Ég heiti Baltasar Dagur


Um mig


Ég fæddist 20. apríl 2005, kl 13:56, en þá voru mamma og pabbi búin að bíða eftir mér í 3 daga. Ég vó 3200g eða 12 merkur og var 52 cm langur og lang fallegastur! Ég var alveg eins og pabbi og áður en mamma fékk að sjá mig heyrði hún ljósmóðurina segja að ég væri með eyrun og nebban hans pabba! Mamma heitir Lena Sólborg og pabbi heitir Vignir Rúnar. Þau eru að sjálfsögðu rosalega montin og sjá ekki sólina fyrir mér!

Ég var skírður á sjómannadaginn 5. júní í Laugarneskirkju af Bjarna Karlssyni. Skírnarvottar voru Áslaug, systir hans pabba, Arnþór Hinrik og Kristjana Hlín, systkini mömmu.

Nafnið mitt:
Mamma og pabbi ákváðu að skíra mig Baltasar því þeim finnst það svo fallegt. Löngu áður en ég kom í bumbuna á mömmu dreymdi henni að hún eignaðist strák og hann hét Dagur, þá ákvað hún að strákurinn hennar myndi heita Dagur.

Nafnið Baltasar er komið úr Biblíunni, einn af vitringunum þremur hét þessu nafni.
Nafnið Dagur er úr goðafræðinni. Mæðginin Nótt og Dagur fengu hesta og vagna og riðu þar umhverfis jörðina á hverjum tveimur dögum. Nótt var ætíð á undan. Nótt ríður Hrímfaxa, froðan úr munni hans sést sem dögg að morgni. Dagur ríður Skinfaxa, fax hans lýsir upp loft og jörð.

Lilypie 4th Birthday Ticker




Annað






Birgitta Dögg, Daníel Smári & Stefán Kári

Minningarsíða Daða Snæs

Stúlka Karlsdóttir

Árni Kristinn

Berglind

Isabella Ósk & Dögun París

Styrmir Gunnar

Hafrún Arna & Benedikt Aron

Emma Karen

Ísak Ernir

Katla Ísold

Víðir Freyr & Hlynur Finnbogi

Kolbrún Líf & Eiríkur Frímann

Sveinn Nökkvi & Magnea Þórey






Þú ert gestur nr. 51526