Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Aníta Ólöf
Aníta Ólöf
hæhæ langt síðan ég hef heimsótt síðuna þína Aníta mín :) alltaf gaman að skoða myndirnar þínar en mamma þín má alveg setja inn nýjar myndir hehe knús og kossar frá Maríu frænku
María Petrína Berg | 0 | 14.1.2012 23:57:33 #
Hæ hæ, og gleðilega hátíð. Þú hefur ábygilega fengið fullt fullt af pökkum eins og ég, vonandi ekki allt mjúkir pakkar,, bros. Við höfum nú ekki oft sést, og langt sían síðast, en þar sem pabbi rakst á síðuna þína sendum við þér og þínum heilla óskir og óskir um gleðilegt ár., aðra nótt. Byðjum voða vel að heilsa. B.kv. Guðbjörg Sól Sigfúsdóttir, og pabbi; SigfúsSig.
Guðbjörg Sól og pabbi | 0 | 31.12.2010 03:14:39 #
Flottar myndirnar þínar úr ferðalaginu :)) knús knús kveðja María
María Petrína Berg | 0 | 6.8.2010 13:12:27 #

Jæja held að það sé komin tími til að rita smá texta, það er ýmislegt búið að gerast frá síðustu færslu, ég fór til Tenerife í febrúar með mömmu, pabba, Guggu og Þóroddi, það var svaka stuð, lentum reyndar í  mikilli rigningu,, held að það hafi aldrei rignt eins mikið á Tenerife og á meðan við vorum þar.

Við erum líka búin að fara til Flórída það var svaka gaman, við fórum í Disney og ýmsa fleiri garða, við vorum þar í stóru húsi enda vorum við líka 12 saman,Mamma, Pabbi, ég, Heiða, Hanna, Morten, Tristan, Guðmundur, Sirrý, Kalli, Inga Rún og Særún.

Það var tekin lítil rúta á leigu (eða stór van) og keyrt um allt og mikið skoðað, mér fannst nú mest skemmtilegast að hitta allar fíkúrunar úr teiknimyndunum, það var svaka stuð.

Ég er líka búin að fara í tvær fermingarveislur á þessu ári og eina skírn, það var verið að skíra hann Darra Stein, og ferma Guðjón og líka ferma Aldísi Emblu.

Biðjum að heilsa að sinni

kv Aníta Ólöf og ritari.

0 | 7.7.2010 13:52:50 #

þessi mynd af okkur fjórum saman var alveg almennileg mynd,, bara smá prakkarasvipur á Tristani hehe
Guðríður Hanna Sigurðardóttir | 0 | 6.11.2009 22:58:20 #

Hæ hæ, Það er nú orðið langt síðan það var skrifað hér og ýmislegt búið að gerast, t.d. Tristan Alexander komin í heiminn og gott betur enn það orðin eins árs gutti,

Voða flottur.

Við fórum til Tenerife í mars, með ömmu og afa það var svaka gaman.

Svo fór öll fjölskyldan til Danmerkur í júní við fórum í dýragarð, skemmtigarð, Legoland og ýmislegt fleira, við vorum í góðu yfirláti hjá honum Paul pabba hans Mortens, og það var skemmt sér vel um borð í Norænu, já og komu við í Færeyjum.

Við fórum líka í ýmsar ferðir hér innanlands í sumar.

jæja held að þetta sé orðið nóg í bili,,,, já og ég er líka orðin 5 ÁRA

ok BÆ BÆ

0 | 6.11.2009 20:54:31 #

Til hamingju með afmælið í gær sæta skotta! ;D bið að heilsa famelíunni ;)
Karen Sigurðardóttir | 0 | 22.8.2009 18:36:39 #