|
**** 18. júní - NÝJAR MYNDIR ****
|
![]() ![]() ![]()
![]()
|
|
|
Smá upplýsingar um mig
Ég fæddist mánudaginn 23. maí 2005 kl. 16:50 á Landspítalanum. Þá var ég 16 merkur (4020 gr.) og 52 cm. Þegar ég fæddist var ég með slatta af dökku hári og mjög dökkblá augu. Ég var talsvert lík því sem stóri bróðir minn var þegar hann var nýfæddur og eins og hann sýndi ég strax óvenjumikil svipbrigði, svona miðað við að vera nýfædd. Öll fjölskyldan mín er alveg heilluð af mér - enda engin furða, ég er svo æðisleg.
Pabbi minn heitir Ketill ('73) og mamma mín heitir Ella Gitta ('76). Svo ég á einn stóran bróður sem heitir Róbert Örn ('01). Við fjölskyldan búum í Breiðholtinu. Pabbi minn er alveg svakalega einstakur maður - því hann á þrjá tvíbura, sem eðli málsins er mjög sjaldgæft. En ég er sem sagt þriðji tvíburinn hans pabba, því bæði mamma og stóri bróðir minn eru tvíburar - alveg eins og ég:-D Róbert Örn er sko besti bróðir í heimi og ef þið viljið skoða heimasíðuna hans þá getið þið smellt á myndina hérna fyrir neðan.
Ég beið svo lengi - samt komstu svo hratt, og líf þitt taug í hjarta mitt batt. Með hárið dökkt og augun svo skýr, þú komst inn í líf mitt sem vorvindur hlýr. Sólin skein og fuglar sungu er fékk ég að halda á lífi ungu. Hamingjan tók á sig nýjan brag og söng í hug mér sitt lag. Í fáum orðum því verður ei lýst, hvernig allt til betri vegar snýst, er horfi ég fallegu augun þín í, þá skín sólin í hug mér á ný. Því hvern nýjan dag þú gleður og kætir og í sarpinn minn fjársjóðum bætir. Því víst er það svo Karen Erla að þú er lífsins dýrasta perla.
Sú ákvörðun að eignast barn er einstök. Að ákveða að um alla eilífð muni hjarta þitt vera á gangi fyrir utan líkama þinn.
|
|
|
Og ennþá meira um mig
Elsku Karen Erla! Ást mín verður með þér hvenær sem þú þarfnast hennar. Ást mín verður með þér þegar gleðin ber þig ofurliði. Ást mín verður með þér þegar erfiðleikarnir eru að buga þig . Ást mín verður með þér þegar þú óttast lífið . Ást mín verður með þér í dag og alla daga.
Börn eru blessun frá Guði!
|
| Þú ert gestur nr. 31650 |