Velkomin á heimasíðuna mína
Nökkvi Páll

Gestabók


Leikskólinn okkar er lykilorð á myndasíðu

Um mig:
Þann 4. september 2004 klukkan 7:25 ákvað ég að koma í heiminn þar sem ég vissi að stór partur af fjölskyldunni minni var mættur í borgina bara til að sjá mig. Ekki nóg með það heldur ákvað ég að koma nákvæmlega 18 mánuðum á eftir Veigari Elí stóra bróður sem er fæddur 4. mars 2003.

Fæðingin gekk vel. Mamma missti millibelgjavatn um kl. 4 um nóttina og upp úr 6 vorum við mætt í Hreiðrið. Mamma var í pottinum til kl. 7 á meðan hríðirnar gengu yfir og þá fór hún úr pottinum að rembast, belgurinn sprengdur og ég kom í heiminn klukkan 7:25. Dæla þurfti vatni upp úr mér um leið og ég kom út því ég hafði gert þarfir mínar í legvatnið. Ég mældist 4170 grömm og var 54 cm að lengd eða tæpar 17 merkur.

Fjölskyldunni minni líður mjög vel eftir þessa lífreynslu og það er ljóst að ég og Veigar Elí stóri bróðir eigum eftir að vera góðir vinir. Hann vill alltaf koma og knúsa mig og vill gefa mér duddu þegar ég fer að skæla.

Stóri bróðir
Ég og Veigar Elí stóri bróðir höfum sameiginlegt myndaalbúm, gestabók og vefdagbók. Ég er bara með mína eigin forsíðu. Heimasíðan hans Veigars er á http://www.barnaland.is/barn/9634.




Þú ert gestur nr. 8007