mér gáðu.

Hafðu gát á hjarta mínu,
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf Jesús, vertu hjá mér.

Um þig alltaf sál mín syngi
sérhvern dag, þó eitthvað þyngi.
Gef ég verði góða barnið,
geisli þinn á kalda hjarnið.