![]() |
|
Um mig:
Endilega sendið mömmu og pabba póst á ody@simnet.is til að fá að vita leyniorðið á síðuna mína.
Ég fæddist 9.apríl 1999. Ég var með blá augu og rosalega fallegt gyllt hár. Ég var 3336gr og 52cm. á lengd. Mamma mín heitir Hjördís Elsa og pabbi minn heitir Óðinn og svo á ég litla systur sem heitir Thelma Sól og er 2. ára. Ég er í 2. G.Snæ í Hamarsskóla Vestmannaeyja og er alveg rosalega ánægður og duglegur í skólanum. Ég æfi bæði handbolta og fótbolta með ÍBV, er í skákfélagi Vestmannaeyja og á sumrin æfi ég einnig golf hjá GV, þannig að það er óhætt að segja að ég hafi nóg fyrir stafni. Ég held með Arsenal í enska boltanum og finnst Eiður Smári líka alveg frábær! Endilega kíktu á síðuna hennar Thelmu Sólar líka!
Til Nökkva Snæs: Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til Mamma og pabbi. |
|
|
|
Annað:
ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ!
Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma. Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku. Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi. Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd. Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði. Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust. Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna. Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni. Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark. Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu. Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi faðir þér ég sendi. Bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíði Jesú að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu, halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf Jesús, vertu hjá mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið
|