|
|
|
Um okkur systkinin:
***Nína*Fannar*Tinna***
Við erum Sigurðarbörn. Við búum í Óðinsvéum í Danmörku
Ég Jónína Ása fæddist mánudaginn 16. ágúst 2004 á Landsspítalanum í Rvk, og var 18 merkur (4428gr) og 53 cm löng. Ég var tekin með keisara því að ég sat og vildi bara alls ekki snúa mér;) Var með kastaníubrún hár og mikið af því;) Í dag er ég með ljósa lokka og fallegustu bláu augu sem mamma og pabbi hafa séð;) Ég er alveg yndislega skemmtileg stelpa, syng og dansa allann liðlangann daginn. Ég er alltaf svo dugleg með að hjálpa til bæði með litla bróðir og heimilisstörfin, mamma segir að ég sé tuskuóð:) Í ágúst 2007 byrjaði ég í leikskólanum Bolden, þar finnst mér gaman að vera;)
Ég Fannar Már fæddist laugardaginn 21. október 2006 á OUH í DK og var 17 merkur (4298gr) og 55 cm langur. Ég fæddist eðlilega en fékk smá aðstoð með sogklukku. Var með mikið svart hár og líktist systir minni alveg ótrúlega mikið:) (pabba og mömmu brá þegar að þau sáu mig því að ég var svo líkur stóru systir;)heh Núna er ég með ljósbrúnt hár og brún græn augu (alveg eins og pabbi);) Ég er alveg ótrúlega góður, er síbrosandi og spjalla mikið. Er alltaf á fullu og hleyp út um allt,er duglegur að borða og stækka bara og stækka;) Ég er sem sagt algjör gullmoli eins og stóra systir mín;) mamma og pabbi dýrka mig og dá;) Í desmeber 2007 byrjaði ég í vuggestuen í Bolden(sama leikskóla og systir mín);) Aðlögunin gekk rosalega vel og er ég mjög ánægður þar;)
Ég Tinna Marikó fæddist laugardaginn 28.maí 2011 á OUH í DK og var 16 merkur (4040gr) og 53 cm löng. Ég lét bíða eftir mér í 2 vikur... belgurinn var sprengdur þegar að mamma var búin að ganga með mig í 42 vikur og ég fæddist 5 tímum seinna;) Mamma og pabbi voru svo ánægð með mig og upptekinn að horfa í augun mín að þau gleymdu að athuga kynið á mér ;) Ég fæddist með ljósbrúnt hár. Ég líkist báðum systkinum mínum mikið. Ég er algjört draumabarn eins og stóru systkini mín. Við eigum svo einn stórann hálfbróðir sem býr á Íslandi, hann heitir Benedikt og er líka algjör gullmoli og okkur þykir rosalega vænt um hann;)
Pabbi okkar heitir Sigurður Már Bjarnason og er frá Húsavík, mamma okkar heitir Sigríður Inga Aðalsteinsdóttir og er úr Vestmannaeyjum. Við búum í Óðinsvéum í Danmörku og erum búin að vera hér síðan í sept 2004. Pabbi er nýútskrifaður Rafmagnstæknifræðingur, og mamma er í skóla. Okkur líður alveg rosalega vel hérna og ætlum okkur að vera nokkur ár í viðbót í DK.
Pabbi & Mamma eru heppnustu foreldrar í öllum heiminum því þau eiga okkur;) Við erum litlu sólargeislarnir þeirra;)
Það er þarf lykilorð til að komast inná myndasíðuna (albúm),verið ófeimin að senda mömmu tölvupóst (www.siggainga77@hotmail.com) ;o) |
|
|
Jónína Ása
Fannar Már
Jónína Ása
Fannar Már
Til þín Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til M&P
|
| Þú ert gestur nr. 36829 |