Brúðkaup Valda og Eddu 4. júlí 2009
Athöfnin hefst kl 18.00 í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ. Sr. Þór Haukson úr Árbæjarkirkju, sem fermdi okkur bæði, mun gefa okkur saman.
Að athöfn lokinni förum við hjónin í myndatöku hjá Hörpu Hrund. Á meðan verður boðið uppá fordrykk á 20. hæð í Veisluturninum í Kópavogi. Athugið að genigð er inn í Turninn Smáralindarmegin. Gert er ráð fyrir að myndatakan taki 30-45 mín og eftir það verður boðið uppá kvöldverð og svo dansað framá nótt ;)
Ef einhver vill halda ræðu eða vera með einhverskonar skemmtiatriði þá endilega hafið samband við veislustjórana okkar, þær Unni Birnu 867 5769 og Steinunni 869 3952 en þær eru góðar vinkonur okkar beggja og hafa verið í mörg ár:)
Fyrir þá sem vantar hugmyndir þá höfum við ákveðið að vera með brúðargjafalista í eftirfarandi verslunum:
- Casa (í Skeifunni) Mest þar, m.a matarstell, hnífapör, lampi og ýmislegt fleira
- Byggt og Búið (í Kringlunni) Bara ein hrærivél :)
Svo höfum við ákveðið að kaupa okkur reiðhjól frá Erninum í sumar og allar gjafir uppí þau myndu koma sér vel
. Hér eru myndir af gripunum: Eddu og Valda
Það getur svo vel verið að það bætist við gjafalistar í öðrum búðum á næstu vikum ;)
Munið líka að staðfesta komu eða tilkynna forföll fyrir 15. júní á netfanigð eddae05@ru.is eða í síma 869 3900 (Edda), 866 6560 (Valdi)
Hlökkum til að sjá ykkur!
♥ Kveðja, Valdi og Edda ♥
