Halló heimur, hér er ég...
og ég er Bóas Orri ...5 ára Stóri Bróðir


Um mig:
Hæ gestir... Ég heiti Bóas Orri. Ég fæddist á sjúkrahúsinu á Akranesi laugardaginn 26. júní árið 2004. Mamma, sem heitir Eygló Hlín Stefánsdóttir, og pabbi, sem heitir Hannibal Guðmundur Hauksson, keyrðu með mig innanborðs niður á sjúkrahús um kl 4 aðfaranótt laugardagsins og Eva Björk kom líka með til að verða viðstödd fæðingu mína. Ég nennti ekkert að vera að láta bíða eftir mér og var bara kominn í heiminn kl. 7:37, var heilir 52cm. og vó 4130gr. sem ku vera 16,5 mörk.




Annað:
Hvað þýðir nafnið mitt?

Bóas er biblíunafn, upprunnið úr hebresku og merkir hraði, - kraftur. Orri er komið af fuglsheitinu orri.



Hvað þýðir dagurinn sem ég er fæddur á?

Það að ég hafi fæðst þennan tiltekna dag á að segja eitthvað til um það hvernig ég verð. Ég á að hafa ágæta vitsmuni, vera hneigður fyrir andleg verkefni og stunda mikið lestur bóka um hin margvíslegustu efni sem ég vel af mjög næmri smekkvísi. Kímnigáfa mín er mjög þroskuð og aflar mér mikilla vinsælda. Heimilislíf mitt mun verða farsælt, og börnum mínum verða ástríkt foreldri, en jafnframt strangur og kröfuharður um breytni þeirra.



Hvað þýðir stjörnumerkið mitt?

Krabbinn

22. júní - 22. júlí

Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.








Anna Magný

Sölvi

Ísak Bergmann og Jóel Þór

Arna Björg og Gabríel Andri

Keiran Þráinn

Steindór Mar

Hugi Hrafn

Diskódísin

Íris Embla

Róberta Lilja og Pálmi Rúnar

Kristel Ýr og Helga María

Kolfinna Dröfn

Anton Gamalíel

Stefán Bjarki

Gísli Hrafn

Hrafnhildur, Þorgils og Viðar

Kristófer Áki

Katrín

Emma

Gylfi Kristinn

Kristján Hróar

Laufey og Magnús

Mikael Jósef

Balli og Breki










Þú ert gestur nr. 50944