Ef það verður dót þá er það allt í lagi en ef það verður peningur þá kaupi ég mér einn líter af mjólk....
Guðný missti fyrstu tönnina og var að spá í hvað tanndísin myndi nú færa henni fyrir tönnina sína...
Mamman sagði að ef það yrði peningur yrði hún að kaupa eitthvað hollt :-)
Guðný var í baði um daginn og við vorum að fara yfir nöfnin á líkamspörtunum og það gekk mjög vel þangað til við bentum á pjolluna hennar, þá fullyrti hún það að hún myndi heita GEIRHARÐUR BOJNG BOJNG!!!
Það er svolítið gaman þegar þær heyra ekki alveg rétt, fyrir fermingarnar er gengið í hús og boðið upp á að senda skeyti og það var einmitt svoleiðis í gangi og maðurinn sem kom og tók við blaðinu kvaddi og sagði svo Gleðilega páska, nema hún Ágústa var viðstödd og segir svo "mamma hann sagði leiðinlega páska" hrikalega hneyksluð!!!
Fyrir stuttu var hún Guðný eitthvað að spá í hárið á sér og hristi það og strauk mikið og pabbi fór að spurja hana hvað hún væri að gera og hún svaraði" ég er með svo sítt og fallegt hár" pabbi:nú af hverju er það svona sítt og fallegt??? Guðný:af því ég borða svo mikinn lakkrís!!!
Hún Guðný á engann sinn líkan (vonandi) hún kemur með einhvern gullmola á 10 mínútna fresti,, grínlaust það var t,d í morgun þegar hún fékk skopparaboltann með mynd af jólatré á þá var það jólakúluboltaskopp og engin leið að breyta því!! og ef hún segjir hneppa eða smella þá er það alltaf að hnebbla og það þýðir ekkert að reyna að segja henni það að það sé vitlaust og að lokum er það orðið samfella, það vefst mikið fyrir henni því hún viðurkennir ekkert orð annað en samfokka á þá flík :-)
Hún er snillingur
Hún Ágústa var að fara með mömmu og Guðnýu út einn morguninn og fórum neðra megin (hjá afa) og snuddan hennar fannst ekki og gerð dauðaleyt af henni auðvitað og svo var hún spurð,, hvar er snuddan??? Og hún svaraði alltaf,hún er í númerinu mínu, og enginn fattaði neitt og svo endaði með því að hún reyndi að sýna okkur þetta númer og labbaði að kasettutækinu hans afa og benti alltaf þar á númer, og við vorum ekki að fatta, nei þá opnaði hún kassettutækið og viti menn hún var búin að troða snuddunni þar sem vanalega fara kasettur ;-/ það er uppeldi á þessu liði!!!
Guðný var að hjálpa pabba sínum í baði um daginn og var að þvo honum um eyrun, hún hamaðist eitthvað voðalega mikið við þetta, svo það endaði með því að hann spurði hvað ertu að gera????
Hún svaraði með miklu þjósti " ég er bara að leyta af fjarstýringunni"
Hún Guðný Rún er alveg mögnuð þessa dagana, um daginn var hún í baði og var með tómann sjapóbrúsa og það kom mjög skemmtilegt hljóð þegar hún kreisti hann og eftir smá stund kallaði hún "mamma sjáðu þetta er alveg geðbilað" og ekki veit ég hvar hún náði því :-/
Þær eru mikið að horfa á brúðubílinn þessa dagana og svarti svali er hundur í þessari ágætu þáttaröð og Ágústa er búin að læra nokkrar góðar línur þar, um daginn kemur hún til mín og við vorum að velta fyrir okkur hvað við áttum að fá okkur í kvöldmatinn og þá kom hún með setningu frá Svarta Svala "Ég vil stórt súkkulaði,2 sleikjóa og bland í poka fyrir milljón kall, þessu fylgdu líka miklar handahreifingar ;-)
Í dag var hún Guðný mín að segja mömmu sinni sögu( á meðan hún var að hoppa í hjónarúminu)
Mamma ég kaupti rúmið, nú sagði ég, Já ég kaupti það handa okkur, og svo ætla ég að fara á eftir og kaupa svín!!!!
Í gær kom pabbinn úr vinnunni kl 7/30 og þær stöllur hlupu á móti honum og voru voða glaðar að sjá hann smá en svo 10 mín seinna tilkynntu þær mér að pabbi væri kominn í heimsókn :-/ Hann er kannski ekki mikið heima þá!!!
Um daginn var svo Guðný Rún að syngja (hún gerir mikið af því) og hún ruglaði saman laglínum úr 3 lögum ss Siggi var úti- að baka brauð-í sultuskóm
Sem sagt Siggi var úti með ærnar í haga/ svo Kanntu brauð að baka/og síðast dansi dansi dúkkan mín! Nema hvað Guðný segjir ekki silkiskóm heldur sultuskóm:-)
Jæja nú er langt síðan síðast, og mikið orðagjálfur í gangi sem foreldrarnir ekki skilja :-)
En það er nýtt hjá þeim að segja alltaf lobbju fyrir háttinn en það þýðir Love You, indælar stelpur :-)
Ágústa lá útí útidyrum um daginn og heimtaði Jóa og ég hélt að það væri auðvitað Jói föðurbróðir sem kemur mjög oft í heimsókn en nei eftir langa mæðu og mikinn grát það kveikti mín á perunni að auðvitað var barnið að heimta SNJÓINN!!!
Við erum nú alveg að missa okkur í þessari íslenskukunnáttu okkar núna við systur :-)
Uppáhaldsorð Ágústu þessa dagana er NEI en hjá Guðný Rún er það JEPPI??? Ekki veit ég hvaðan jeppamanían kom en mig grunar pabbann... Ég spurði Ágústu í morgun hvert hún vildi koma til afa en þá krosslagði hún hendurnar og sagði hátt og skýrt nei takk og hljóp svo að dyrunum og opnaði niður til afa, ekki alveg í samhengi alltaf... svo spurði ég Guðný í hádeginu hvað hún vildi og það stóð ekki á svarinu hjá henni því hún vildi bara jeppa sem að þessu sinni þyddi hrísmjólk og annað orðyfir hana er hlímók hjá þei báðum :-)
Jæja nú er víst komið að því að við skrifum eitthvað skemmtilegt hérna því bullið að byrjað á fullu.. Þetta tungumál vefst pínu fyrir okkur svo að þegar við köllum á Maríu vinkonu okkar köllum við alltaf "MÆNA" eða "malí". Ef við erum spurðar hvað mamma segjir þá er svarað um hæl nei nei nei en pabbinn segjir bla bla bla og afi segjir já já og svo koll af kolli með alla sem við þekkjum :-)
en þetta kemur allt voða rólega og mamma er frekar gleymin, svo við verðum að fara að setja inn hérna reglulega svo það gleymist ekki alveg...