| Halló ég heiti Kristófer Karl |
| Ég er 8.ára töffari, er í 3.bekk og í vetur stunda ég söng og leiklist í Borgarleikhúsinu |
|
|
Um mig:
Ég fæddist í Calkutta á Indlandi 21.ágúst 2000,
ég var 1950 gr. og 42 cm þegar ég fæddist, ég var og er með svartan háralit og húðin mín er fallega brún og ég er með brún augu. Foreldrar mínir heita Róbert Hamar og Sigrún Sigurðardóttir, ég kom til þeirra með stórri flugvél frá Indlandi þann 17.desember 2000 og var það mikil gleði stund og gott að komast í fangið á mömmu og pabba eftir langt og strangt ferðalag. Þegar ég kom til Íslands var ég alveg að verða 4.mánaða og var 50 cm og 1350 gr. og algjör dúlla og er enn. Sólskinsbarn Hann er svarthærður og laglegur Hann er ljúfur eins og vor. Ekkert er eins uppörvandi eftir erfiðan dag og brosandi andlit sem lítill sonur þrýstir að gluggarúðu. Stráir ástríku yndi við hvert einasta spor. Hann er elskaður af öllum, og í athöfnum dyggur. Hann er sólskinsbarn síglatt. Hann er saklaus og tryggur Fyrir mæður drengja!!! Drengir eru breytilegir að stærð, þyngd og lit. Þeir eru alls staðar - uppi á öllu og niðri í öllu, klifrandi, hlaupandi og stökkvandi. Mæður elska þá, eldri systur og bræður umbera þá, fullorðnir virða þá ekki viðlits, og Drottinn verndar þá. Drengur er Sannleikur með óhreinindi í andlitinu, Viska með tuggugúmmí í hárinu og Von framtíðarinnar með ánamaðk í vasanum. Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir, orku eins og vasaatómsprengja, rödd eins og einræðisherra. Hann er gæddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunnar, viðbragðsflýti veiðibogans, funa flugeldsins, og þegar hann býr eitthvað til, hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi. Hann kann vel að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn (í sínu náttúrulega umhverfi), stór dýr, pabba, bíla, laugardagsmorgna og brunabíla. Hann er lítið fyrir sunnudagaskóla, barnaskóla, myndalausar bækur, spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpur, frakka, fullorðna eða háttatíma. Enginn er eins árrisull, og enginn eins síðbúinn til matar og hann. Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálfétnu epli, þriggja feta snærisspotta, þremur blossateinum, tuttuguogfimmeyringi, vatnsbyssu, og dularfullu áhaldi, sem enginn þekkir nema hann. Drengur er sannkölluð töfravera - þú getur lokað hann úti úr vinnustofunni þinni, en þú getur ekki lokað hann út úr hjarta þínu. Þú getur fengið hann burtu úr skrifstofunni þinn, en þú getur ekki fengið hann burtu úr huga þér. Það er eins gott að gefast upp strax - hann er fangavörður þinn, húsbóndi og herra - freknóttur ólátabelgur. En þegar þú kemur heim á kvöldin með allar borgir vona þinna og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með tveim töfraorðum - "Halló mamma!" Ekkert er eins uppörvandi eftir erfiðan dag og brosandi andlit sem lítill sonur þrýstir að gluggarúðu. LJÓNIÐ 23. júlí - 22. ágúst Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt. |
|
|
|
| Þú ert gestur nr. 6599 |