Þurftum að breyta lykilorðinu svo endilega þið sem voruð með hitt sendið mömmu aftur og fáið nýja :)


Hæhæ, ég heiti Kristinn Snær Guðjónsson og fæddist 01. september 2004 á Landsspítalanum í Reykjavík. Þegar ég fæddist var ég 48,5cm og 2610gr eða 10 og hálf mörk. Þegar ég fæddist var ég með mjög dökkbrúnt hár og rosa sæt blá augu. Mamma mín heitir Jóna Guðrún Kristinsdóttir (83) og pabbi minn heitir Guðjón Júlíusson (82) svo á ég líka einn stjúpbróðir sem heitir Jón Grétar Guðjónsson (04). Blóðfaðir minn heitir Hjalti Már Kárason (77) en ég þekki hann ekkert, hann á svo Júlíu Sif (00) sem er hálfsystir mín og hana þekki ég. Mamma lét skíra mig á Sjúkrahúsinu á Selfossi 08. september 2004, daginn áður en við fórum heim og ég var skírður eftir afa Kidda og svo fannst mömmu Snær bara svo fallegt ;) Vonandi hafið þið gaman af síðunni minni og munið bara að kvitta fyrir ykkur í gestabókina.



TIL MÖMMU OG PABBA
Þið verðið stundum vansæl,
víst er ég ósköp lítill.
Set merki um mig út um allt,
ykkur þreytir vaskur trítill.

En einn dag verð ég eldri,
já einn dag er ég stór.
Því tíminn líður skelfing hratt,
þið undrist hvernig fór.

Hér minnismerki fáið,
þá munið þið vel og skiljið,
hve litla hendur hafði ég
þau ár sem ég var smár.



Sólskinsbarn

Hann er ljóshærður og laglegur
Hann er ljúfur eins og vor.
Stráir ástríku yndi
við hvert einasta spor.
Hann er elskaður af öllum,
og í athöfnum dyggur.
Hann er sólskinsbarn síglatt.
Hann er saklaus og tryggur



Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.



Þegar ekkert er eins og það á að vera,

og þér finnst allt mistakast,

þarf ekki annað en tiplið í litlum fótum á garðstígnum,

smáhopp og handleggi sem umvefja þig,

bros og heillanga frásögn af ævintýrum dagsins ?

þá geturðu ekki kvartað yfir neinu.



Ástæðan fyrir því hvað ég var lítill er nú soldið skondin, ég er að spá í að segja ykkur þá sögu. Ég er soldill prakkari því ég passaði að láta mömmu ekkert vita af mér áður en ég kom í heiminn. Mamma var bara í vinnunni þegar hún fékk alveg rosalega magaverki (þegar mig langaði að kíkja í heiminn) og var send heim úr vinnunni um hádegi. Mamma fór á sjúkrahús og þá kom í ljós að ég var að koma, hún varð nú soldið hissa en samt glöð hvað ég var heilbrigður. Hún vissi nebblega ekkert af mér og gerði því allt sem hún var vön að gera og passaði ekkert uppá mig. Það er nú mikið búið að hlæja að þessu og mamma líka. Hún er nú bara voða ánægð með mig og segir að þó ég hafi komið óvænt þá hafi ég alveg verið velkominn, enda er ég svo mikið krútt ;) Svo voru allir svo fljótir að redda okkur öllu sem okkur vantaði. Við mamma fluttum bara heim til ömmu og afa á Selfossi. Núna búum við svo með honum Gaua, pabba mínum í Kópavoginum og höfum það rosalega gott saman ;)



Júlía Sif stóra systir mín

Friðveig Dögg frænka mín

Sigurdís Sjöfn vinkona mín

Gunnar Franz frændi minn

Júlíana frænka mín

Alexander Freyr vinur minn

Ísold Vala vinkona mín

Kristbjörg Unnur frænka mín

Linda Björk frænka mín

Lilja Rún frænka mín

Natalía Eir frænka mín

Rakel Anna frænka mín

Inga Jóna stóra frænka mín

Þórir Bjarni frændi minn

Alex Snær "frændi" minn

Dagur Freyr frændi minn

Karen Tanja frænka mín

Axel Máni frændi minn

Agnes Embla vinkona mín



Kristinn:Nafn þetta er komið af nafnorðinu "kristinn" sem merkir sá sem trúir á Jesú Krist

Snær:Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "snær" sem merkir snjór.







Þú ert gestur nr. 30723