|
|
|
Um mig:
(Þeir sem vilja kíkja á okkur alls ekki vera feimin við að senda mömmu e-mail, hrafnkatla_@hotmail.com og fá lykilorðið) Lúkas Kató kom í heiminn þann 20. mars 2005 á pálmasunnudegi en mamma okkar er einmitt líka pálmasunnudagsbarn! Fæðingin gekk eins og í sögu. Mamma og pabbi voru komin á sjúkrahúsið kl. 16:00 og var prinsinn svo mættur á svæðið kl. 19:40. Hann var alveg gullfallegur og kröftugur og er náttúrulega enn!! Hann var 16 merkur og 53 cm á lengd. Viktor Birkir kom í heiminn þann 5. maí 2007. Mamma gekk fjóra daga fram yfir og var nú orðin frekar óþolinmóð en varð svo heldur betur sátt við fæðingardaginn! Gerist nú varla flottara en 05.05.07 :) Mamma, pabbi og í þetta skiptið Birna amma voru komin á sjúkrahúsið um 11:30 og prinsinn síðan mættur á svæðið 13:50. Fæðingin gekk semsagt eins og í lygasögu í þetta skiptið! Hann var gullfallegur og algjör bolti. Hvorki meira né minna en 17 merkur og 55 cm á lengd. Mamma okkar heitir Hrafnkatla Valgeirsdóttir og er í hjúkrunarfræði og pabbi okkar heitir Davíð Þór Rúnarsson og er í kennaranámi. Við eigum síðan kött sem heitir Tinni svo að karlkynið er heldur betur í meirihluta á heimilinu ;) |
|
|
Árni Tumi
|
| Þú ert gestur nr. 45362 |